• HEIM
  • HAFÐU SAMBAND
facebook
email
Helgihald kyrruviku og páska í Grafarvogskirkju
Fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur 12. mars 2025
Keldnaland – niðurstöður samkeppni
Mjólkurbikar KSÍ 2024
Frábær árangur hjá 4 flokki kvenna í knattspyrnu á Barcelona girls Cup:
  • HEIM
  • FRÉTTIR
  • MYNDIR
    • MYNDIR ÚR HVERFINU
  • HVERFIÐ OKKAR
    • VIÐBURÐIR
    • GALLERÍ KORPÚLFSSTAÐIR
    • ATVNNULÍFIÐ
      • VERSLUNARKJARNAR
        • BREKKUHÚSUM
        • HVERAFOLD
        • KORPUTORG
        • LAUFRIMA 21
        • SPÖNGIN
      • Sorpa
        • HVERFISSKIPULAG REYKJAVÍKUR
        • Hlutverk
        • Pappír er ekki rusl
    • FÉLAGASAMTÖK
      • KORPÚLFAR – FÉLAG ELDRI BORGARA Í GRAFARVOGI
      • SKÁTARNIR
    • GRAFARVOGSKIRKJA
      • Fermingar 2020
      • KIRKJUBYGGINGIN
      • LOGAFOLD SAFNAÐARBLAÐ
    • GÖNGU OG HJÓLALEIÐIR
    • HVERFISRÁÐ
      • HVERFIÐ Í TÖLUM
    • Heilsugæsla í Grafarvogi
    • ÍTR
      • GUFUNESBÆR
    • KORT AF GRAFARVOGI
    • MENNING OG LISTIR
      • KARLAKÓR GRAFARVOGS
      • MENNINGARHÚS SPÖNGINNI
    • SAGA GRAFARVOGS
      • KORPÚLFSSTAÐIR
    • SKÓLARNIR Í GRAFARVOGI
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐVAR
      • FRAMHALDSSKÓLAR
      • FRÍSTUNDAHEIMILI
      • HEIMILI OG SKÓLI – LANDSSAMTÖK FORELDRA
        • FORELDRASÁTTMÁLINN
      • LEIK- OG GRUNNSKÓLAR
      • TÓNLISTARSKÓLINN
      • TÓNSKÓLI HÖRPUNNAR
    • STOLT GRAFARVOGS
    • ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR
      • DAGFORELDRAR
        • DAGFORELDRAR Í HVERFINU
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐ Í SPÖNG
      • ELDRI BORGARAR
      • FERÐAÞJÓNUSTA FATLAÐS FÓLKS
      • FÉLAGSLEG RÁÐGJÖF
      • FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR
      • FJÁRHAGSAÐSTOÐ
      • SÉRFRÆÐIAÐSTOÐ VIÐ GRUNNSKÓLA
      • SKAMMTÍMAVISTUN ÁLFALAND
  • AÐSENT EFNI
    • DALE CARNEGIE
      • NÆSTA KYNSLÓÐ
    • TAPAÐ – FUNDIÐ
    • JÓLIN Í GRAFARVOGINUM
  • ÍÞRÓTTIR
    • FJÖLNIR
      • Sumarnámskeið 2019
      • Sumarnámskeið 2018
      • Sumarnámskeið 2016
    • GOLFKLÚBBUR REYKJAVÍKUR – KORPA
    • ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVERA
    • GRAFARVOGSLAUG
      • ALMENNAR UPPLÝSINGAR
  • UM OKKUR

Aðsent efni

Hugmyndir að betri Reykjavík

23 maí 2016
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Betri hverfi, betri hverfi reykjavík 2016, Grafarvogur., Hugmundir, Skemmtilegt

Betri Reykjavík IIHverfið mitt verður opnað á miðvikudag en þar geta íbúar sett inn hugmyndir að nýframkvæmdum og viðhaldsverkefnum í Reykjavík.  Mögulegt verður að setja hugmyndir á vefinn betrireykjavik.is frá miðvikudegi 25. maí til og með 15. júní.

Þetta er í fimmta sinn sem efnt er til hugmyndasöfnunar um slík verkefni á Betri Reykjavík og hafa nær  600 hugmyndir orðið að veruleika fyrir tilstilli þess. Að þessu sinni verður 50% meira fé ráðstafað til þessara verkefna, þ.e. 450 milljónum í stað 300 milljóna fyrri ár.

Íbúar ákveða hvað verður framkvæmt

Hugmyndasöfnun stendur í þrjár vikur og að henni lokinni þann 15. júní tekur fagfólk við og metur hugmyndirnar, gerir áætlanir um kostnað og kynnir fyrir hverfisráðum borgarinnar.  Þau stilla upp 20 verkefnum sem íbúar kjósa um upp að vissri upphæð, sem er eins og áður segir 50% hærri en áður.

Íbúakosningar verða 1. – 8. nóvember 2017 og í kjölfarið verða verkefni boðin út til framkvæmda með góðum fyrirvara fyrir sumarið 2017.  Gert er ráð fyrir að góður fyrirvari útboðsverka geti leitt til hagstæðari tilboða þar sem framkvæmdatími er rýmri en áður.

Myndarlegri hugmyndir

Vefsíðan Betri Reykjavík hefur verið endurbætt þannig að nú geta íbúar sett inn ljósmyndir eða teikningar með hugmyndum sínum til að skýra þær betur út og gera framsetningu þeirra líflegri. Hugmyndasmiðir geta einnig deilt sínu framlagi á samfélagsmiðla til að vekja athygli annarra á hugmyndunum. Einnig er gert ráð fyrir að staðsetning sé sett inn á kort þegar hugmynd er sett inn og þannig mun myndast gott yfirlit um hugmyndaríkustu svæðin.

Hverfið mitt – verkáætlun og tímasetningar

Verkefnið í heild er í fjórum fösum. Hugmyndasöfnun, úrvinnsla, kosningar og framkvæmd.

 

Helstu tímasetningar eru þessar:

Hugmyndasöfnun í þrjár vikur – 25. maí – 15. júní 2016.

  • Fagteymi hjá umhverfis- og skipulagssviði metur innkomnar hugmyndir.
  • Hverfisráðin í Reykjavík stilla upp 20 verkefnum í hverjum borgarhluta til kosninga.
  • Rafræn kosning um verkefni til framkvæmda – 1. – 8. nóvember 2016.
  • Undirbúningur útboðs. Verkhönnun verkefna og gerð útboðsgagna.
  • Framkvæmd apríl til september 2017.

 

______________

Í frétt á vef Reykjavíkurborgar er myndefni >  http://reykjavik.is/frettir/hugmyndir-ad-betri-reykjavik

 

 

10-11-2686-Maitilbod-skjar-05Stólpi auglýsing stór II

 

Email, RSS Follow

Knattspyrnudeild Fjölnis og Keiluhöllin Egilshöll undirrita samstarfssamning

20 maí 2016
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Fjölnir, Fjölnir knattspyrna, Grafarvogur, Grafarvogur., Keiluhöllin, Samstarfssamningur

SamstarfssamningurFrá undirritun á samstarfs-/styrktarsamningi Keiluhallarinnar og knattspyrnudeildar Fjölnis nú í hádeginu.
Árni formaður knd ásamt Simma og Jóa Keiluhallarmönnum og Gumma Kalla og Kamillu leikmönnum meistaraflokka Fjölnis.
Við þökkum Keiluhöllinni fyrir öflugan stuðning og væntum við mikils af samstarfinu næstu árin

 

 

 

 

 

 

 

10-11-2686-Maitilbod-skjar-05Stólpi auglýsing stór II

Email, RSS Follow

Ritsmiðja með rappara!

19 maí 2016
Baldvin Berndsen
0

Kött Grá Pje leiðbeinir krökkunumMenningarhús Spöngin FM

Menningarhús Spönginni, mánudag 13. – fimmtudag 16. júní

Dagana 13.-16. júní kl. 9:30-12:00 verður ritsmiðja fyrir 9–13 ára krakka á Borgarbókasafninu í Spönginni.

Kött Grá Pje rappari og rithöfundur (einnig þekktur sem Atli Sigþórsson) verður smiðjustjóri.

Markmiðið er fyrst og fremst að örva sköpunarkraft barnanna til að skrifa texta sér til ánægju.

Ekkert þátttökugjald, en skráning nauðsynleg, sendið skilaboð á spongin@borgarbokasafn.is, skráning hefst 17. maí.

Dagsetning viðburðar: Kátir krakkar

mánudagur, 13. júní 2016

Staðsetning viðburðar:

  • Spöngin

Viðburður hefst:

09:30

Viðburður endar:

12:00
Stólpi auglýsing stór II

 

 

 

 

10-11-2686-Maitilbod-skjar-05

 

 

Email, RSS Follow

Borgarstjórinn býður til opins fundar í Ráðhúsinu

19 maí 2016
Kristjan Sigurdsson
0

AthafnaborgBorgarstjórinn í Reykjavík býður á föstudagsmorgun til opins fundar um uppbyggingu atvinnustarfsemi í Reykjavík og góða borgarþróun. Fjallað verður um stærstu verkefnin í atvinnuuppbyggingu í dag og á næstu árum. Dregin verður upp mynd af gæðum borgarsamfélagsins og hvernig við tryggjum þau.

Meðal fyrirlesara á föstudag eru Þorsteinn Hermannsson nýráðinn samgöngustjóri borgarinnar og Eric Holding, arkitekt og borgarhönnuður, en hann hefur yfir 25 ára reynslu af borgarhönnun víða um heim. Hann vakti meða annars athygli fyrir verðlaunatillögur sínar að nýju hverfi í Urriðaholti í Garðabæ. Undanfarin ár hefur hann unnið að umbreytingu Battersea hverfisins í London sem er eitt stærsta þróunarverkefni á blandaðri byggð í Evrópu í dag auk þess að vinna að borgarhönnun í Prag og San Francisco.  Bók Erics, Staged Architecture, var árið 2000 valin bók ársins 2000 í flokki arkitektabóka af Sunday Times.

Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar eru málstofustjóri og hún heldur jafnframt erindi.

Dagskrá opins fundar í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 20. maí

 

8:30        Húsið opnar – kaffiveitingar

 

9:00        Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri: Athafnaborg í örum vexti
–  uppbygging innviða og atvinnuhúsnæðis í Reykjavík

 

10:05     Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri Umhverfis- og skipulagssviðs:
Að innleiða aðalskipulag – borg á breytingartímum

 

10:20     Þorsteinn Hermannsson, samgöngustjóri:
Samgöngur í 300 þúsund manna borg
10:45     Eric Holding, arkitekt og borgarhönnuður:
Creating a sense of place together

 

Email, RSS Follow

Hvar eru Valli og vinir hans? | Ratleikur

19 maí 2016
Baldvin Berndsen
0

Valli og vinir hans verða á ferli á bókasafninu í Spönginni dagana 19.-30. maí.

Endilega lítið við og farið í skemmtilegan ratleik þar sem markmiðið er að finna þau öll. Svarið tvemur spurningum í lok ratleiksins og þið gætuð átt möguleika á að vinna bók um Valla.

Safnið er opið mán-fim 10:00-19:00, fös 11:00-19:00 og lau 12:00-16:00. Hægt er að fara í ratleikinn hvenær sem er á þessum tímum.

Allir velkomnir!Valli og vinir

Dagsetning viðburðar:

Fimmtudagur, 19. maí 2016

Staðsetning viðburðar:

  • Spöngin

Viðburður hefst: Menningarhús Spöngin FM

10:00

Viðburður endar:

19:00
Stólpi auglýsing stór II
Email, RSS Follow

Jóhann Arnar skákmeistari Rimaskóla annað árið í röð

18 maí 2016
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Barnastarf, Börn, Grafarvogur, Krakkar, Rimaskóli, Skák, Skemmtun, Skólastarf

Jóhann ArnarJóhann Arnar Finnsson í 10-bekk Rimaskóla sigraði á Skákmóti Rimaskóla 2016 eftir harða baráttu við systkinin Nansý og Joshua Davíðsbörn.

Skákmótið var nú haldið í 23. skiptið og mættu 27 nemendur skólans til leiks. Tefldar voru sex umferðir og mótið var allan tímann jafnt og spennandi. Jóhann Arnar sem vann nú mótið annanð árið í röð hlaut 5,5 vinninga af 6 mögulegum. Nansý Davíðsdóttir varð í öðru sæti með 5 vinninga og tapaði aðeins skákinni gegn Jóhanni Arnari i 4. umferð.

Joshua bróðir hennar sem er í 5. bekk varð 3. á mótinu eftir að vera jafn Jóhanni Arnari fyrstu fimm umferðirnar. Hann tapaði fyrir systur sinni í lokaumferð. Arnór Gunnlaugsson 5. bekk kom í mark jafn Joshua að vinningum. Hann er einn af 10 efnilegum skákmönnum 5. bekkjar sem hafa verið í þjálfun hjá Birni Ívari Karlssyni og Helga Ólafssyni í vetur. IMG_8840

Valgerður Jóhannesdóttir varð í örðu sæti stúlkna og Sigríður Steingrímsdóttir í 4. bekk varð þriðja. Alls tóku 9 stúlkur þátt í mótinu eða 33% þátttakenda. Að vanda voru eftirsótt verðlaun í boði og hlutu 12 þátttakendur gjafabréf upp á Domino´s pítsu.

Jóhann Arnar fékk afhenta tvo glæsilega verðlaunagripi í mótslok, annar þeirra er farandbikar með nöfnum allra skákmeistara Rimaskóla frá upphafi.

Þar er nafn Hjörvars Steins Grétarssonar oftast ritað eða alls 7 sinnum og nafn Olivers Arons Jóhannessonar þrívegis.

 

 

10-11-2686-Maitilbod-skjar-05Stólpi auglýsing stór II

 

Email, RSS Follow

Sumarnámskeið UMF.Fjölnis – skráning hafin

17 maí 2016
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Barnastarf, Börn, Dalhús, Fjölnir fimleikar, Fjölnir handbolti, Fjölnir knattspyrna, Fjölnir körfubolti, Frístundaheimili Grafarvogi, Frjálsar íþróttir, Grafarvogur, Skemmtilegt

Nú er búið að opna fyrir allar skráningar á sumarnámskeið félagsins í Nóra skráningarkerfi félagsins https://fjolnir.felog.is   

Fimleikadeild og knattspyrnudeild bjóða upp á heilsdagsnámskeið í samvinnu við Gufunesbæ skráningar á þau námskeið eru í gegnum skráningarkerfi Reykjavíkurborgar http://sumar.fristund.is 

Allar nánari upplýsingar um sumarnámskeiðin okkar eru í skjölunum í viðhengi og á heimasíðu félagsins undir líknum SUMARNÁMSKEIÐ http://www.fjolnir.is/fjolnir/sumarnamskeid

Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofufélagsins í síma 578-2700  eða með tölvupóst á skrifstofa@fjolnir.is ef ykkur vantar aðstoð við skráningu eða eruð með einhverjar fyrirspurnir.

 

Bestu kveðjur,

Málfríður Sigurhansdóttir

Íþrótta- og félagsmálastjóri

Ungmennafélagsins Fjölnir

 

 

10-11-2686-Maitilbod-skjar-05

Stólpi auglýsing stór II

Email, RSS Follow

Sumaræfingar fimleikaiðkenda

16 maí 2016
Kristjan Sigurdsson
0

Fimleikar 2016Sumarstarf  Fimleikadeildar Fjölnis hefst mánudaginn 13.júní og skráning er hafin. Iðkendum fimleikadeildar sem eru 6 ára og eldri stendur til boða að æfa í sumar. Í meðfylgjandi auglýsingu má finna allar upplýsingar um æfingatíma og verð.

/assets/Sumaræfingar_2016.pdf

Skráning fer fram í gegnum heimasíðu Fjölnis HÉR.

Email, RSS Follow

Fjölnishlaupið 26. maí

15 maí 2016
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Barnastarf, Börn, Fjölnishlaup 2016, Frjálsar íþróttir, Grafarvogskirkja, Grafarvogur.

Fjölnishlaup2016-kortNú líður senn að hinu árlega Fjölnishlaupi sem er einn af elstu íþróttaviðburðum hverfisins, en þetta er í 28. sinn sem hlaupið er haldið. Hlaupið verður ræst fimmtudaginn 26. maí kl 19:00 við Grafarvogslaug. Frjálsíþróttadeild Fjölnis heldur hlaupið með dyggri aðstoð Hlaupahóps Fjölnis sem nú er orðinn hluti af starfsemi deildarinnar. Keppt verður í tveimur vegalengdum 10 km og 1,4 km skemmtiskokk. Í ár verður hlaupaleiðinni í 10 km hlaupinu breytt lítillega frá því sem hún hefur verið undanfarin ár og hlaupið verður um nýju brýrnar yfir Geirsnefið. Á myndinni má sjá kort af hlaupaleiðunum.

Lengi vel gekk hlaupið undir nafninu 1. maí hlaup Fjölnis, en árið 2009 fór það inn í sumarhlauparöð Powerade þar sem fimm hlaup á vegum frjálsíþróttafélaganna í Reykjavík og Reykjavíkurmaraþons telja til stiga. Var þá hlaupið flutt til seinni hluta maí þannig að hlaupin fimm í hlauparöðinni eru á um eins mánaðar fresti yfir sumartímann. Sjá nánar á heimasíðu hlaupanna: http://marathon.is/powerade

Boðið er upp á tvær vegalegndir í hlaupinu; 1,4 km skemmtiskokk fyrir yngri aldurshópa og fjölskyldur og 10 km hlaupaleið sem telur til stiga í Powerade hlauparöðinni. Flögutímataka verður í 10 km hlaupinu, en hlaupaleiðin er mjög flöt nema á upphafs- og lokakílómetra og hefur reynst vænleg til bætinga. Brautin er löglega mæld og því eru met sem kunna að falla á brautinni tekin gild í afrekaskrá FRÍ.

Þátttökugjald fyrir 10 km er 2.000 kr í forskráningu á hlaup.is til miðnættis 25. maí en 2.500 kr ef skráð er samdægurs á staðnum. Skemmtiskokkið kostar 1.000 kr á mann og hámark 3.000 kr fyrir fjölskyldu (4 og fleiri). Ekki er hægt að forskrá sig í skemmtiskokkið. Afhending gagna og skráning á staðnum verður kl. 17:00-18:45 í anddyri Grafarvogslaugar í Íþróttamiðstöðinni í Dalhúsum. Hægt er að skrá sig hér.

Verðlaunagripir verða veittir fyrir fyrstu þrjú sætin í 10 km hlaupi og 1. sæti í skemmtiskokki hjá báðum kynjum auk þess sem veglegir farandbikarar eru fyrir 1. sæti karla og kvenna í 10 km hlaupi. Verðlaunapeningar eru veittir fyrir 1. sæti í öllum aldursflokkum í báðum vegalengdum og þátttökupeningar eru í skemmtiskokki. Útdráttarverðlaun verða dregin út eftir hlaup. Powerade drykkir verða í boði Vífilfells við 5 km snúningspunkt og í markinu. Frítt er í sund eftir hlaupið.

Aldursflokkar í hlaupunum eru:

10 km hlaup:

18 ára og yngri, 19-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára, 60 ára og eldri.

Skemmtiskokk:

10 ára og yngri, 11-12 ára, 13-14 ára, 15 ára og eldri.

Frjálsíþróttadeildin hvetur alla til að koma og taka þátt í hlaupinu og hefur verið gaman að sjá afrekshlaupara jafnt sem frístundaskokkara taka þátt og hafa gaman af. 10 km hlaupaleiðin hefur reynst einkar vel til bætinga. Í skemmtiskokkinu er ávallt góð stemmning og er það sérstaklega vel til fallið fyrir yngri hlaupara. Einnig er gaman fyrir æfingahópa í Fjölni að brjóta upp starfið með þátttöku í hlaupinu og fyrir fjölskyldur í Grafarvogi að taka þátt.

 

10-11-2686-Maitilbod-skjar-05Stólpi auglýsing stór II

 

Email, RSS Follow
« First‹ Previous87888990919293Next ›Last »
banner
banner
banner
banner
banner
banner

Gagnlegir tenglar

  • HEILSUGÆSLAN
  • MIÐGARÐUR
  • HVERFIÐ MITT
  • MOJE_S_SIEDZTWO
  • MANO_KAIMYNIST_JE
  • MY NEIGHBOURHOOD

Börnin okkar

  • FRAMHALDSSKÓLAR
  • GUFUNESBÆR
  • LEIK OG GRUNNSKÓLAR
  • SKÁTAFÉLAGIÐ HAMAR
  • TÓNLISTARSKÓLINN

GRAFARVOGSBÚAR Á FLICKR

Allur réttur áskilinn © 2024
www.grafarvogsbuar.is