Frestur fyrir hugmyndaríka einstaklinga eða hópa til að taka að sér almenningssvæði í borginni og gæða þau meira lífi hefur verið framlengdur til 18. apríl.
Verkefnið sem heitir Torg í biðstöðu felur í sér að endurskilgreina not af svæðum sem ekki eru fastmótuð til framtíðar. Verkefnin eiga að vekja íbúa og aðra hagsmunaaðila til umhugsunar um sitt nánasta umhverfi og virkja þá til að taka þátt í að þróa svæðin til framtíðar. Í ár er einkum leitað eftir verkefnum sem lífga svæði með auknu mannlífi, en það geta verið markaðir, leikir eða annað sem dregur fleiri borgarbúa út undir bert loft.
Hóparnir sem taka að sér verkefni finna tímabundnar og skemmtilegar lausnir á sínu svæði og kanna möguleika þeirra með tilraunum. Gert er ráð fyrir því að byrjað verði á verkefnunum í maí. Frjálst er að sækja um hvaða svæði sem er en einkum er horft til eftirfarandi svæða:
- Bernhöftstorfa.
- Fógetagarður.
- Óðinstorg.
- Rými við og/eða á göngugötum í miðborginni.
Frestur til að sækja um þátttöku hefur verið framlengdur til 18. apríl 2016. Umsóknir skal merkja „umsókn um biðsvæði“ og senda á Hildi Gunnlaugsdóttur, netfang hildurg@reykjavik.is.