Körfuknattleiksdeild Fjölnis í samvinnu við SAMbíóin Egilshöll heldur enn eitt árið stórmót í körfuknattleik fyrir yngstu iðkendurnar.
Þátttakendur á mótinu eru stelpur og strákar fædd 2008 og síðar. Tæplega 700 þátttakendur í 139 liðum hafa skráð sig til leiks í mótið.
Mótið fer fram fyrstu helgina í nóvember líkt og síðustu ár, þ.e. helgina 2. – 3. nóvember 2019.
Mótið er frábær fjölskylduskemmtun þar sem m.a. er boðið upp á fullt af körfubolta, bíó, sund, skauta, hrekkjavökustemmingu, andlitsmálun fyrir blysför og kvöldvöku, gistingu, mat, ís og verðlaun.
Hægt að skoða nánari upplýsingar um mótið hérna……