Börnin í skákdeild Fjölnis komu færandi hendi á skákæfingu í Rimaskóla í dag. Þau komu með fjölmargar skemmtilegar og nytsamlegar gjafir til barnanna á Grænlandi, en þangað halda liðsmenn Hróksins í næstu viku.
Hrafn Jökulsson og Róbert Lagerman úr Hróknum komu í heimsókn á æfinguna og veittu gjöfunum viðtöku. Þarna voru meðal annars litir og litabækur, púsluspil og leikföng, föt og marskyns fínerí. Og ekki nóg með það: Krakkarnir söfnuðu líka næstum 30 þúsund krónum, sem duga til að kaupa 15 góð taflsett handa grænlensku börnunum!
Frumkvæði að þessum góðu gjöfum átti Helgi Árnason skólastjóri og formaður skákdeildar Fjölnis, en hann hefur tvisvar komið í skákferðir til Grænlands ásamt börnum úr Rimaskóla. Hrafn og Róbert færðu Helga og hans knáu liðsmönnum djúpar þakkir fyrir að sýna okkar næstu nágrönnum á Grænlandi vinarþel í verki.
Öll fengu hin gjafmildu börn póstkortaseríu Hróksins frá skákstarfinu á Grænlandi, auk þess sem Hrafn sagði þeim dálítið frá okkar stórbrotna nágrannalandi.
Mikið líf var á æfingunni hjá Fjölni, og tugir stráka og stelpna skemmtu sér konunglega og sýndu góða takta, enda er Rimaskóli einhver mesti skákskóli í heiminum!
Takk fyrir frábært framtak, Fjölnismenn!