Nýtnivikan 16. til 24. nóvember – nýtum og njótum
Nýtnivikan verður haldin hér á landi vikuna 16. – 24. nóvember en markmið vikunnar er að draga úr myndun úrgangs og hvetja fólk til að nýta hluti betur. Vikan er samevrópsk og er ætlað að vekja fólk til vitundar um nauðsyn þess að draga úr magni úrgangs m.a. með því að lengja líftíma hluta, samnýta hluti og stuðla almennt að því að hlutir öðlist framhaldslíf frekar en að enda sem úrgangur.
Daglegar venjur hvers og eins hefur áhrif á umhverfið. Til dæmis er hægt að draga verulega úr pappírsúrgangi með því að afþakka fjöldapóst, endurnýta gjafapappír og draga úr prentun. Úrgangur frá heimilum í Reykjavík sem ekki er flokkaður frá og endurnýttur eða endurnotaður er urðaður í Álfsnesi.
Margt ber á góma hjá Reykjavíkurborg í Nýtniviku. Efnt verður til samkeppni um Best nýtta pappírinn en leikurinn verður á Facebook síðu Reykjavíkurborgar, en þar geta allir tekið þátt og sett inn mynd af pappír eða pappa sem er vel nýttur eða fengið hefur nýtt hlutverk. Einnig stendur til að endurvekja gömul orð en í ár fellur Dagur íslenskrar tungu inn í Nýtnivikuna og það felur í sér ýmis tækifæri til að tengja þetta tvennt saman. Við gætum t.d. farið að nota aftur orð eins og spónamatur og jarðepli svo eitthvað sé nefnt. Þátttakendur sendi hugmynd inn myndrænt, orðið og þýðingu þess, ný eða gömul. Listasmiðja barna verður í Norræna húsinu en þar skapa börn list úr pappír.
Reykjavíkurborg tekur þátt í Nýtnivikunni auk Kvenfélagasambands Íslands, Neytendasamtökunum, Sorpu, Landvernd og Umhverfisstofnun ásamt öðrum sveitarfélögum á Íslandi og í Evrópu. Vikan verður helguð meiri nýtni á pappír og að dregið sé úr myndun pappírsúrgangs. Vikan er líka tækifæri okkar til að skora á önnur sveitarfélög, fyrirtæki, vini og ættingja til að vinna verkefni sem tengjast nýtni og draga úr bruðli og úrgangi í samfélaginu.
Reykjavíkurborg hvetur til betri nýtingu hluta og vitundarvakningar um að nýta og njóta þess sem í kringum okkur er.