ÞJÓNUSTUÍBÚÐIR

Þjónustuíbúðir eru ætlaðar fólki sem þarf meiri aðstoð og stuðning en hægt er að veita í heimahúsi en heilsufar ekki orðið það slæmt að þörf er fyrir hjúkrunarheimili.

Umsóknir um þjónustuíbúðir er að finna á Rafræn Reykjavík.

Eldri borgarar_bæklingur

ÞJÓNUSTA FYRIR ELDRI BORGARA

Íbúar í Grafarvogi og á Kjalarnesi geta leitað eftir upplýsingum og ráðgjöf í Miðgarði, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness, varðandi ýmis mál, svo sem fjármál, tryggingabætur, húsnæðisúrræði, vistunarmat og stuðning. Ráðgjöfin er ókeypis.

Korpúlfar, samtök eldri borgara í Grafarvogi, eru með aðstöðu á Korpúlfsstöðum. Hér er hægt að nálgast upplýsingar um starfið.