- HEIM
- FRÉTTIR
- MYNDIR
- HVERFIÐ OKKAR
- AÐSENT EFNI
- ÍÞRÓTTIR
- UM OKKUR
Óskar Víkingur Davíðsson í Ölduselsskóla varð í dag Íslandsmeistari barna (10 ára og yngri) eftir æsispennandi keppni sem fram fór í Rimaskóla. Óskar, Joshua Davíðsson Rimaskóla og Róbert Luu Álfhólsskóla komu allir jafnir í mark með 8 vinninga í 9 skákum. Grípa þurfti því til aukakeppni og þar hafði Óskar Víkingur sigur, hálfum vinning á undan Fjölnisdrengnum Joshua. Mótið fór fram við bestu aðstæður í hátíðarsal Rimaskóla og voru tæplega 100 krakkar mættir á Íslandsmótið og Íslandsmótið í peðaskák sem fram fór samhliða og er fyrir byrjendur. Yngsti keppandinn á mótinu sem einmitt var með í peðaskákinni var 4 ára gamall leikskólastrákur. Greinilegt er að mikil gróska er í skákinni og ánægjulegt að fylgjast með færni þessara kornungu krakka. Um tugur þátttakenda komu frá skákdeild Fjölnis og urðu þeir allir fyrir ofan miðju í keppninni.
Ágæta Fjölnisfólk og Grafarsvogsbúar, nú fer að liða að RISA þorrablótinu okkar í Grafarvogi en það
verður haldið laugardaginn 24 janúar 2015 kl 20 í Íþróttamiðstöðinni Dalhúsum.
Boðið verður upp á þorramat eins og hann gerist bestur frá Múlakaffi en þeir sem þora ekki í þorrann þurfa ekki að örvænta því nóg verður af góðmeti á svæðinu.
Blótið verður nefnilega með nokkru steikarívafi og boðið verður einnig upp á stórsteikur.
Landskunnir listamenn verða við stjórnvölinn á þorrablótinu og síðan stígur MADE IN SVEITIN með Hreim í fararbroddi á svið og tryllir lýðinn fram á nótt.
Við skorum á Grafarvogsbúa að taka daginn frá, búa til götu- og vinapartý og skemmta sér ærlega.
Til að auðvelda allt skipulag verður að greiða fyrir fyrir borðapöntun á netinu í félagakerfinu NÓRA til
þess að það verði tekið frá. Borðin eru 12 manna hringborð.
Þetta auðveldar alla skipulagningu og gerir þetta auðveldara fyrir alla.
Á síðasta blóti voru um 500 manns og viljum við gera betur núna og fara í 720 manns.
Sjáumst hress á nýju ári á RISAþorrablóti.
Íslandsmót barna í skák fer fram í Rimaskóla laugardaginn 10. janúar og hefst klukkan 12. Þátttökurétt hafa börnfædd 2004 og síðar og sigurvegarinn fær sæmdarheitið Íslandsmeistari barna 2015 og keppnisrétt á Norðurlandamótið í skólaskák sem haldið verður í Færeyjum um miðjan febrúar.
Mjög góð þátttaka verður á mótinu en núna rúmum tveimur tímum fyrir mót eru 77 keppendur skráðir í aðalflokkinn og 12 í peðaskákina. Enn er hægt að skrá sig til leiks.
Alls verða tefldar 9 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma. Eftir 5 umferðir verður keppendum fækkað þannig að þeir sem hafa 3 vinninga eða fleiri halda áfram keppninni um Íslandsmeistaratitilinn en þeir sem hafa færri en 3 vinninga hafa lokið þátttöku.
Peðaskákmót verður haldið samhliða mótinu og hefst klukkan 13:00. Það er ætlað fyrir leikskólabörn og þau allra yngstu í grunnskólum sem eru ekki tilbúin fyrir Íslandsmótið.
Skákdeild Fjölnis verður með veitingasölu á meðan mótinu stendur.
Þetta er í 22. sinn sem keppt er um Íslandsmeistaratitil barna. Sigurður Páll Steindórsson sigraði á fyrsta mótinu árið 1994, en meðal annarra meistara má nefna titilhafana Dag Arngrímsson, Guðmund Kjartansson og Hjörvar Stein Grétarsson. Núverandi Íslandsmeistari barna er Vignir Vatnar Stefánsson.
Skáksamband Íslands og Skákakademían annast framkvæmd mótsins. Keppendur eru hvattir til að skrá sig sem fyrst hér á Skák.is. Fram þarf að koma fullt nafn, grunnskóli og fæðingarár. Þátttökugjald er 1.000 kr (1.500 að hámarki á systkini) og greiðist á mótsstað fyrir upphaf umferðar.
Veitt eru sérstök verðlaun fyrir bestan árangur í hverjum árgangi.
Upplýsingar um þegar skráða keppendur má finna hér.
Sigurvegarar á Íslandsmóti barna frá upphafi:
Hátíðarguðsþjónusta í Grafarvogskirkju 11. janúar kl. 11.00
Prestur: Séra Vigfús Þór Árnason
Prédikun: Sigurður Kr. Sigurðsson
Söngur: Kór Grafarvogskirkju og Frímúrarakórinn
Einsöngvarar: Kristján Jóhannsson, Eiríkur Hreinn Helgason og Sigríður Ósk Kristjánsdóttir
Stjórnandi: Jónas Þórir
Selló: Örnólfur Kristjánsson
Trompet: Kristján Hermannsson og Grímur Sigurðsson
Ritningarlestrar: Jón Sigurðsson og Halldór Kolbeinsson
Léttar veitingar eftir messu
Frímúraramessa kl. 11.00
Prestur: séra Vigfús Þór Árnason
Prédikun: Sigurður Kr. Sigurðsson
Fiðla: Hjörleifur Valsson
Selló: Örnólfur Kristjánsson
Frímúrarakórinn syngur
Stjórnendur og organistar: Hákon Leifsson, Jónas Þórir og Hilmar Örn Agnarsson
Allir velkomnir
Sunndagaskóli kl. 11.00
Prestur: séra Guðrún Kals Helgudóttir
Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir
Undirleikari: Stefán Birkisson
Brauðmessa kl. 13.00
Prestur: séra Guðrún Karls Helgudóttir
Forsöngvarar leiða söng
Organisti: Hilmar Örn Agnarsson
Sunnudagaskóli á sama tíma
Umsjón hefur Ásthildur Guðmundsdóttir
Undirleikari: Stefán Birkisson
Á laugardaginn næsta, 10 janúar, verða opnar æfingar fyrir stelpur og stráka sem æfa í 8 – 7 – 6 og 5 flokki með leikmönnum úr meistaraflokki karla og kvenna. Meistaraflokks leikmennirnir munu stjórna stöðvum sem verða um allan völl ásamt þjálfurum Fjölnis. Við hvetjum alla foreldra til þess að koma og taka þátt með sínu barni auk þess sem heitt verður á könnunni í Sportbitanum.
Við hvetjum alla til þess að mæta og eiga með okkur skemmtilegan dag.
Knattspyrnudeild Fjölnis
Sorphirða Reykjavíkurborgar hefur fengið þrjá nýja metanknúna Scania bíla til að sinna losun grárra og blárra tunna í borginni og mun fá þann fjórða á næstu dögum. Þrír þeirra eru með tvískiptum kassa til losunar á tveimur úrgangsflokkum í einu. Við losun grárra og blárra tunna þarf nú einungis að keyra hverja götu einu sinni og minnkar það akstur og eykur hagræði í losun ílátanna. Pappírsefnin í bláu tunnunum fara til endurvinnslu í Svíþjóð en blandaði úrgangurinn úr gráu tunnunum og spartunnunum fer til urðunar í Álfsnesi.
Einn bíllinn er með krana, sem gerir kleift að losa djúpgáma og stærri ílát en áður. Metanið, sem knýr bílana, er fengið úr hauggasi sem streymir úr urðunarstaðnum í Álfsnesi og hefur nýting þess mikinn ávinning í för með sér þar sem það kemur í stað jarðefnaeldsneytis. Sorphirðu í Reykjavík hefur verið sinnt af níu metanbílum frá árinu 2008 og starfsfólkið hefur verið rúmlega 50 manns. Ætlunin er að skipta út öllum bílum sorphirðunnar á næstu árum.
Betri aðstæður fyrir sorphirðufólk
Nýju bílarnir bæta vinnuaðstæður starfsfólk sem sinna hirðu úrgangsíláta í borginni þar sem þeir eru útbúnir með helstu nýjungum sem hafa orðið á búnaði sorpbifreiða á síðustu árum. 47.581 tunnuígildi eru í Reykjavík í dag, þar af eru um 12.493 bláar tunnur undir pappírsefni.
Hundruð tonna á hvern starfsmann
Árið 2014 voru hirt alls 18.085 tonn af blönduðum úrgangi og 3.266 tonn af pappírsefnum eða samtals 176 kg á ári á hvern íbúa Reykjavíkur. Magn flokkaðra pappírsefna sem skilað er í bláu tunnuna hefur aukist um 27% frá því á síðasta ári. Þetta jafngildir að hver starfsmaður við sorphirðu handleiki að jafnaði um 450-500 tonn af úrgangi yfir árið.
Reykvíkingar munu taka eftir því að tvískiptur bíll losar gráu og bláu tunnuna í einni ferð en pappírsefnum er haldið aðskildum og flutt til endurvinnslu,“ segir Eygerður Margrétardóttir deildarstjóri hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkjavíkurborgar og bætir því við að með þessari breytingu minnki akstur sorpbíla um borgina sem dregur úr kostnaði og minnkar umhverfisáhrif.
Þann 1. janúar 2015 taka gildi nýjar reglur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks í Reykjavík, sjá meðfylgjandi reglur.
Helstu breytingarnar á reglunum eru að nú getur hver einstaklingur fengið að hámarki 60 ferðir á mánuði, en þjónustumiðstöðvum velferðarsviðs er heimilt að veita fleiri ferðir til þeirra notenda sem eru, auk annars í mikilli virkni, s.s. íþróttum eða skipulögðu félagsstarfi. Umframferðir geta að hámarki verið 20 og heildarfjöldi ferða því 80 á mánuði. Notandi skal, samkvæmt gjaldskrá, greiða hærra gjald fyrir umframferðir.
Um áramótin breytist einnig gjaldskrá velferðarsviðs um ferðaþjónustu fatlaðs fólks sjá meðfylgjandi gjaldskrá, þannig að þegar fjöldi ferða fer yfir 60 á mánuði er greiddar kr. 1.100 fyrir hverja ferð.
Vakni spurningar um þjónustuna er hægt að snúa sér til þjónustumiðstöðvar í þínu hverfi eða þjónustuvers Reykjavíkurborgar.
Þjónustumiðstöðvar:
Þjónustuver borgarinnar: sími 4 11 11 11.
Bæklingur frá Strætó bs. um tilhögun ferðaþjónustunnar á höfuðborgarsvæðinu.