Fjöruskoðun hjá 4. SF
Nemendur 4SF fóru í fjöruskoðun í Grafarvogi. Ýmislegt var rannsakað s.s.: fuglar, gróður, skeljar, kuðungar, marflær, drasl og m.fl. sem sjá mátti í fjörunni. Veðrið lék við nemendur.
Fleiri myndir úr ferðinni
Nemendur 4SF fóru í fjöruskoðun í Grafarvogi. Ýmislegt var rannsakað s.s.: fuglar, gróður, skeljar, kuðungar, marflær, drasl og m.fl. sem sjá mátti í fjörunni. Veðrið lék við nemendur.
Fleiri myndir úr ferðinni
Í tilefni dagsins vorum við með lítið og nett aprílgabb. Það var látið berast út að þekktur fótboltakappi myndi heiðra okkur með nærveru sinni í hádegisfrímínútum og jafnvel gefa eiginhandaraáritanir.
Margir voru vantrúaðir en tóku samt ekki áhættuna á að missa af hugsanlegum stórviðburði og vildu vera með á hópmynd.
Þegar það kom í ljós að þetta var grín þá ákváðu nokkrir nemendur að vera ekkert að svekkja sig á því og fengu eiginhandaráritun hjá Marinó deildarstjóra í staðinn.
Í gær 31. mars fór fram í Hlöðunni í Gufunesbæ lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar hjá nemendum í 7. bekk í grunnskólum í Grafarvogi.
Kelduskóli átti tvo keppendur þau Arngrím Brodda og Glódísi Ylju. Þau stóðu sig mjög vel og lenti Arngrímur Broddi í 1. sæti.
Við óskum honum innilega til hamingju með það. Í 2. og 3. sæti voru keppendur úr Rimaskóla.
Gleðifundur Korpúlfa var haldinnn 26 mars 2014
Hérna er mynd af QIGONG hópi Korpúlfa sem hafa stundað heilsuíþróttina tvisvar í viku í vetur undir stjórn Þóru Halldórsdóttir.
Gerðuberg menningarmiðstöð, Gerðuberg 3-5, 111 Reykjavík
Textílhönnuðurnir María Valsdóttir, Sæunn Þorsteinsdóttir og Þóra Björk Schram sýna barnafatnað, fíngerða skartgripi og litrík gjafakort í Gerðubergi. Vörurnar vinna þær á ólíkan hátt hvað varðar lit, mynstur, form og efni (nýtt og endurunnið).
Opnun föstudaginn 28. mars kl. 16.
Sýningin stendur til 6. apríl.
Þjónustumiðstöðin Miðgarður er fyrsti vinnustaðurinn til að ljúka við verkefnin í skrefi 3 í grænum skrefum. Á vinnustaðnum er ítarleg sorpflokkun, óflokkað spor einungis 9%, í boði er eingöngu umhverfismerktur pappír, hreinsiefni og aðrar hreinlætisvörur eru einnig umhverfismerktar. Starfsfólk hefur aðgang að vistvænum farartækjum vegna vinnutengdra ferða og nýta sér það óspart. Farartækin hafa hlotið nöfn í samræmi við nafn vinnustaðarins. Rafdrifna reiðhjólið á staðnum heitir Sleipnir og í þjónustumiðstöðinni er einnig aðgangur að 2 metanbílum sem heita Huginn og Muninn.
Hera Hallbera Björnsdóttir hefur borið hitann og þungann af innleiðingu Grænna skrefa á vinnustaðnum með dyggri aðstoð samstarfsfólks síns. Í skrefi 2 og 3 er t.d. gerð krafa um grænt bókhald þar sem skráð er niður magnnotkun á pappír, rafmagni, hita og hreinlætisvörum. Einnig magnnotkun á jarðefnaolíu til að hægt sé að reikna út losun gróðurhúsalofttegunda. „Með því að fylgjast með pappírsnotkun í gegnum græna bókhaldið höfum við tekið eftir að pappírsnotkun hefur dregist saman eftir að við hófum þátttöku í Grænum skrefum. Í raun hefur ekkert annað breyst, kannski er ástæðan sú að við erum meira meðvituð um að draga úr prentun.“ segir Hera.
Við óskum starfsfólki Miðgarðs innilega til hamingju með áfangann og hlökkum til að koma til þeirra aftur þegar vinnustaðurinn lýkur við verkefnin í skrefi 4.
Framkvæmd verkefnisins Grænna skrefa í starfsemi Reykjavíkurborgar er einföld og aðgengileg og allir vinnustaðir á vegum Reykjavíkurborgar geta tekið þátt. Græn skref byggist á fjölmörgum aðgerðum sem snerta níu þætti sem hafa áhrif á umhverfið og innleidd í fjórum skrefum. Eitt af markmiðum Grænna skrefa er einmitt að vinnustaðir fái viðurkenningu fyrir metnað sinn í umhverfismálum.
Markmið verkefnisins er að:
• Gera starfssemi Reykjavíkurborgar umhverfisvænni
• Auka vellíðan starfsmanna og bæta starfsumhverfi þeirra
• Draga úr kostnaði í rekstri Reykjavíkurborgar
• Innleiða áherslur í umhverfismálum sem þegar hafa verið samþykktar
• Vinnustaðir fái viðurkenningu fyrir metnað sinn í umhverfismálum
• Vinnustaðir borgarinnar geti innleitt aðgerðir á mismunandi hátt eftir umfangi og eðli starfsseminnar
• Aðgerðir Reykjavíkurborgar í umhverfismálum séu sýnilegar
• Reykjavíkurborg verði fyrirmynd annarra í umhverfismálum
Aðalfundur Ungmennafélagsins Fjölnis var haldinn í Dalhúsum í Grafarvogi í fyrrakvöld. Ágætis mæting var á fundinn sem gekk vel fyrir sig. Reikningar og skýrsla stjórnar voru samþykkt einróma. Jón Karl Ólafsson var endurkjörinn formaður Fjölnis. Kristinn Óskar Grétuson í varastjórn Ungmennafélags Íslands flutti ávarp og sæmdi þau Jarþrúði Hönnu Jóhannsdóttur og Örn Pálsson starfsmerki UMFÍ.
Stjórn Fjölnis er skipuð eftirtöldum einstaklingum: Jón Karl Ólafsson, formaður, Birgir Gunnlaugsson, Ásgeir Heimir Guðmundsson, Ingibjörg Óðinsdóttir, Sveinn Ingvarsson, Björk Guðbjörnsdóttir, Kristján Friðrik Karlsson og Laufey Jörgensdóttir. Úr stjórn gengu þau Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir, Örn Pálsson og Jón Oddur Davíðsson.
Sex einstaklingar voru sæmdir silfurmerki Fjölnis. Þau eru Guðmundur L. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Fjölnis, Stefán Birkisson, fimleikadeild, Ingibjörg Grétarsdóttir, handboltadeild, Ingibjörg Kristinsdóttir, sunddeild, Valborg Guðrún Guðjónsdóttir, karatedeild, og Boris Bjarni Akbachev handboltadeild.
Fjölnir mætir Hetti í úrslitum umspilsins um laust sæti í úrvalsdeild karla í körfubolta. Fjölnir vann Breiðablik í kvöld í oddaleik í undanúrslitum umspilsins í jöfnum og afar spennandi leik sem lauk með fimm stiga sigri Fjölnis, 82:77. Vinna þurfti tvo leiki í undanúrslitunum til að komast í úrslitin og vann Fjölnir einvígið 2:1.
Fjölnir mætir því Hetti í úrslitum, en Höttur sló Þór Akureyri út í hinni undanúrslitaviðureigninni, 2:0.
Daron Lee Sims var stigahæstur Fjölnis í kvöld með 29 stig og tók að auki 14 fráköst, en hjá Blikum skoraði Oddur Rúnar Kristjánsson 17 stig. Tölfræði leiksins má nálgast hér fyrir neðan.
Íslandsmót barnaskólasveita í skák 2014, 1. – 7. bekkur, var haldið í Rimaskóla helgina 22. – 23. mars og mættu 49 skáksveitir til leiks sem er metþátttaka. Það má segja að „heimavöllurinn“ hafi reynst hinum fjórum skáksveitum Rimaskóla vel því við verðlaunaafhendingu kom í ljós að þær voru allar í fremstu röð.
A sveit Rimaskóla varð í 2. sæti mótsins á eftir Norðurlandameistarasveit Álfhólsskóla sem vann barnaskólamótið í 3. sinn í röð. Báðar sveitirnar, sem höfðu nokkra yfirburði á mótinu, tryggðu sér þátttökurétt á Norðurlandamót barnaskólasveita sem fram fer á Íslandi í haust. Í sveitinni eru systkinin Nansý 6-EHE og Joshua 3. bekk, Kristófer Halldór og Róbert Orri í 6-EHE og Mikael Maron í 4-SBH. B sveit Rimaskóla varð í 1. – 2. sæti B sveita, C og D sveitirnar urðu einnig efstar og besta stúlknasveitin og besta skáksveitin skipuð nemendum í 4. bekk og yngri komu líka frá Rimaskóla.
Nemendur 7. bekkjar Rimaskóla og foreldrar þeirra höfðu í nógu að snúast við veitingasölu á mótinu og fer allur ágóði sölunnar í skólabúðaferð krakkanna að Reykjum í maí.