- HEIM
- FRÉTTIR
- MYNDIR
- HVERFIÐ OKKAR
- AÐSENT EFNI
- ÍÞRÓTTIR
- UM OKKUR
Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu tók á móti Tindastóli á Fjölnisvelli við Dalhús á laugardag í A-riðli 1. deildarinnar og unnu okkar konur öruggan 5-0 sigur.
Fjölnir fékk sannkallaða draumabyrjun en Íris skoraði á upphafsmínútu leiksins með fallegu skoti eftir hornspyrnu og strax á 7. mínútu bætti hún við öðru marki með þrumuskoti af 40 metra færi. Erla Dögg gerði þriðja mark leiksins á 16. mínútu með góðu skoti úr teignum og Esther Rós vippaði svo snyrtilega yfir markvö…rð Tindastóls rétt fyrir leikhlé og staðan í hálfleiknum því vænleg fyrir Fjölni 4-0.
Leikurinn róaðist nokkuð í síðari hálfleik. Fjölnir gerði fimmfalda skiptingu á 58. mínútu og þá kom aftur líf í leikinn. Helga fiskaði víti á 76. mínútu og úr því skoraði Íris og kláraði þrennuna af öryggi og gulltryggði um leið sigur Fjölnis.
„Við byrjuðum af miklu afli og kláruðum nánast leikinn á fyrstu tuttugu mínútunum. Tindastóll er með ungt og efnilegt lið en þær áttu litla möguleika í dag. Það var gaman að sjá Írisi hafsent setja þrennu í leiknum. Næsti leikur er hér heima við Víking Ólafsvík sem sló okkur úr bikarnum því eigum við harma af hefna.“ Sagði Siggi þjálfari að leik loknum.
Lið Fjölnis gegn Tindastóli: Helena – Kristjana (Lovísa 58.mín), Íris, Eyrún (Aníta 58.mín), Oddný, Ásta, Theresa, Tinna (Elvý 58.mín), Kamilla, Esther (Helga 58.mín), Erla Dögg (Stella 58.mín).
Fjölnir hefur unnið alla alla fimm leiki sína í deildinni til þessa og skorað í þeim fjórtán mörk en aðeins fengið eitt mark á sig svo uppskeran hefur verið frábær hingað til. Næst í riðlinum koma Haukar og HK/Víkingur með níu stig úr fjórum leikjum en þau mætast einmitt í deildinni í kvöld.
Þá er komið að fimmta leik stelpnanna í 1. deildinni og eru andstæðingarnir Sauðkræklingarnir í Tindastóli.
Tindastóll hefur farið vel af stað í deildinni í sumar og eru taplausar eftir 4 leiki, hafa unnið tvo (BÍ/Bolungarvík og Keflavík) og gert tvö jafntefli (Víkingur Ó og Keflavík) og eru í 4. sæti með 8 stig.
Ekki þarf að segja mikið um stelpurnar okkar nema að þær eru auðvitað búnar að vinna alla leikina sína fjóra í sumar og eru á toppnum með fullt hús stiga. Markatalan er ansi góð eða 9-1 og þar af hefur markamaskínan Esther Rós Arnarsdóttir skorað 7 af þeim mörkum (sjá mynd að ofan).
Allir á völlinn, ÁFRAM FJÖLNIR
Það verða Framarar sem mæta í voginn fagra á sunnudaginn kl. 19.15 og berjast við okkur Fjölnismenn í 8. umferð Pepsideildar 2014.
Miklar mannabreytingar hafa orðið hjá Fram frá seinasta tímabili þegar nýr þjálfari Bjarni Guðjónsson tók við liðinu. Margir ungir og efnilegir strákar úr neðri deildunum gengu til liðs við þá en einnig fengu þeir fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmanninn Jóhannes Karl Guðjónsson til sín sem og Viktor Bjarka Arnarsson fyrrverandi leikmann KR. Svo er auðvitað landsliðsmarkvörðurinn Ögmundur Kristinsson í marki Fram.
Fjölnir tapaði sínum fyrsta leik í sumar gegn FH á miðvikudaginn s.l. í hörku leik þar sem það hefði ekki verið ósanngjarnt ef strákarnir hefðu fengið einhver stig úr þeim leik. Fjölnisstrákarnir ætla að selja sig dýrt á sunnudaginn til að byrja stigasöfnunina á nýjan leik.
Af núverandi leikmönnum Fram og Fjölnis þá hefur enginn spilað með báðum liðum, en það má nefna að allir þjálfarar Fjölnis (Ágúst, Kristófer og Gunnar) eru allir fyrrverandi leikmenn Fram.
Nú er ekkert annað en að skella sér í sparifötin um helgina og hvetja strákana til sigurs.
Allir á völlin og ÁFRAM FJÖLNIR
Í dag komu 35 gestir frá félagi eldri borgar á Húsavík í heimsókn í Borgir um hádegið.
Við Korpúlfar tókum vel á móti þeim með gleði, söng og léttum veitingum.
Korpúlfar sóttu þau heim fyrir ári síðan og hefur góður vinskapur myndast á milli félaganna.
Þá er komið að sjöundu umferðinni í Pepsideild karla og kemur stórlið FH í heimsókn í voginn fagra. Bæði liðin eru taplaus eftir fyrstu sex umferðirnar og sitja FH-ingar á toppi deildarinnar með 14 stig en við Fjölnismenn með 10 stig í 5. sæti.
Gunnar Már spilar gegn sínum gömlu félögum í FH en Gunnar spilaði með FH árin 2009 og 2010. Atli Viðar Björnsson (2007) og Atli Guðnason (2005) eiga báðir eitt tímabil með Fjölni þar sem þeir skoruðu grimmt. Svo eru tveir uppaldir Fjölnismenn í FH liðinu en það eru þeir Ingimundur Níels Óskarsson og Ólafur Páll Snorrason og bjóðum við þá hjartanlega velkomna á heimaslóðir.
Fjölnir og FH hafa tvisvar mæst í efstu deild á Fjölnisvelli. Árið 2008 fóru leikar 3-3 þar sem Gunnar Már, Ólafur Páll Snorrason og Kristján Hauksson skorðu mörk okkar. Árið 2009 tapaði Fjölnir 1-4 og skoraði HM-farinn Aron Jóhannsson mark okkar í þeim leik.
Einar Karl Ingvarsson verður ekki í leikmannahópi Fjölnis í dag gegn FH þar sem hann er á láni frá FH.
Það verður nóg af leikjum á næstunni hjá strákunum okkar. Næsti leikur er svo gegn Fram á sunnudaginn (Fjölnisvöllur), svo Borgunarbikarinn gegn KR fimmtudaginn 19. júní (KR-völlur) og svo verður skellt sér í Garðabæinn sunnudaginn 22. júní og spilað gegn Stjörnunni. Svo strákunum veitir ekki af öllum þeim stuðningi sem þeir geta fengið til að koma sér í gegnum þessa leikjatörn.
Við minnum fólk á stelpurnar í meistaraflokki verða á grillinu fyrir leik og í hálfleik og verður í boði ljúffengur hamborgari og ísköld Pepsi á 1.000 kr.
Allir á völlin og ÁFRAM FJÖLNIR
í gærkvöld vann meistaraflokkur kvenna flottan sigur á Haukastelpum sem voru í efsta sæti a riðils 1. deildar kvenna fyrir kvöldið.
Leikurinn endaði 2-1 fyrir Fjölni og skoraði Esther Rós Arnarsdóttir bæði mörk okkar stelpna í leiknum.
Nokkrar myndir frá leiknum.
Myndir: Bergur Steingrímsson
Þá er loksins komið að fyrsta heimaleik Fjölnis í meistaraflokki kvenna sem spilaður verður á Fjölnisvelli í Dalhúsum. Andstæðingar dagsins eru Haukar úr Hafnarfirði en bæði Fjölnir og Haukar hafa unnið alla þrjá leiki sína í deildinni í sumar og hér munu því mætast stálin stinn. Bæði Fjölnir og Haukar hafa ekki fengið á sig mark í sumar í þessum þremur leikjum.
Esther Rós Arnarsdóttir (Fjölnir) og Hildigunnur Ólafsdóttir (Haukar) eru markahæstar í deildinni með 5 mörk hvor.
Hér má sjá stöðuna í 1. deild kvenna A-riðli
Athygli er vakin á því að aðgangur er ókeypis á völlinn í kvöld. Styðjum stelpurnar okkur og mætum á Fjölnisvöllinn. Frábær fjölskyldustund.
Ákveðin hefur verið þriðji fegrunarátaksdagur Korpúlfa næsta miðvikudag, allir velkomnir að taka þátt.
Endar með útigrilli við Gufunesbæ og rjúkandi kaffi um hádegisbilið.
Takk takk
Fegrunardeild Korpúlfa.
Hreinsunardeild Korpúlfa þakkar öllum þeim sem lögðu hönd á plóg í gær í fegrunarátakinu og við sendum hér myndir sem Jóhann Þór Sigurbergsson tók af afrakstrinum rúmlega 250 kíló söfnuðust.
Ennfremur viljum við þakka öllum þeim félagsmönnum sem voru með okkur í anda og til hamingju REYKJAVÍK nú er Grafarvogur fegursta hverfi Reykjavíkur.
[su_button url=“http://grafarvogsbuar.is/wp-content/uploads/2014/06/FEGRUM-GRAFARVOG.pdf“ target=“blank“ style=“3d“ background=“#388f46″ radius=“0″]Skoða dagskrá[/su_button]