Kynning | Skákakademían Menningarhús Spönginni, laugardaginn 28. maí kl. 13-15

Skákmót Fjölnis sumardaginn 1. 2015 (4)Sumaskákmót FjölnisSkákakademían á leik!

Menningarhús Spönginni, laugardaginn 28. maí kl. 13-15

Viltu læra að tefla eða rifja upp gamlar hrókeringar? Skákakademía Reykjavíkur heimsækir Borgarbókasafnið Spönginni og kynnir starfsemi sína, kennir ungum sem öldnum mannganginn og leiðir gesti inn í leyndardóma skáklistarinnar.

Skákakademía Reykjavíkur hefur starfað frá árinu 2008 og vinnur ötullega að eflingu skáklistarinnar í Reykjavíkurborg. Stefán Bergsson framkvæmdastjóri akademíunnar fræðir gesti safnsins og taflborð verða á staðnum.

Engin brögð í tafli, allir velkomnir!

Umsjón: Sigríður Stephensen, sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.isSkák

 

Dagsetning viðburðar:

Laugardagur, 28. maí 2016

Staðsetning viðburðar:

Viðburður hefst:

13:00

Viðburður endar:

15:00

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.