- HEIM
- FRÉTTIR
- MYNDIR
- HVERFIÐ OKKAR
- AÐSENT EFNI
- ÍÞRÓTTIR
- UM OKKUR
Dagur íslenskrar tungu er miðvikudaginn 16. november, á afmælisdegi Jónasar Hallgrímssonar. Tveir viðburðir verða á Borgarbókasafninu Spönginni þann dag:
13:45-14:30 Ungskáldin og Einar Már
Skáld úr Borgarholtsskóli (þgf.) og Einar Már Guðmundsson rithöfundur lesa ljóð og texta og spjalla um hlutskipti ungskálda fyrr og nú.
17:15-18:00 Uppskeruhátíð Orðagulls
Nemendur Ólafar Sverrisdóttur á sagnanámskeiðinu Orðagulli, sem staðið hefur yfir á bókasafninu síðan í september, segja sögur að hætti hússins.
Allir velkomnir!
Dagur orðsins – Dagskrá tileinkuð skáldinu Gerði Kristnýju Guðjónsdóttur
Hátíðardagskrá kl. 10:00
Jón Yngvi Jóhannsson flytur erindi um skáldskap Gerðar Kristnýjar
Gerður Kristný les eigin ljóð
Sigríður Thorlacius syngur lög við texta Gerðar Kristnýjar og Hákon Leifsson organisti leikur undir
Guðsþjónusta kl. 11:00
Séra Guðrún Karls Helgudóttir og séra Sigurður Grétar Helgason þjóna fyrir altari. Gerður Kristný Guðjónsdóttir flytur hugleiðingu. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Hákonar Leifssonar organista.
Sunnudagaskóli kl. 11:00
Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson.
Kaffi á eftir!
Selmessa kl. 13:00
Séra Sigurður Grétar Helgason prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju syngur undir stjórn Hákonar Leifssonar.
Sunnudagaskóli kl. 13:00
Umsjón hefur Matthías Guðmundsson Undirleikari er Stefán Birkisson.
Kaffi á eftir!
“ JólaVox 2016 verður haldið í Grafarvogskirkju laugardaginn 17. des kl 17. Við lofum notalegu andrúmslofti, hátíðlegri dagskrá og skemmtilegum tónleikum. JólaVox kakó og smákökusmakk eftir tónleika.
Með okkur verða meðal annars beatboxari og óvæntir gestir ásamt glæsilegri hljómsveit.
2500kr inn, frítt fyrir börn yngri en 12 ára og eldri borgara afsláttur.
Sjáum ykkur sem flest! „
Vefmyndavélar bæta vetrarþjónustu í Reykjavík:
Vefmyndavélar sem starfsmenn Reykjavíkurborgar nota til að meta færð á götum borginnar eru nú aðgengilegar öllum á vefsíðunni reykjavik.is/vefmyndavelar
„Vefmyndavélarnar auðvelda okkur að meta færðina og taka ákvörðun um hvenær við köllum út snjóruðningstæki og saltbíla,“ segir Þröstur Ingólfur Víðisson yfirverkstjóri vetrarþjónustu Reykjavíkurborgar. „Þessi tækni bætir yfirsýn okkar og ákvarðanir um aðgerðir eru byggðar á betri upplýsingum. Við náum að bregðast fljótar við og skilvirkari vinnubrögð spara fé“.
Þröstur segir að líta megi á vefmyndavélarnar sem aukna þjónustu við borgarbúa og því hafi verið tilvalið að ganga alla leið og gera þær aðgengilegar á vefnum.
Snjóþungi réð staðsetningu myndavélanna
Vefmyndavélar Reykjavíkurborgar eru á átta stöðum með tveimur linsum hverjum stað sem skilar sér í sextán sjónarhornum eða vefmyndum. Staðsetning vélanna tók mið af því hvar snjóþungi hefur verið mestur í borginni undanfarin ár. Reykjavíkurborg og Vegagerðin eiga í góðu samstarfi og er öllum vefmyndavélum miðlað á vefi beggja. Vélar Vegagerðinnar í Reykjavík eru á fjórum stöðum með alls þrettán linsum eða sjónarhornum. Áhugafólk um færð í Reykjavík getur nú valið milli 29 mynda eða sjónarhorna á götur í Reykjavík.
Vélar borgarinnar eru af gerðinni Mobotix og er þeim komið fyrir í um sex metra hæð. Þær eru knúnar rafmagni frá ljósastaurum borgarinnar og sólarrafhlöðum sem hlaða á rafgeyma. Reynslan frá því síðasta vetur og frá því í sumar sýnir að þetta er fullnægjandi til að halda vélunum gangandi árið um kring.
Þröstur segir að rekstrarkostnaður sé lítill. Vélarnar þurfa lítinn straum og myndir eru sendar yfir farsímakerfið á nokkurra mínútna fresti, en engar upptökur eru gerðar. „Vélarnar sönnuðu gildi sitt afdráttarlaust síðasta vetur, gáfu betri yfirsýn og minnkuðu akstur umtalsvert,“ segir Þröstur.
Nánari upplýsingar:
Vefmyndavélar [ http://reykjavik.is/vefmyndavelar ]
Snjóhreinsun og hálkuvarnir [ http://reykjavik.is/snjor ]
Nánari upplýsingar veitir Þröstur Ingólfur Víðisson yfirverkstjóri vetrarþjónustu í síma 693 2598
Ljósmyndir og virkir tenglar eru í frétt á vef Reykjavíkurborgar > http://reykjavik.is/frettir/vefmyndavelar-baeta-vetrarthjonustu-i-borginni
Vefmyndavélar sem starfsmenn Reykjavíkurborgar nota til að meta færð á götum borginnar eru nú aðgengilegar öllum á vefsíðunni reykjavik.is/vefmyndavelar
„Vefmyndavélarnar auðvelda okkur að meta færðina og taka ákvörðun um hvenær við köllum út snjóruðningstæki og saltbíla,“ segir Þröstur Ingólfur Víðisson yfirverkstjóri vetrarþjónustu Reykjavíkurborgar í samtali á vef Reykjavíkurborgar.
„Þessi tækni bætir yfirsýn okkar og ákvarðanir um aðgerðir eru byggðar á betri upplýsingum. Við náum að bregðast fljótar við og skilvirkari vinnubrögð spara fé“.
Þröstur segir að líta megi á vefmyndavélarnar sem aukna þjónustu við borgarbúa og því hafi verið tilvalið að ganga alla leið og gera þær aðgengilegar á vefnum.
Snjóþungi réð staðsetningu myndavélanna
Vefmyndavélar Reykjavíkurborgar eru á átta stöðum með tveimur linsum hverjum stað sem skilar sér í sextán sjónarhornum eða vefmyndum. Staðsetning vélanna tók mið af því hvar snjóþungi hefur verið mestur í borginni undanfarin ár.
Reykjavíkurborg og Vegagerðin eiga í góðu samstarfi og er öllum vefmyndavélum miðlað á vefi beggja. Vélar Vegagerðarinnar í Reykjavík eru á fjórum stöðum með alls þrettán linsum eða sjónarhornum. Áhugafólk um færð í Reykjavík getur nú valið milli 29 mynda eða sjónarhorna á götur í Reykjavík.
Vélar borgarinnar eru af gerðinni Mobotix og er þeim komið fyrir í um sex metra hæð. Þær eru knúnar rafmagni frá ljósastaurum borgarinnar og sólarrafhlöðum sem hlaða á rafgeyma. Reynslan frá því síðasta vetur og frá því í sumar sýnir að þetta er fullnægjandi til að halda vélunum gangandi árið um kring.
Þröstur segir að rekstrarkostnaður sé lítill. Vélarnar þurfa lítinn straum og myndir eru sendar yfir farsímakerfið á nokkurra mínútna fresti, en engar upptökur eru gerðar. „Vélarnar sönnuðu gildi sitt afdráttarlaust síðasta vetur, gáfu betri yfirsýn og minnkuðu akstur umtalsvert,“ segir Þröstur.
Nánari upplýsingar:
FH hélt sitt árlega frjálsíþróttamót Gaflarann um helgina í frjálsíþróttahöllinni í Kaplakrika. Mótið var fyrir 10-14 ára og tókst mótahaldið mjög vel.
Góð þátttaka var frá Fjölni á mótinu en 17 krakkar voru skráðir á mótið og voru nokkur þeirra að keppa á sínu fyrsta móti í frjálsum. Krakkarnir stóðu sig mjög vel og voru settir margir persónulegir sigrar. Nokkur þeirra komust á verðlaunapall:
Kolfinna Ósk Haraldsdóttir 12 ára fékk tvenn bronsverðlaun í 60 m hlaupi og langstökki.
Ingibjörg Embla Davíðsdóttir 13 ára fékk tvenn bronsverðlaun í 60 m hlaupi og hástökki.
Una Hjörvarsdóttir 13 ára fékk silfur í hástökki.
Elísa Sverrisdóttir 14 ára fékk silfur í hástökki og brons í 400 m hlaupi.
Signý Hjartardóttir 14 ára fékk brons í kúluvarpi.
Kjartan Óli Ágústsson 14 ára fékk brons í 400 m hlaupi.
Á myndinni er hluti hópsins á mótinu.
Dagana 11 .og 12.nóvember munu þeir; Hallur Ásgeirsson, Arnar Páll Garðarsson, Unnar Jóhannsson og Þorlákur Árnason kenna á fótboltanámskeiði sem er haldið Í Fjarðarbyggðarhöllinni á Reyðarfirði. Þar gefst krökkum í 7.-3.flokki drengja og stúlkna á Austurlandi tækifæri á að æfa undir stjórn okkar þjálfara.
Fjölnismenn eru gríðarlega stoltir af því að Austfiðringar skulu leita til okkar félags vegna kennslu á þessu námskeiði.
Sunnudagaskóli kl. 11:00 - Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir ásamt séra Sigurði Grétari Helgasyni. Undirleikari er Stefán Birkisson.
Guðsþjónusta kl. 14:00 – Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir prédiar og þjónar fyrir altari ásamt séra Guðrúnu Karls Helgudóttur. Við minnumst látinna og nefnum sérstaklega nöfn þeirra sem prestar kirkjunnar hafa jarðsungið undanfarið ár og þeirra sem hafa verið jarðsungin í Grafarvogskirkju á þessum tíma. Við tendrum ljós í minningu þeirra og biðjum fyrir ástvinum þeirra.
Kirkjukórinn syngur undir stjórn Hákonar Leifssonar og Karlakór Grafarvogs syngur undir stjórn Írisar Erlingsdóttur.
Að lokinni guðsþjónustu verður kaffisala til styrktar líknarsjóðs safnaðarins. Kaffið kostar 2500 kr. fyrir fullorðna og 1000 kr fyrir börn.
Selmessa kl. 13:00 – Séra Sigurður Grétar Helgason prédikar og þjónar fyrir altari. Hákon Leifsson er organisti og hópur úr Kór Grafarvogskirkju syngur.
Sunnudagaskóli kl. 13:00 – Matthías Guðmundsson hefur umsjón með starfinu og undirleikari er Stefán Birkisson.
Vekomin!