- HEIM
- FRÉTTIR
- MYNDIR
- HVERFIÐ OKKAR
- AÐSENT EFNI
- ÍÞRÓTTIR
- UM OKKUR
Körfuknattleiksdeild Fjölnis sækir jólatré heim að dyrum dagana 8. – 10. janúar fyrir aðeins 1.500 krónur.
Auðvelt er að nýta þjónustuna en eina sem þarf að gera er að senda tölvupóst á karfa@fjolnir.is með nafni, heimilisfangi og símanúmeri ásamt millifærslukvittun og við sækjum dagana 8. – 10. janúar 2016. Reikningsupplýsingar: 0114-26-9292, kt. 670900-3120.
Ingvar Hjartarson var valinn afreksmaður frjálsíþróttadeildar Fjölnis 2015. Ingvar Hjartarson er 21 árs en hefur þrátt fyrir ungan aldur verið einn af bestu langhlaupurum landsins undanfarin ár. Hann hefur æft hlaup frá 15 ára aldri en áður var hann í fótbolta og körfubolta. Ingvar varð Íslandsmeistari í bæði 5 og 10 km götuhlaupum árið 2015.
Hann sigraði Víðavangshlaup ÍR í apríl á tímanum 15:36 en það hlaup var jafnframt Íslandsmeistaramót í 5 km götuhlaupi. Einnig sigraði hann í Stjörnuhlaupinu á tímanum 32:39 sem var Íslandsmeistaramót í 10 km götuhlaupi.
Ingvar hefur sett Íslandsmet í 5000m hlaupi innanhúss í aldursflokkunum 18-19 ára og í 20-22 ára og Íslandsmet í 3000m hlaupi innanhúss í aldursflokknum 18-19 ára.
Ingvar sigraði í nokkrum öðrum götuhlaupum á árinu og sigraði hálfmaraþonið í Vormaraþoni Félags maraþonhlaupara. Ingvar hefur einnig keppt í hjólreiðum, tvíþraut og þríþraut með góðum árangri.
Þann 30. desember var valinn íþróttamaður Fjölnis 2015 og afreksmenn allra deilda heiðraðir. Kristján Örn Kristjánsson handboltamaður var valinn íþróttamaður Fjölnis 2015.
Haldinn verður sérstakur fundur í Grafarvogi vegna Barnamenningarhátíðar 2015. Listafólki, fulltrúum menningarstofnana, fyrirtækja, bókasafns, listaskóla, leikskóla, grunnskóla og frístuamiðstöðva á svæðinu er boðið á fundinn til að stilla saman strengi og finna samstarfsaðila, þar sem það á við.
Á fundinum verður farið yfir mikilvægar dagsetningar, kynntar leiðir til þátttöku og umsóknir um framlög til viðburða Fundurinn fer fram 7. janúar klukkan 15.30 -16:30 í Hlöðunni í Gufunesbæ.
Barnamenningarhátíð í Reykjavík verður haldin í 19. – 24. apríl 2016.
Ef þú hefur hug á að koma á undirbúningsfundinn biðjum við þig að skrá þig hér (ýtið á ctrl og smellið á „hér“).
Allir velkomnir.
Þóra Melsted
Deildarstjóri barnastarfs
Frístundamiðstöðin Gufunesbær
V/Gufunesveg112 Reykjavík
s. 411-5600
Hin árlega þrettándagleði Grafarvogsbúa verður haldin miðvikudaginn 6.janúar 2016
Dagskrá
17:15 Kakó-kyndlasala í Hlöðunni.
Skólahljómsveit Grafarvogs leikur létt lög
17:50 Blysför frá Hlöðunni
18:00 Kveikt í brennu, skemmtun á sviði
18:30 Þrettándagleði lýkur með skotkökusýningu
Skotkökusýning í boði Gufunesbæjar
Skemmtum okkur saman ungir sem aldnir og brennum út jólin eins og Grafarvogsbúum einum er lagið.
Fyrir hönd íbúanna í hverfinu hafa eftirtalin féllög og stofnanir undirbúið þrettándagleðina:
Miðgarður, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness, Gufunesbær, frístundamiðstöð, Fjölnir -ungmennafélag,
Skólahljómsveit Grafarogs, Korpúlfuar, skátafélagið Hamar og Íslenska Gámafélagið.
Brassband Reykjavíkur fagnar nýja árinu með stæl, með sígildum völsum, mörsum og polkum, á tónleikum í Grafarvogskirkju 16. janúar kl 16:00.
Verk Strauss-feðga leika stórt hlutverk á tónleikunum. Þar má nefna Radetzky-mars föðursins og þekkta valsa og polka Johann Strauss yngri, svo sem Dónárvalsinn, Tritsch-Tratsch-polka og Keisaravalsinn. Litli bróðir hans Josef Strauss skýtur einnig upp kollinum. Við flytjum auk þess Florentiner-marsinn sem nýtur sín einstaklega vel í flutningi brassbands.
Taktu daginn frá og njóttu þess að hlýða á glæsilega nýárstónlist í kröftugum flutningi brassbandsins.
Aðgangseyrir er 2000 kr en ókeypis fyrir börn undir 18 ára, nema og eldri borgara. Miðasala við innganginn og posi á staðnum.
Stjórnandi sveitarinnar er Jóhann Björn Ævarsson.
Það var flottur hópur íþróttamanna hjá Fjölni sem voru heiðruð í dag.
Athöfnin fór fram í hátíðarsal Fjölnis í Dalhúsum.
Þetta er í 27. skipti sem valið fór fram. Valið fer þannig fram að deildirnar tilnefna hjá sér íþróttamann ársins og senda það til valnefndar sem velur svo íþróttamann ársins.
Í valnefnd eru einstaklingar úr aðalstjórn Fjölnis, en þau eru Birgir Gunnlaugsson varaformaður Fjölnis, Laufey Jörgensdóttir og Málfríður Sigurhansdóttir starfsmaður skrifstofu Fjölnis.
Eftirtaldir einstaklingar voru tilnefndir:
Fimleikadeild
Sigurður Ari Stefánsson –
Frjálsíþróttadeild
Ingvar Hjartarson –
Handboltadeild
Kristján Örn Kristjánsson –
Karatedeild
Viktor Steinn Sighvatsson –
Knattspyrnudeild
Viðar Ari Jónsson –
Körfuboltadeild
Garðar Örn Sveinbjörnsson –
Skákdeild
Héðinn Steingrímsson –
Sunddeild
Jón Margeir Sverrisson –
Tennisdeild
Hera Björk Brynjarsdóttir –
Taekwondodeild
Sigursteinn og Þórunn Kristín Snorrabörn
Einnig var valinn Fjölnismaður ársins 2015 og er það Hermann Kristinn Hreinsson sem þann heiður fær að þessu sinni.
Áfram Fjölnir
Áramótabrennur í Reykjavík verða á sömu stöðum og með sama sniði og undanfarin ár. Byrjað er að safna í kestina.
Eldur verður borinn að köstunum kl. 20.30 á gamlárskvöld á öllum stöðum nema tveimur. Á Úlfarsfelli verður tendrað kl. 15.00 um daginn og í Skerjafirði verður eldur borinn að kestinum kl. 21.00 eftir blysför sem hefst kl. 20.30.
Gestir eru beðnir um að virða þá reglu að vera ekki með skotelda við brennurnar þar sem mannfjöldi er. Stjörnuljós og blys eru betri kostur enda barnvænt og hættuminna.
Áramótabrennurnar verða á eftirtöldum stöðum:
Stærð brennanna ræðst af mati Eldvarnareftirlitsins á aðstæðum á hverjum stað.
