- HEIM
- FRÉTTIR
- MYNDIR
- HVERFIÐ OKKAR
- AÐSENT EFNI
- ÍÞRÓTTIR
- UM OKKUR
Messa kl. 11:00 í Grafarvogskirkju. Fermingarbörnum í Rimaskóla og Foldaskóla er sérstaklega boðið ásamt fjölskyldum. Það verður stuttur fundur með þeim eftir messuna. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir og séra Sigurður Grétar Helgason þjóna. Kór Grafarvogskirkju syngur og organisti er Hákon Leifsson. Það verður sunnudagaskóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11:00. Umsjón hefur Þóra Björg og undirleikari er Stefán Birkisson.
Það verður Selmessa í Kirkjuselinu kl. 13:00. Séra Grétar Halldór prédikar og þjónar fyrir altari. Vox populi syngur og organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Sunnudagaskóli í Kirkjuselinu kl. 13:00. Umsjón hefur Bjarki Geirdal Guðfinnsson og undirleikari er Stefán Birkisson.
WOW Reykjavik International Games – Íþróttahátíð í Reykjavík 26.jan-5.feb
Íþróttahátíðin WOW Reykjavik International Games fer fram dagana 26.janúar til 5.febrúar næstkomandi. Í tilefni 10 ára afmælis leikanna verður dagskráin sérstaklega glæsileg og hluti af Vetrarhátíð.
Leikarnir hefjast á kynningarfundi fyrir fjölmiðla fimmtudaginn 26.janúar og enda með glæsilegri hátíðardagskrá þann 5.febrúar. Keppt verður í 19 íþróttagreinum þar sem reiknað er með þátttöku á sjötta hundrað erlendra gesta ásamt flestu af besta íþróttafólki okkar Íslendinga. Von er á mjög sterkum erlendum keppendum til landsins í öllum greinum. Má þar nefna heimsmeistara og heimsmethafa í kraftlyftingum, silfurverðlaunahafi á Ólympíuleikum í fimleikum, Evrópumeistara í sundi og bronsverðlaunahafa á Ólympíuleikum í júdó.
Í ár verður í fyrsta skiptiboðið uppá spennandi „Off Venue“ dagskrá þar sem allir sem vilja geta tekið þátt. Á „Off Venue“ dagskránni eru meðal annars hjólasprettur upp Skólavörðustíg, hátíðir í Laugardalshöll þar sem boðið verður uppá kvöldverð og skemmtiatriði, 5 km skemmtiskokk um miðbæ Reykjavíkur sem ber heitið WOW Northern Lights Run, spennandi ráðstefnur með þekktum erlendum fyrirlesurum og fleira skemmtilegt.
WOW Northern Lights Run er nýr og skemmtilegur hlaupaviðburður fyrir almenning sem fram fer laugardagskvöldið 4.febrúar. Um er að ræða 5 km skemmtiskokk um miðbæ Reykjavíkur þar sem þátttakendur eru hluti af glæsilegri ljósasýningu. Allir þátttakendur fá meðal annars armband sem blikkar í takt við þeirra hlaupatakt og gleraugu sem lýsa í myrkrinu. Skráningu og nánari upplýsingar má finna á http://northernlightsrun.is/
Ráðstefnur WOW Reykjavik International Games eru sérstaklega spennandi í ár. Fyrri ráðstefnan verður 26.janúar kl.17:30-20:30 og ber hún yfirskriftina Lyfjamál í íþróttum. Fjallað verður um hvað íþróttafólk þarf að hafa í huga þegar það neytir fæðubótarefna, þekktur hjólreiðamaður segir frá reynslunni við að falla á lyfjaprófi og rannsóknarblaðamaðurinn sem kom upp um lyfjasvindl Rússa flytur áhugavert erindi. Seinni ráðstefnan fjallar um góða stjórnunarhætti og fer fram 2.febrúar kl.17:30-20:30. Þar munu þrír reyndir stjórnendur úr íþróttahreyfingunni sem koma frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Danmörku flytja fræðandi erindi um sína stjórnunarhætti. Öll eiga þau það sameiginlegt að hafa gert miklar breytingar á skipulagi sinna íþróttasambanda og náð mjög góðum árangri í kjölfarið. Nánari upplýsingar um ráðstefnurnar má finna hér: http://rig.is/index.php/radstefna
Heimasíða leikanna með upplýsingum á íslensku og ensku er www.rig.is
Allar nánari upplýsingar veitir undirrituð.
Kveðja
f.h. Íþróttabandalags Reykjavíkur
Anna Lilja Sigurðardóttir
Upplýsinga- og samskiptastjóri
annalilja@ibr.is
s. 535 3705
Körfuknattleiksdeildir íþróttafélaganna í Reykjavík í samstarfi við Íþróttabandalag Reykjavíkur og Körfuknattleikssambands Íslands stóðu fyrir Reykjavíkurmóti fyrir drengi fædda 2004 dagana 14.-15. janúar.
Leiknir voru 6 hörkuleikir á laugardag í tveimur riðlum og keppt var um sæti á sunnudag.
Íslandsmeistaralið Fjölnis í þessum árgangi vann alla sína leiki sannfærandi og unnu úrslitaleikinn á móti KR 47-27 og eru því Reykjavíkurmeistarar 2017.
Victor Orri Þrastarson – Vættaskóli
Guðmundur Jóhannesson – Vættaskóli
Gissur Rafn Hlynsson – Rimaskóli
Róbert Aron Steffensen – Foldaskóli
Daníel Ágúst Halldórsson – Rimaskóli
Brynjar Kári Gunnarsson – Rimaskóli
Ægir Bergþórsson – Foldaskóli
Snorri Steinn Ingólfsson – Rimaskóli
Karl Ísak Birgisson – Húsaskóli
Þjálfari: Hjalti Þór Vilhjálmsson
Krílaæfingar körfuknattleiksdeildar Fjölnis eru á laugardögum kl. 9.00-9.50 í Rimaskóla líkt og undanfarna tvo vetur fyrir börn fædd 2011 og síðar.
Ester Alda þjálfari tekur vel á móti ykkur en hún hefur þjálfað körfubolta í 8 ár ásamt því að hafa unnið í leikskóla.
Mikil áhersla er lögð á jákvæða upplifun og hafa gaman og eru allir velkomnir að mæta og prufa.
Nánari upplýsingar veitir Ester Alda þjálfari í síma 662-8507 og á e-maili esteralda-92@hotmail.com
Körfuboltakveðja,
Körfuknattleiksdeild Fjölnis
Messa kl. 11:00 í Grafarvogskirkju. Séra Sigurður Grétar Helgason prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju syngur og organisti er Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11:00. Umsjón hafa sr. Guðrún Karls Helgudóttir og Þóra Björg Sigurðardóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson.
Selmessa kl. 13:00 í Kirkjuselinu. Sr. Guðrún Karls Helgudóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Vox populi syngur og organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Sunnudagaskóli í Kirkjuselinu kl. 13:00. Umsjón hefur Bjarki Geirdal Guðfinnsson og undirleikari er Stefán Birkisson.
Handknattleiksdeild Fjölnis ætlar að bjóða upp á íþróttaskóla fyrir börn á leikskólaaldri (2014 – 2011).
Áhersla er lögð á skemmtilega leiki og þrautir við hæfi fyrir þennan aldurshóp.
Íþróttaskólinn verður á laugardögum í Vættaskóla-Borgum sjá frekari upplýsingar í auglýsingu hér fyrir neðan.
Skráning í gegnum Nóra á heimasíðu félagsins https://fjolnir.felog.is/
RVK mótið um helgina og er haldið í Rimaskóla – Grafarvogi.
Laugardagur
12:30 Fjölnir-Ármann b
13:30 KR-Valur
14:30 Ármann b-ÍR
15:30 Ármann-Valur
16:30 Fjölnir-ÍR
17:30 KR-Ármann
Sunnudagur
12:00 5-6 sæti
13:00 3-4 sæti 14:00
Úrslitaleikur
Körfuknattleiksdeildir íþróttafélaganna í Reykjavík í samstarfi við Íþróttabandalag Reykjavíkur hafa ákveðið að halda Reykjavíkurmót í körfubolta fyrir drengi fædda 2004 dagana 14.-15. janúar í Rimaskóla.
Leiknir verða 6 hörkuleikir á laugardag og byrjar fyrsti leikur kl 12:30. Barist verður um sæti sunnudaginn 15. jan og byrjar fyrsti leikur kl 12:00 á sunnudag en úrslitaleikurinn er leikinn kl. 14:00.
Hér fyrir neðan er leikjaniðurröðun mótsins.
Körfuboltaáhangendur eru hvattir til að láta sjá sig og fylgjast með næstu kynslóð körfuboltasnillinga. spreyta sig. Til gamans má geta að lið Fjölnis í þessum árgangi eru Íslandsmeistarar 2016.
Fyrir stuttu var skrifað undir samning við íþróttafélagið Fjölni, fasteignafélagið Reginn og Borgarholtsskóla um uppbyggingu á fjölnota íþróttahúsi við Egilshöll í gær. Jafnframt var innsiglað samstarf þessara aðila um notkun á húsinu og annarra íþróttamannvirkja í Grafarvogi.
Nýtt 3.000 fermetra alhliða íþróttahús verður reist við Egilshöll og tekið í notkun í byrjun næsta árs. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins og Jón Karl Ólafsson, formaður Fjölnis skrifuðu í gær undir samkomulag um uppbyggingu, framkvæmd og reksturs hússins.
Aðstaðan í Grafarvoginum verður um leið og húsið verður risið mun betri fyrri boltagreinar, handbolta og körfubolta, sem hafa verið í mikilli sókn í hverfinu.
Unnið er að mótun framtíðarstefnu og samningum við fleiri íþróttafélög í borginni og vonast ég til að niðurstaða í þeim efnum liggi fyrir á næstu vikum og mánuðum.
Húsið,sem er fyrst og fremst hugsað fyrir handknattleik og körfuknattleik auk annarra íþróttagreina verður eign Regins, byggt og rekið á vegum félagsins. Reykjavíkurborg leigir tíma í hinu nýja húsi fyrir íþróttastarf Fjölnis.
Fjölnir og Reginn gerðu einnig með sér samkomulag um samstarf um rekstur þessa nýja mannvirkis auk annarra rekstrareininga í Egilshöll, en fyrir eru eldri samningar um knatthús, fimleikahús auk annarrar íþrótta- og félagsaðstöðu.
Við sama tækifæri var skrifað undir samkomulag Reykjavíkurborgar, Borgarholtsskóla og Ungmennafélagsins Fjölnis um afnot Borgarholtsskóla af íþróttamannvirkjum Fjölnis, Egilshallar og Reykjavíkurborgar í Grafarvogi fyrir nemendur og sérstaklega afreksíþróttasvið skólans.
Undir samkomulagið skrifuðu Ársæll Guðmundsson, skólameistari Borgarholtsskóla, Dagur B Eggertsson,borgarstjóri og Jón Karl Ólafsson, formaður Fjölnis
Borgarholtsskóli og Fjölnir gerðu af þessu tilefni sérstakan samstarfssamning um aðkomu þjálfara Fjölnis að starfi afreksíþróttasviðs Borgarholtsskóla með það fyrir augum að styrkja tengsl skólans og ungmennafélagsins.
Ungir fjölniskrakkar með borgarstjóra, Degi B Eggertssyni, Jóni Karli Ólafssyni, formanni Fjölnis, Helga S Gunnarssyni, forstjóra Regins og
Ársæli Guðmundssyni, skólameistara í Borgarholtsskóla.
Hérna má skoða nánar teikningar af nýja húsinu…..
