Skírdagur í Grafarvogskirkju:
Fermingar kl. 10:30 og 13:30.
Boðið til máltíðar kl. 20:00. við minnumst síðustu kvöldmáltíðar Jesú Krists með lærisveinum sínum með að neyta einfaldrar máltíðar við langborð í kirkjunni.
Í lok stundar verður allt borið út af altarinu, ljósin slökkt og við göngum út í nóttina.
Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar. Organisti er Hákon Leifsson.
Föstudagurinn langi í Grafarvogskirkju:
Guðsþjónusta kl. 11:00.
Sr, Magnús Erlingsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Hákon Leifsson.
Lestur Passíusálma Hallgríms Péturssonar kl. 13:00-18:00.
Fyrrum þjónandi prestar lesa og tónlistaratriði verða flutt.
Laugardagur í Grafarvogskirkju:
Páskavaka kl. 23:00.
Prestur sr. Magnús Erlingsson. Orgainsti Hákon Leifsson.
Ljósið verður borið inn í kirkjuna á táknrænan hátt og því útdeilt til þátttakenda, þeim til blessunar og helgunar.
Páskadagur í kirkjunni. Kirkjuselinu og á Eir.
Hátíðarguðsþjónusta í Grafarvogskirkju að morgni páskadags kl. 08:00.
Sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjónar. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Organisti er Hákon Leifsson.
Heitt súkkulaði og kaffi á eftir.
Hátíðarguðsþjónusta á Hjúkrunarheimilinu Eir kl. 10:30.
Sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjónar.
Upprisuhátíð í kirkjuselinu kl. 13:00.
Sr. Sigurður Grétar Helgason þjónar. Vox Populi leiðir söng. Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir.
Kaffi og súkkulaði á eftir.