Græn fræðsla á vettvangi
Miðvikudaginn 15. október kl. 15-17 er öllum boðið að koma í Grasagarðinn og fá græna fræðslu á vettvangi. Þar verður hægt að kynna sér starfsemina og taka þátt í að upplifa náttúruna og nærumhverfið á nýjan og eftirminnilegan hátt. Boðið verður upp á heita skógarsaft og jurtate. Lesa meira