Dymbilvika og páskar í Grafarvogssókn

Skírdagur í Grafarvogskirkju:

Fermingar kl. 10:30 og 13:30.

Boðið til máltíðar kl. 20:00. við minnumst síðustu kvöldmáltíðar Jesú Krists með lærisveinum sínum með að neyta einfaldrar máltíðar við langborð í kirkjunni.

Í lok stundar verður allt borið út af altarinu, ljósin slökkt og við göngum út í nóttina.

Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar. Organisti er Hákon Leifsson.

Föstudagurinn langi í Grafarvogskirkju:

Guðsþjónusta kl. 11:00.

Sr, Magnús Erlingsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Hákon Leifsson.

Lestur Passíusálma Hallgríms Péturssonar kl. 13:00-18:00.

Fyrrum þjónandi prestar lesa og tónlistaratriði verða flutt.

Laugardagur í Grafarvogskirkju:

Páskavaka kl. 23:00.

Prestur sr. Magnús Erlingsson. Orgainsti Hákon Leifsson.

Ljósið verður borið inn í kirkjuna á táknrænan hátt og því útdeilt til þátttakenda, þeim til blessunar og helgunar.

Páskadagur í kirkjunni. Kirkjuselinu og á Eir.

Hátíðarguðsþjónusta í Grafarvogskirkju að morgni páskadags kl. 08:00.

Sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjónar. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Organisti er Hákon Leifsson.

Heitt súkkulaði og kaffi á eftir.

Hátíðarguðsþjónusta á Hjúkrunarheimilinu Eir kl. 10:30.

Sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjónar.

Upprisuhátíð í kirkjuselinu kl. 13:00.

Sr. Sigurður Grétar Helgason þjónar. Vox Populi leiðir söng. Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir.

Kaffi og súkkulaði á eftir.

Páskar

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.