• HEIM
  • HAFÐU SAMBAND
facebook
email
Dagur gegn einelti – Hvatningarverðlaun
Grafarvogskirkja
Korpúlfar félag eldri borgara í Grafarvogi
Árgangamót Fjölnis í knattspyrnu
Ungmennafélagið Fjölnir 
  • HEIM
  • FRÉTTIR
  • MYNDIR
    • MYNDIR ÚR HVERFINU
  • HVERFIÐ OKKAR
    • VIÐBURÐIR
    • GALLERÍ KORPÚLFSSTAÐIR
    • ATVNNULÍFIÐ
      • VERSLUNARKJARNAR
        • BREKKUHÚSUM
        • HVERAFOLD
        • KORPUTORG
        • LAUFRIMA 21
        • SPÖNGIN
      • Sorpa
        • HVERFISSKIPULAG REYKJAVÍKUR
        • Hlutverk
        • Pappír er ekki rusl
    • FÉLAGASAMTÖK
      • KORPÚLFAR – FÉLAG ELDRI BORGARA Í GRAFARVOGI
      • SKÁTARNIR
    • GRAFARVOGSKIRKJA
      • Fermingar 2020
      • KIRKJUBYGGINGIN
      • LOGAFOLD SAFNAÐARBLAÐ
    • GÖNGU OG HJÓLALEIÐIR
    • HVERFISRÁÐ
      • HVERFIÐ Í TÖLUM
    • Heilsugæsla í Grafarvogi
    • ÍTR
      • GUFUNESBÆR
    • KORT AF GRAFARVOGI
    • MENNING OG LISTIR
      • KARLAKÓR GRAFARVOGS
      • MENNINGARHÚS SPÖNGINNI
    • SAGA GRAFARVOGS
      • KORPÚLFSSTAÐIR
    • SKÓLARNIR Í GRAFARVOGI
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐVAR
      • FRAMHALDSSKÓLAR
      • FRÍSTUNDAHEIMILI
      • HEIMILI OG SKÓLI – LANDSSAMTÖK FORELDRA
        • FORELDRASÁTTMÁLINN
      • LEIK- OG GRUNNSKÓLAR
      • TÓNLISTARSKÓLINN
      • TÓNSKÓLI HÖRPUNNAR
    • STOLT GRAFARVOGS
    • ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR
      • DAGFORELDRAR
        • DAGFORELDRAR Í HVERFINU
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐ Í SPÖNG
      • ELDRI BORGARAR
      • FERÐAÞJÓNUSTA FATLAÐS FÓLKS
      • FÉLAGSLEG RÁÐGJÖF
      • FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR
      • FJÁRHAGSAÐSTOÐ
      • SÉRFRÆÐIAÐSTOÐ VIÐ GRUNNSKÓLA
      • SKAMMTÍMAVISTUN ÁLFALAND
  • AÐSENT EFNI
    • DALE CARNEGIE
      • NÆSTA KYNSLÓÐ
    • TAPAÐ – FUNDIÐ
    • JÓLIN Í GRAFARVOGINUM
  • ÍÞRÓTTIR
    • FJÖLNIR
      • Sumarnámskeið 2019
      • Sumarnámskeið 2018
      • Sumarnámskeið 2016
    • GOLFKLÚBBUR REYKJAVÍKUR – KORPA
    • ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVERA
    • GRAFARVOGSLAUG
      • ALMENNAR UPPLÝSINGAR
  • UM OKKUR

Aðsent efni

Reykvísk ungmenni sigursæl á Norðurlandamóti

27 maí 2016
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Grafarvogur, ÍTR, Íþróttir barna, Reykvísk ungmenni

ghn-hopurinn-2016Grunnskólamót höfuðborga Norðurlanda hófst í Helsinki á mánudaginn og lýkur í dag fimmtudag. Fyrir hverja borg keppir 41 nemandi, 14 ára og yngri, í knattspyrnu drengja, handknattleik stúlkna og frjálsum íþróttum drengja og stúlkna. Reykvísku ungmennin hafa staðið sig einstaklega vel á mótinu í ár og verið sér og sínum til sóma innan vallar sem utan.

Lið Reykjavíkur vann mótið í knattspyrnu drengja. Þeir sigruðu lið Kaupmannahafnar 3-0, Osló 2-1, Stokkhólm 7-2 og Helsinki 12-0. Þetta er þriðja árið í röð sem lið Reykjavíkur sigrar í knattspyrnu drengja á þessu móti.  

Í handknattleik stúlkna varð lið Reykjavíkur í öðru sæti. Þær sigruðu Helsinki 23-10, Stokkhólm 11-10 og Kaupmannahöfn 12-11 en biðu lægri hlut fyrir sigurvegurum mótsins liði Osló 11-25. Þetta er besti árangur sem Reykjavík hefur náð í handknattleik á þessu móti og mikil gleði hjá hópnum með niðurstöðuna. 

fotboltiFrjálsíþróttalið stúlkna varð í 3.sæti í stigakeppni mótsins og frjálsíþróttalið drengja í 5.sæti. Keppt var í 5 greinum frjálsíþrótta: 100 m hlaupi, kúluvarpi, hástökki, langstökki og 800 m hlaupi. Bestum árangri í liði Reykjavíkur náðu Signý Hjartardóttir sem sigraði í kúluvarpi og Kristján Viggó Sigfinnsson sem var í öðru sætinu í hástökki. 

Grunnskólamót höfuðborga Norðurlanda hefur verið haldið að vori árlega frá árinu 1948 fyrir utan eitt ár. Frá upphafi hafa höfuðborgirnar Kaupmannahöfn, Osló, Helsinki og Stokkhólmi tekið árlega þátt í mótinu en Reykjavík tók fyrst þátt í mótinu árið 2006. Reykjavík hefur tvisvar sinnum haldið mótið, árið 2011 og árið 2014. Í úrvalsliði Reykjavíkur sem tekur nú þátt í mótinu er 41 keppandi, fjórir þjálfarar og tveir fararstjórar. Keppendur í úrvalsliði Reykjavíkur eru 15 leikmenn í knattspyrnu drengja , 10 leikmenn í handknattleik stúlkna, 8 drengir og 8 stúlkur í frjálsum íþróttum.  

frjalsar-stelpurnarHér má finna lista yfir þátttakendur Reykjavíkur í mótinu: http://ibr.is/grunnskolamot-hofudborga-nordurlanda/urvalslie-reykjavikur

Hér má finna nánari upplýsingar um Grunnskólamót höfuðborga Norðurlandanna: http://ibr.is/grunnskolamot-hofudborga-nordurlanda

Á Facebooksíðu ÍBR má finna myndir og umfjöllun um mótið: https://www.facebook.com/%C3%8D%C3%BEr%C3%B3ttabandalag-Reykjav%C3%ADkur-209177262441263/ 

f.h. ÍBR

Anna Lilja Sigurðardóttir, Upplýsingafulltrúi
s. 535 3705/ 868 6361

 

frjalsar frjalsar-strakarnir handbolti

 

 

 

 

 

 

 

 

10-11-2686-Maitilbod-skjar-05Stólpi auglýsing stór II

 

 

 

Borgir – 13.00-16.00 Vöfflu-og kaffisala

26 maí 2016
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Brogir, Félag eldriborgara í Grafarvogi, Grafarvogur., Korpúlfar, Vöfflukaffi Korpúlfa

Skólahljómsveit Grafarvogs kemur fram.

Vöfflu- og kaffisala til styrktar Koprúlfum ásamt sýningu og sölu á handverki Korpúlfa.

Grafarvogsdagurinn dagskrá hérna……

 

 

Vöfflukaffi 2016Korpúlfar

 

Kynning | Skákakademían Menningarhús Spönginni, laugardaginn 28. maí kl. 13-15

26 maí 2016
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Barnastarf, Börn, Grafarvogur., Rimaskóli, Safnaðarstarf, Skák akademían, Skemmtilegt, Skemmtun, Skólastarf, Spöngin, Verslunarmiðstöðin Spöngin

Skákmót Fjölnis sumardaginn 1. 2015 (4)Sumaskákmót FjölnisSkákakademían á leik!

Menningarhús Spönginni, laugardaginn 28. maí kl. 13-15

Viltu læra að tefla eða rifja upp gamlar hrókeringar? Skákakademía Reykjavíkur heimsækir Borgarbókasafnið Spönginni og kynnir starfsemi sína, kennir ungum sem öldnum mannganginn og leiðir gesti inn í leyndardóma skáklistarinnar.

Skákakademía Reykjavíkur hefur starfað frá árinu 2008 og vinnur ötullega að eflingu skáklistarinnar í Reykjavíkurborg. Stefán Bergsson framkvæmdastjóri akademíunnar fræðir gesti safnsins og taflborð verða á staðnum.

Engin brögð í tafli, allir velkomnir!

Umsjón: Sigríður Stephensen, sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.isSkák

 

Dagsetning viðburðar:

Laugardagur, 28. maí 2016

Staðsetning viðburðar:

  • Spöngin

Viðburður hefst:

13:00

Viðburður endar:

15:00

Sláttur hafinn í Reykjavík

26 maí 2016
Baldvin Berndsen
0
Grafarvogur, Grafarvogur., Grunnskólar Grafarvogs, Reykjavík, Rimaskóli, Skemmtilegt, Sláttur í Reykjavík

Sláttur IISláttur í Reykjavík hófst í byrjun vikunnar og er það nokkrum dögum fyrr en á síðasta ári enda sprettan meiri nú en þá, að sögn Björns Ingvarssonar, deildarstjóra þjónustumiðstöðvar borgarlandsins.

Það eru starfsmenn verktaka sem sinna slætti meðfram þjóðvegum í þéttbýli, svo sem við Hringbraut og Miklubraut, Breiðholtsbraut og Gullinbrú.  Hluti sumarstarfsfólks er nú þegar komið til vinnu en fleiri koma til starfa í næstu viku og þá hefst sláttur fyrir alvöru.

Nær 500 hektarar slegnir í hverri umferð

Svæðin meðfram þjóðvegunum er um 118 hektara, sem áætlað er að slegnir verði fjórum sinnum yfir sumarið.  Almenningsgarðar, svo sem Laugardalur, Hljómskálagarður, Klambratún, Grundargerði, Austurberg og Seljatjörn eru um 22 hektarar, sem slegnir eru allt að vikulega.
Önnur svæði, svo sem opin svæði í íbúðahverfum og lóðir grunn- og leikskóla eru um 334 hektara sem áætlað er að slá um þrisvar sinnum, en það fer þó eftir sprettu hverju sinni og á hverjum stað.
Í heildina eru þetta um 474 hektarar sem grassláttur tekur til.  Hektari er skiki 100 metrar á hlið, þ.e. 10.000 fermetrar og það eru því  4,7 milljónir fermetrar sem slegnir eru margoft á hverju sumri.

Líffræðileg fjölbreytni í náttúrulegri borg

Í sumar á að skoða breytingar á litlum hluta, mögulega 10 – 20 hekturum af þeim 474 sem slegnir eru í dag með því breyta þeim í náttúrulegri svæði .  Oft með því að planta trjágróðri og eða öðrum gróðri. Þórólfur Jónsson garðyrkjustjóri segir að með slíkum breytingum sé stoðum rennt undir líffræðilega fjölbreytni, sem geri svæðin sjálfbærari og skapi búsvæði fyrir fugla og aðrar lífverur.
Svæðin sem verða fyrir valinu eru víða um borgina og verða þau valin út frá nokkrum þáttum, einu eða fleirum eftirtalinna:
  • jaðarsvæði, oft meðfram umferðaræðum
  • svæði sem liggja að náttúrulegum svæðum, auðveldara að stækka og tengja við svæði sem þegar hefur náttúrulegt yfirbragð
  • svæði með stakstæðum trjám í grasi, þar er hætta á að sláttutæki skemmi trén
  • grassvæði milli trjálunda þar sem má sameina svæði og fá stærri samfelld náttúrulegri svæði
  • magur jarðvegur og því gisinn grasvöxtur, í slíkum svæðum er auðveldara að þróa svæðið yfir í náttúrulegt svæði því gras er duglegt í samkeppni
  • víðir og ýmiss blómgróður er áberandi í svæðinu, þá er þegar kominn áhugaverður gróður í svæðið
  • brattar manir sem eru erfiðar í slætti
Í tillögum sem samþykktar voru í umhverfis- og skipulagsráði er gert ráð fyrir mismunandi aðgerðum allt frá að hætti slætti yfir í að planta trjágróðri og plöntum.  Gert er ráð fyrir að svæðunum verði breytt í áföngum og í ljósi þeirrar reynslu sem fæst af verkefninu.
Meðfylgjandi listi var lagður fram í umhverfis- og skipulagsráði í vetur.  Farið verður nokkur þessara svæða strax eða teknir áfangar.  Nokkur svæði bíða haustsins þar sem ekki næst að gróðursetja trjágróður fyrr og þá kemur í ljós hversu mörgum svæðum verður breytt á þessu ári.
Sígandi lukka er best og því ágætt að fara hægt af stað og fá reynslu af aðgerðum fyrir framhaldið.
10-11-2686-Maitilbod-skjar-05Stólpi auglýsing stór II

Korpúlfsstaðir – opið hús á Grafarvogsdaginn

26 maí 2016
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Gallerí Korpúlfsstaðir, Grafarvogsdagurinn, Grafarvogur, Skemmtilegt

Korpúlfsstaðir – 14:00-18:30
14:00-18:30 Listasýning og opin kaffistofa.
Gallerí Korpúlfsstaðir fagnar sínu fimmta starfsári um
þessar mundir.
Úrval fallegra listmuna eftir 11 listakonur sem reka
galleríið, en þær vinna í hina ýmsu miðla s.s. myndlist,
leirlist, textíl og skartgripahönnun.
Verið velkomin í hlýlega galleríið á Korpúlfsstöðum.
14:00 Skólahljómsveit Grafarvogs leikur fyrir gesti.
Máttarstólpinn afhentur.
15:00-17:00 Vinnustofa í sjálfbærri tónlist með Ara Hróðmarssyni
og Brasshópi Ýlis.
17:00-18:30 Tónleikar í boði ungs fólks í Grafarvogi.
Fram koma: Kæsingur, Erla Guðmundsdóttir,
Helga Fanney Malmberg og Kyrrð.

 

Sjá dagskrá dagsins hérna…..

 

 

 

 

32 börn og ungmenni fengu nemendaverðlaun

24 maí 2016
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Grafarvogur., Reykjavík, Skólar, Skólastarf, Verðlaun.

hopur3godNemendaverðlaun skóla- og frístundaráðs voru afhent í 14. sinn 23. maí og fór athöfnin fram í Vættaskóla í Grafarvogi.

Grunnskólarnir í borginni tilnefna nemendur til verðlaunanna og bárust að þessu sinni 32 tilnefningar um nemendur sem þykja hafa skarað fram fram úr í námi,  félagsfærni, virkni í félagsstarfi eða hafa sýnt frábæra frammistöðu á tilteknu sviði í skólastarfinu. Handhafar verðlaunanna voru úr 4. – 10. bekk og voru skólafélögum sínum fyrirmyndum á ýmsum sviðsum, s.s. í íþróttum, listum, samskiptahæfni, nýsköpun og tæknimennt.
Allir verðlaunahafar fengu bók og viðurkenningarskjal. Í ár fengu þeir bókina Koparborgin eftir Ragnhildi Hólmgeirsdóttur sem hlaut barnabókaverðlaun skóla- og frístundaráðs sem besta frumsamda íslenska bókin á árinu 2015 og yngri verðlaunahafar fengu bókina Ugla og Fóa og maðurinn sem fór í hundana eftir Ólaf Hauk Símonarson en Linda Ólafsdóttir fékk barnabókaverðlaunin fyrir myndskreytingar sínar í bókinni.
Við athöfnina í Vættaskóla léku nemendur á hljóðfæri, m.a. Eurovisionlög á píanó fiðlu og trommur.
Handhafar nemendaverðlauna 2016 eru:
Ingimundur  Bergmann Sigfússon 10. bekk Austurbæjarskóla
Berglind Björnsdóttir 10. bekk Árbæjarskóla
Kári Freyr Kristinsson 7. bekk Ártúnsskóla
Kristófer Karl Guðnason 9. bekk Breiðholtsskóla
Mikael Trausti Viðarsson 5. bekk Dalskóla
Mary Jemrio Soriano Malana 10. bekk Fellaskóla
Auðun Bergsson 8. bekk Foldaskóla
Brynhildur Hjaltested 7. bekk í Fossvogsskóla
Tómas Viðar Árnason 10. bekk í Hagaskóla
Sóley Nótt Jerzysdóttir 7. bekk í Hamraskóla
Benedikt Aron Sigurþórsson 10. bekk í Háaleitisskóla
Einar Þorri Arnarson 10. bekk í Hlíðaskóla
Ísak Richardshann 10. bekk í Hólabrekkuskóla
Stefanía Tera Hansen 6. bekk í Húsaskóla
Katla Björg Jónsdóttir 10. bekk í Kelduskóla
Jóhann Stígur Eiríksson 10. bekk í Klettaskóla
Jóhanna Líf Sigþórsdóttir 10. bekk í Klébergsskóla
Finnur Kaldi Jökulsson 10. bekk Landakotsskóla
Þorgils Máni Jónsson 10. bekk Laugalækjarskóla
Hlynur Þórhallsson 5. bekk Laugarnesskóla
Vigdís Selma Sverrisdóttir 7. bekk Melaskóla
Guðjón Ingi Rúnarsson 10. bekk Norðlingaskóla
Alexandra Naomí Ástudóttir 5. bekk Reykjavik International School
Sædís Ósk Gunnlaugsdóttir 10. bekk Rimaskóla
Anna Kolbrún Ólafsdóttir 7. bekk Selásskóla
Sóley Halldórsdóttir 10. bekk Seljaskóla
Dharma Elísabet Tómasdóttir 4. bekk í Skóla Ísaks Jónssonar
Rannveig Klara Guðmundsdóttir 10. bekk Sæmundarskóla
Jens Arinbjörn Jónsson 10. bekk Tjarnarskóla
Lovísa Halldórsdóttir 9. bekk Vogaskóla
Kristján Gylfi Þórisson 10. bekk Vættaskóla
Elínborg Una Einarsdóttir 9. bekk Ölduselsskóla

Grafarvogsdagurinn laugardaginn 28.maí – Gerum okkur glaðan dag!

23 maí 2016
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Féagsmiðstöðin Spönginni, Félag eldriborgara í Grafarvogi, Grafarvogsdagurinn 2016, Grafarvogskirkja, Grafarvogur., Grunnskólar Grafarvogs, Skemmtilegt, Skemmtun, Verslunarmiðstöðin Spöngin

Grafarvogsdagurinn, hverfishátíð Grafarvogsbúa, fer nú fram í 19. sinn laugardaginn 28. maí. Sem fyrr er markmið dagsins að sameina íbúa hverfisins og skapa vettvang til að hittast og gera sér glaðan dag.

Mikil vinna hefur verið lögð í dagskrárundirbúning og nú er komið að íbúum hverfisins að taka virkan þátt í því sem boðið verður upp á. Fjölmörg fyrirtæki í hverfinu styðja rausnarlega við bakið á verkefninu og eru þeim hér með færðar sérstakar þakkir fyrir þeirra framlag.

Gerum okkur glaðan dag á laugardaginn!

 

Skoða betur hérna

 

Grafarvogsdagurinn 2016skottsala2016-450pix

 

 

10-11-2686-Maitilbod-skjar-05

Stólpi auglýsing stór II

 

Hugmyndir að betri Reykjavík

23 maí 2016
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Betri hverfi, betri hverfi reykjavík 2016, Grafarvogur., Hugmundir, Skemmtilegt

Betri Reykjavík IIHverfið mitt verður opnað á miðvikudag en þar geta íbúar sett inn hugmyndir að nýframkvæmdum og viðhaldsverkefnum í Reykjavík.  Mögulegt verður að setja hugmyndir á vefinn betrireykjavik.is frá miðvikudegi 25. maí til og með 15. júní.

Þetta er í fimmta sinn sem efnt er til hugmyndasöfnunar um slík verkefni á Betri Reykjavík og hafa nær  600 hugmyndir orðið að veruleika fyrir tilstilli þess. Að þessu sinni verður 50% meira fé ráðstafað til þessara verkefna, þ.e. 450 milljónum í stað 300 milljóna fyrri ár.

Íbúar ákveða hvað verður framkvæmt

Hugmyndasöfnun stendur í þrjár vikur og að henni lokinni þann 15. júní tekur fagfólk við og metur hugmyndirnar, gerir áætlanir um kostnað og kynnir fyrir hverfisráðum borgarinnar.  Þau stilla upp 20 verkefnum sem íbúar kjósa um upp að vissri upphæð, sem er eins og áður segir 50% hærri en áður.

Íbúakosningar verða 1. – 8. nóvember 2017 og í kjölfarið verða verkefni boðin út til framkvæmda með góðum fyrirvara fyrir sumarið 2017.  Gert er ráð fyrir að góður fyrirvari útboðsverka geti leitt til hagstæðari tilboða þar sem framkvæmdatími er rýmri en áður.

Myndarlegri hugmyndir

Vefsíðan Betri Reykjavík hefur verið endurbætt þannig að nú geta íbúar sett inn ljósmyndir eða teikningar með hugmyndum sínum til að skýra þær betur út og gera framsetningu þeirra líflegri. Hugmyndasmiðir geta einnig deilt sínu framlagi á samfélagsmiðla til að vekja athygli annarra á hugmyndunum. Einnig er gert ráð fyrir að staðsetning sé sett inn á kort þegar hugmynd er sett inn og þannig mun myndast gott yfirlit um hugmyndaríkustu svæðin.

Hverfið mitt – verkáætlun og tímasetningar

Verkefnið í heild er í fjórum fösum. Hugmyndasöfnun, úrvinnsla, kosningar og framkvæmd.

 

Helstu tímasetningar eru þessar:

Hugmyndasöfnun í þrjár vikur – 25. maí – 15. júní 2016.

  • Fagteymi hjá umhverfis- og skipulagssviði metur innkomnar hugmyndir.
  • Hverfisráðin í Reykjavík stilla upp 20 verkefnum í hverjum borgarhluta til kosninga.
  • Rafræn kosning um verkefni til framkvæmda – 1. – 8. nóvember 2016.
  • Undirbúningur útboðs. Verkhönnun verkefna og gerð útboðsgagna.
  • Framkvæmd apríl til september 2017.

 

______________

Í frétt á vef Reykjavíkurborgar er myndefni >  http://reykjavik.is/frettir/hugmyndir-ad-betri-reykjavik

 

 

10-11-2686-Maitilbod-skjar-05Stólpi auglýsing stór II

 

Knattspyrnudeild Fjölnis og Keiluhöllin Egilshöll undirrita samstarfssamning

20 maí 2016
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Fjölnir, Fjölnir knattspyrna, Grafarvogur, Grafarvogur., Keiluhöllin, Samstarfssamningur

SamstarfssamningurFrá undirritun á samstarfs-/styrktarsamningi Keiluhallarinnar og knattspyrnudeildar Fjölnis nú í hádeginu.
Árni formaður knd ásamt Simma og Jóa Keiluhallarmönnum og Gumma Kalla og Kamillu leikmönnum meistaraflokka Fjölnis.
Við þökkum Keiluhöllinni fyrir öflugan stuðning og væntum við mikils af samstarfinu næstu árin

 

 

 

 

 

 

 

10-11-2686-Maitilbod-skjar-05Stólpi auglýsing stór II

« First‹ Previous87888990919293Next ›Last »
banner
banner
banner
banner
banner
banner

Gagnlegir tenglar

  • HEILSUGÆSLAN
  • AUSTURMIÐSTÖÐ
  • HVERFIÐ MITT
  • MOJE_S_SIEDZTWO
  • MANO_KAIMYNIST_JE
  • MY NEIGHBOURHOOD

Börnin okkar

  • FRAMHALDSSKÓLAR
  • GUFUNESBÆR
  • LEIK OG GRUNNSKÓLAR
  • SKÁTAFÉLAGIÐ HAMAR
  • TÓNLISTARSKÓLINN

GRAFARVOGSBÚAR Á FLICKR

Allur réttur áskilinn © 2025
www.grafarvogsbuar.is