- HEIM
- FRÉTTIR
- MYNDIR
- HVERFIÐ OKKAR
- AÐSENT EFNI
- ÍÞRÓTTIR
- UM OKKUR
Fullt af fallegum nýjum bolum, púðum, kortum, myndum og silkislæðum eftir mig í Gallerí Korpúlfsstöðum og í Skúmaskoti á Laugarveginum.
Selfoss lagði Fjölnismenn í hörkuleik á Selfossi í kvöld og voru þar með fyrsta liðið til að taka stig af Fjölnismönnum. Munurinn var aðeins eitt mark í hálfleik 15-14, en það voru svo heimamenn sem voru sterkari í seinni hálfleiknum og sigruðu að lokum með 7 marka mun 29-22 þar sem Guðjón Ágústsson og Andri Már voru markahæstir heimammanna með 7 mörk. Á morgun fer svo fram leikur ÍH og Hamrarnir í Kaplakrika. önnur úrslit og markaksorun var eftirfarandi:
Mörk Selfoss: Guðjón Ágústsson 7, Andri Már Sveinsson 7, Jóhann Erlingsson 4, Hergeir Grímsson 4, Hörður Másson, Elvar Örn Jónsson, Sverrir Pálsson og Matthías Örn Halldórsson allir mepð 1 mark.
Mörk Fjölnis: Kristján Örn Kristjánsson 8, Bergur Snorrason 4, Breki Dagsson 3, Brynjar Loftsson 3, Sveinn Þorgeirsson 2, Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson 1 og Björgvin Páll Rúnarsson 1.
Myndir : Þorgils G
Næsta sunnudag, 12. október, verða Guðsþjónustur og sunnudagaskóli bæði í Grafarvogskirkju og í Kirkjuselinu Spöng.
Guðsþjónusta kl. 11.00.
Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Kór kirkjunnar syngur. Organisti: Hákon Leifsson.
Sunnudagaskóli á sama tíma.
Séra Sigurður Grétar Helgason.
Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir.
Undirleikari: Stefán Birkisson.
Guðsþjónusta kl. 13.00.
Séra Sigurður Grétar Helgason prédikar og þjónar fyrir altari.
Vox Populi syngur. Organisti: Hilmar Örn Agnarsson.
Sunnudagaskóli á sama tíma.
Umsjón hefur Ástríður Guðmundsdóttir.
Undirleikari: Stefán Birkisson.
Nú biður Reykjavíkurborg íbúa í fjórða sinn um að leggja til hugmyndir að verkefnum í hverfum borgarinnar. Kosið verður á milli hugmynda borgarbúa í hverfakosningum á næsta ári. Á síðustu þremur árum hafa íbúar lagt borginni til 1.350 hugmyndir og hafa yfir 300 þeirra þegar verið framkvæmdar eftir úrslit bindandi hverfakosninga.
Íbúar geta farið inn á samráðsvefinn betrireykjavik.is frá og með 8.október og lagt þar inn hugmyndir sem fegra umhverfið og bæta ýmsa aðstöðu í hverfunum. Opið verður fyrir innsetningu hugmynda til 7. nóvember næstkomandi.
Reykjavíkurborg mun leggja 300 milljónir króna til hverfapotta á næsta ári. Þessir peningar fara í að framkvæma hugmyndir sem borgarbúar leggja sjálfir til. Að auki sinnir borgin ýmsum nauðsynlegum viðhaldsverkefnum í hverfunum.
Á síðustu þremur árum hafa íbúar komið með 1.350 hugmyndir að verkefnum í borgarhverfunum. Alls hefur borgin framkvæmt yfir 300 hugmyndir sem íbúar hafa komið með og forgangsraðað í íbúakosningum síðastliðin þrjú ár.
Nú er verið að leggja lokahönd á 78 verkefni sem kosin voru á þessu ári í hverfum borgarinnar. Nokkur stór verkefni eru þó enn á undirbúningsstigi.
Verkefnin eru afar fjölbreytt og stuðla nær öll að því að bæta umhverfis- og lífsgæði borgarbúa.
Leikvellir hafa verið teknir í gegn. Nýir göngu- og hjólastígar hafa verið lagðir og gangstéttir endurnýjaðar. Sleðabrekkur hafa verið búnar til og sléttaðar, skautasvell á Rauðavatni upplýst, hringtorg sett upp, frisbígolfvellir búnir til, áningarstaðir gerðir, vatnshanar settir upp og tré og runnar gróðursettir víða um borgina. Þá hafa margs konar upplýsingaskilti verið sett upp og lýsing bætt víða við leikskóla, göngustíga og víðar. Meðal frumlegra hugmynda borgarbúa sem framkvæmdar hafa verið á síðustu árum eru stigi niður í fjöruna á Eiðisgranda sem auðveldar fólki aðgengi að sjávarsíðunni þar, aflraunasteinar við Ægissíðu og ævintýragarður í Gufunesi sem er á undirbúningsstigi.
Íbúakosningar verða haldnar í fjórða sinn með sama sniði og áður á næsta ári. Þá verður kosið um þær hugmyndir sem fagteymi Reykjavíkurborgar og hverfisráð hafa valið úr innsendum hugmyndum borgarbúa.
Gott tilefni er til að hefja söfnun hugmynda frá íbúum nú í október því fjölmörg sveitarfélög í Evrópu halda í heiðri lýðræðisviku í þessum mánuði.
Reykjavíkurborg hvetur íbúa í Reykjavík til að skoða hverfin sín gaumgæfilega og koma með hugmyndir sem gera þau enn betri.
Handknattleiksdeild Fjölnis og Domino’s Pizza – Ísland skrifuðu í dag undir samstarfssamning sem gildir út leiktíðina. Handknattleiksdeildin lýsir yfirm ánægju með að halda áfram góðu samstarfi við jafn öflugt fyrirtæki og Domino’s.
Fyrirtækið heldur úti góðum tilboðum allan ársins hring, eitt það helsta er auðvitað tvennutilboðið öfluga. Ekki má gleyma megavikutilboðunum sem detta inn reglulega og við hvetjum auðvitað allt okkar fólk til að gæða sér á gómsætu þriðjudagstilboðinu: ljúffeng 12″ Domino’s pizza með þremur áleggjum á einungis 1.000 krónur.
Á myndinni má sjá Egil Þorsteinsson þjónustustjóra Domino’s á Íslandi og Ingvar Örn Ákason starfsmann handknattleiksdeildar Fjölnis káta með samninginn í höndunum eftir undirritun.
Módel Korpúlfa slógu í gegn í tískusýningunni sem haldin var í Borgum Spönginni.
Alltaf mikið fjör hjá Korpúlfum.
Í dag var opnað fyrir innsetningu á nýjum hugmyndum fyrir verkefni Betri hverfa 2015 og er hægt að skila inn hugmyndum í einn mánuð eða til 7. nóvember. Slóðin er einfaldlega www.betrireykjavik.is.
Betri hverfi 2015 er samráðsverkefni íbúa og stjórnsýslu um forgangsröðun og úthlutun fjármagns til smærri nýframkvæmda- og viðhaldsverkefna í hverfum Reykjavíkurborgar.
Alls voru 78 verkefni kosin til framkvæmda í hverfakosningum. Íbúar sendu hins vegar inn 400 hugmyndir á vefinn Betri Reykjavík. Framkvæmdum við flest þessara verkefna er lokið eða þau eru á lokasprettinum. Nokkur stærri verkefni eru enn á undirbúningsstigi, þ.á.m. er leikvöllur á Klambratúni, stígur á milli Laugardalslaugar og tjaldsvæðisins í Laugardal og ævintýragarður í Gufunesi.
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra heldur opna fundi um Hvítbók um umbætur í menntamálum um allt land á næstunni. Hann leggur áherslu á þau meginmarkmið að bæta árangur í lestri, bæta námsframvindu í framhaldsskólum og efla verk- og tækninám. „Framtíðarsýn okkar er að ungt fólk á Íslandi hafi sömu tækifæri og jafnaldrar þess í löndum sem við viljum bera okkur saman við. Til að svo megi verða þarf að veita nemendum á Íslandi menntun sem stenst samanburð við það sem best gerist erlendis“. Fundirnir eru öllum opnir og eru kennarar, foreldrar og aðrir sem láta sig menntamál varða velkomnir.
Sjá Facebook-síðu um hvítbók um umbætur í menntamálum
Þriðjudagur 7. október 2014 kl. 20:00 – Grafarvogur – SAFNAÐARHEIMILI GRAFARVOGSKIRKJU
Vinaæfingar fyrir 10-12 ára stelpur (2002-2004) verða
þriðjudaginn 7. október, miðvikudaginn 8. október og föstudaginn 10. október. Vinavikunni lýkur með pizzuveislu eftir síðustu æfinguna.
…
Það kostar ekkert að mæta á vinavikuna. Þó hér sé um að ræða vinaviku fyrir 10-12 ára stelpur þá hvetjum við allar stelpur til að koma í körfu. Æfingataflan er á fjolnir.is. Hér að neðan er æfingatafla 10-12 ára stúlknanna:
Mán: 17:00 – 18:00 Dalhús (þjálfari Moné)
Þri: 16:50 – 18:00 Vættaskóli Borgir (þjálfari Bonnie)
Mið: 14:30 – 15:20 Dalhús (þjálfari Bonnie)
Fös: 14:30 – 15:30 Dalhús (þjálfari Bonnie)
Á myndinni eru Bonnie og stelpurnar með bikar fyrir að vera Reykjavíkurmeistarar í haust.