• HEIM
  • HAFÐU SAMBAND
facebook
email
Helgihald kyrruviku og páska í Grafarvogskirkju
Fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur 12. mars 2025
Keldnaland – niðurstöður samkeppni
Mjólkurbikar KSÍ 2024
Frábær árangur hjá 4 flokki kvenna í knattspyrnu á Barcelona girls Cup:
  • HEIM
  • FRÉTTIR
  • MYNDIR
    • MYNDIR ÚR HVERFINU
  • HVERFIÐ OKKAR
    • VIÐBURÐIR
    • GALLERÍ KORPÚLFSSTAÐIR
    • ATVNNULÍFIÐ
      • VERSLUNARKJARNAR
        • BREKKUHÚSUM
        • HVERAFOLD
        • KORPUTORG
        • LAUFRIMA 21
        • SPÖNGIN
      • Sorpa
        • HVERFISSKIPULAG REYKJAVÍKUR
        • Hlutverk
        • Pappír er ekki rusl
    • FÉLAGASAMTÖK
      • KORPÚLFAR – FÉLAG ELDRI BORGARA Í GRAFARVOGI
      • SKÁTARNIR
    • GRAFARVOGSKIRKJA
      • Fermingar 2020
      • KIRKJUBYGGINGIN
      • LOGAFOLD SAFNAÐARBLAÐ
    • GÖNGU OG HJÓLALEIÐIR
    • HVERFISRÁÐ
      • HVERFIÐ Í TÖLUM
    • Heilsugæsla í Grafarvogi
    • ÍTR
      • GUFUNESBÆR
    • KORT AF GRAFARVOGI
    • MENNING OG LISTIR
      • KARLAKÓR GRAFARVOGS
      • MENNINGARHÚS SPÖNGINNI
    • SAGA GRAFARVOGS
      • KORPÚLFSSTAÐIR
    • SKÓLARNIR Í GRAFARVOGI
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐVAR
      • FRAMHALDSSKÓLAR
      • FRÍSTUNDAHEIMILI
      • HEIMILI OG SKÓLI – LANDSSAMTÖK FORELDRA
        • FORELDRASÁTTMÁLINN
      • LEIK- OG GRUNNSKÓLAR
      • TÓNLISTARSKÓLINN
      • TÓNSKÓLI HÖRPUNNAR
    • STOLT GRAFARVOGS
    • ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR
      • DAGFORELDRAR
        • DAGFORELDRAR Í HVERFINU
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐ Í SPÖNG
      • ELDRI BORGARAR
      • FERÐAÞJÓNUSTA FATLAÐS FÓLKS
      • FÉLAGSLEG RÁÐGJÖF
      • FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR
      • FJÁRHAGSAÐSTOÐ
      • SÉRFRÆÐIAÐSTOÐ VIÐ GRUNNSKÓLA
      • SKAMMTÍMAVISTUN ÁLFALAND
  • AÐSENT EFNI
    • DALE CARNEGIE
      • NÆSTA KYNSLÓÐ
    • TAPAÐ – FUNDIÐ
    • JÓLIN Í GRAFARVOGINUM
  • ÍÞRÓTTIR
    • FJÖLNIR
      • Sumarnámskeið 2019
      • Sumarnámskeið 2018
      • Sumarnámskeið 2016
    • GOLFKLÚBBUR REYKJAVÍKUR – KORPA
    • ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVERA
    • GRAFARVOGSLAUG
      • ALMENNAR UPPLÝSINGAR
  • UM OKKUR

Aðsent efni

Reykjavíkurmót í körfubolta fyrir drengi fædda 2004 dagana 14.-15. janúar í Rimaskóla.

13 jan 2017
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Barnastarf, Börn, Fjölnir körfubolti, Grafarvogur, IBR, Karfa, Reykjavíkurmót 2004 drengja, Rimaskóli, Skemmtilegt

RVK mótið um helgina og er haldið í Rimaskóla – Grafarvogi.

Laugardagur

12:30 Fjölnir-Ármann b

13:30 KR-Valur

14:30 Ármann b-ÍR

15:30 Ármann-Valur

16:30 Fjölnir-ÍR

17:30 KR-Ármann

Sunnudagur

12:00 5-6 sæti

13:00 3-4 sæti 14:00

Úrslitaleikur

Körfuknattleiksdeildir íþróttafélaganna í Reykjavík í samstarfi við Íþróttabandalag Reykjavíkur hafa ákveðið að halda Reykjavíkurmót í körfubolta fyrir drengi fædda 2004 dagana 14.-15. janúar í Rimaskóla.
Leiknir verða 6 hörkuleikir á laugardag og byrjar fyrsti leikur kl 12:30. Barist verður um sæti sunnudaginn 15. jan og byrjar fyrsti leikur kl 12:00 á sunnudag en úrslitaleikurinn er leikinn kl. 14:00.

Hér fyrir neðan er leikjaniðurröðun mótsins.

Körfuboltaáhangendur eru hvattir til að láta sjá sig og fylgjast með næstu kynslóð körfuboltasnillinga. spreyta sig. Til gamans má geta að lið Fjölnis í þessum árgangi eru Íslandsmeistarar 2016.

 

 

 

Email, RSS Follow

Nýtt íþróttahús í Grafarvogi á næsta ári

09 jan 2017
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Barnastarf, Bænir, Borgarholtsskóli, Börn, Egillshöll, Fjölnir, Fjölnir fimleikar, Fjölnir knattspyrna, Fjölnir körfubolti, Frístundaheimili Grafarvogi, Frjálsar íþróttir, Grafarvogur., Íþróttaakaemían, Íþróttir, Krakkar, Reginn

Fyrir stuttu var skrifað undir samning við íþróttafélagið Fjölni, fasteignafélagið Reginn og Borgarholtsskóla um uppbyggingu á fjölnota íþróttahúsi við Egilshöll í gær. Jafnframt var innsiglað samstarf þessara aðila um notkun á húsinu og annarra íþróttamannvirkja í Grafarvogi.

Nýtt 3.000 fermetra alhliða íþróttahús verður reist við Egilshöll og tekið í notkun í byrjun næsta árs. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, Helgi S. Gunnarsson,  forstjóri Regins og Jón Karl Ólafsson, formaður Fjölnis skrifuðu í gær undir samkomulag um uppbyggingu, framkvæmd og reksturs hússins.

Aðstaðan í Grafarvoginum verður um leið og húsið verður risið mun betri fyrri boltagreinar, handbolta og körfubolta, sem hafa verið í mikilli sókn í hverfinu.

Unnið er að mótun framtíðarstefnu og samningum við fleiri íþróttafélög í borginni og vonast ég til að niðurstaða í þeim efnum liggi fyrir á næstu vikum og mánuðum.

Húsið,sem er fyrst  og fremst hugsað fyrir handknattleik og körfuknattleik auk annarra íþróttagreina verður eign Regins, byggt og rekið á vegum félagsins. Reykjavíkurborg leigir  tíma í hinu nýja húsi fyrir íþróttastarf Fjölnis.

Fjölnir og Reginn gerðu einnig með sér samkomulag um samstarf um rekstur þessa nýja mannvirkis auk annarra rekstrareininga í Egilshöll, en fyrir eru  eldri samningar um knatthús, fimleikahús auk annarrar íþrótta- og félagsaðstöðu.

Við sama tækifæri var skrifað undir samkomulag Reykjavíkurborgar, Borgarholtsskóla og Ungmennafélagsins Fjölnis um afnot Borgarholtsskóla af íþróttamannvirkjum Fjölnis, Egilshallar og Reykjavíkurborgar í Grafarvogi fyrir nemendur og sérstaklega afreksíþróttasvið skólans.
Undir samkomulagið skrifuðu Ársæll Guðmundsson, skólameistari Borgarholtsskóla, Dagur B Eggertsson,borgarstjóri og Jón Karl Ólafsson, formaður Fjölnis

Borgarholtsskóli og Fjölnir gerðu  af þessu tilefni  sérstakan samstarfssamning um aðkomu þjálfara Fjölnis að starfi afreksíþróttasviðs Borgarholtsskóla með það fyrir augum að styrkja tengsl skólans og ungmennafélagsins.

Ungir fjölniskrakkar með borgarstjóra, Degi B Eggertssyni, Jóni Karli Ólafssyni, formanni Fjölnis, Helga S Gunnarssyni, forstjóra Regins og

Ársæli Guðmundssyni, skólameistara í Borgarholtsskóla.

 

 

Hérna má skoða nánar teikningar af nýja húsinu…..

Skjal 1…..

Skjal 2…..

 

 

 

 

 

 

Email, RSS Follow

Sunnudagurinn 8. janúar – Nýr prestur settur inn í embætti og sunnudagaskólinn hefst á ný

07 jan 2017
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Bænahald, Bænir, Félag eldriborgara í Grafarvogi, Fermingar í Grafarvogi, Fjölnir, Grafarvogskirkja, Grafarvogur., Helgihald, Prestar, Safnaðarstarf

Messa  kl. 11:00

Séra Gísli Jónasson prófastur setur sr. Grétar Halldór Gunnarsson inn í embætti prests við Grafarvogssöfnuð. Sr. Grétar Halldór prédikar og prestar sanfaðarins þjóna fyrir altari.
Eftir messu verður boðið upp á léttan hádegisverð og kaffi.

Sunnudagaskóli kl. 11:00

Loksins hefst sunnudagaskólinn í Grafarvogskirkju á ný eftir jólaleyfi. Umsjón hafa Þóra Björg Sigurðardóttir og Bjarki Geirdal Guðfinnsson. Undirleikari er Stefán Birkisson.

Selmessa og sunnudagaskóli í Kirkjuseli hefst á ný sunnudaginn 15. janúar kl. 13:00

Velkomin í kirkju!

Email, RSS Follow

Þrettándagleði Grafarvogsbúa

04 jan 2017
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Barnastarf, Grafarvogur, Grunnskólar Grafarvogs, Gufunesbær, Helgihald, Kakó við Gufunesbæ, Reykjavík, Skemmtilegt, Þrettándabrenna, Þrettándagleði

Hin árlega þrettándagleði Grafarvogsbúa verður haldin við Gufunesbæ föstudaginn 6. janúar 2017.

  • 17:00 Kakósala í Hlöðunni. Skólahljómsveit Grafarvogs leikur létt lög
  • 17:55 Blysför frá Hlöðunni
  • 18:00 Kveikt í brennu og skemmtun á sviði
  • 18:30 Þrettándagleði lýkur með flugeldasýningu

 

 

 

 

 

 

Email, RSS Follow

Næsta laugardag klukkan 13 – 15 er opin og ókeypis tæknismiðja fyrir börn og foreldra á safninu Spönginni

03 jan 2017
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Barnastarf, Borgarbókasafnið Spönginni, Börn, Grafarvogskirkja, Grafarvogur., Koder, Krakkar, Rimaskóli, Skemmtilegt, Tækni og tilraunaverkefni

Tækni- og tilraunaverkstæði

Borgarbókasafnið | Menningarhús Spönginni
Laugardaginn 7. janúar klukkan 13-15

Við bjóðum krakka og fjölskyldur velkomin á opið tækni- og tilraunaverkstæði í Spönginni. Þar munu leiðbeinendur Kóder verða boðnir og búnir að aðstoða gesti við að prófa sig áfram með og læra um smátölvuna Raspberry Pi, Minecraft forritun, Scratch, sem er einfalt forritunarmál sem hentar yngstu börnunum vel, og ýmislegt fleira. Ekki er um eiginlegt námskeið að ræða heldur tækifæri fyrir krakka, og ekki síst forráðamenn þeirra, að kynnast, fikta og læra saman um spennandi tækni og forritun og hvað sé hægt að skapa með henni.

Námskeiðin sem Kóder hafa boðið upp á eru flest fyrir 6-14 ára en bæði yngri og eldri tæknigrúskurum er sannarlega velkomið að koma og fikta og kynnast því sem samtökin hafa upp á að bjóða.

Samtökin Kóder hafa staðið fyrir fjölbreyttum námskeiðum fyrir börn og unglinga í ýmiss konar forritun og starfa þau af mikilli hugsjón um að öll börn eigi að hafa greiðan aðgang að þeirri þekkingu sem felst í forritun – tæknikunnáttu og tæknilæsi. Borgarbókasafnið deilir þeirri hugsjón að tæknilæsi sé ákaflega mikilvægur þáttur í menntun barna og mun leitast við að styðja það á komandi misserum.

Allir velkomnir og aðgangur ókeypis!  Nánari upplýsingar….

 

 

Email, RSS Follow

Vitlaust gefið í Reykjavík – Hróbjartur Jónatansson skrifar

03 jan 2017
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Hverfi Reykjavíkur, Hverfisráð, Íbúar, Skipulag

Hróbjartur Jónatansson

Ég hjó eftir því snemmsumars að bæjarstýra Seltjarnarness tjáði sig í blaðagrein um niðurstöðu þjónustukönnunar sem Gallup gerir árlega í stærstu sveitarfélögum landsins, en þar kom fram að ánægja með þjónustu við barnafjölskyldur er mest á Seltjarnarnesi af þeim sveitarfélögum sem tóku þátt. Hún var lukkuleg með sinn bæ, eðlilega. Önnur smærri sveitarfélög á suð-vesturhorni landsins sem tóku þátt komu víst líka ágætlega út. Reykjavíkurborg sá hins vegar ekki ástæðu til að taka þátt í könnuninni í ár og mæla viðhorf borgarbúa til þess hvernig borgin sinnir íbúunum að þessu leyti. Ástæðan er sú að borgin tók þátt í könnuninni á síðasta ári og kom illa út úr þeim mælingum og borgarstjórnarmeirihlutinn hefur því að líkindum ákveðið að hætta að mæla óánægju borgarbúa til þess eins að kunngera hana almenningi.

Það blasir við samkvæmt þessum þjónustumælingum sveitarfélaga að ánægja íbúanna virðist vera mest í minni sveitarfélögum þar sem nærsamfélaginu er stýrt af íbúunum sjálfum. Það er því umhugsunarefni að skoða stöðu einstakra íbúðasvæða Reykjavíkur til áhrifa á sitt nærsamfélag í samhengi við minni sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu. Þar birtist nokkuð sérkennileg mynd.

Við vesturmörk Reykjavíkur er Seltjarnarnes og þar búa um 4.400 manns, eða sem nemur tæplega helmingi íbúa í Seljahverfinu í Reykjavík. Bæjarfulltrúar Seltjarnarness eru 14 talsins, þar af sjö aðalmenn. Sérstakur bæjarstjóri stýrir rekstri sveitarfélaginu. Allir bæjarfulltrúar þess og bæjarstjóri búa á Seltjarnarnesi og lifa og hrærast innan marka sveitarfélagsins sem telur 2 km², sem er tæplega helmingur af byggðu svæði í Breiðholti í Reykjavík, þar sem búa í heild 21.000 manns. Fasteignaverð á Seltjarnarnesi hefur hækkað umtalsvert á síðustu misserum, umfram meðaltal á höfuðborgarsvæðinu. Hvorki eru þó hús þar betur byggð en önnur né veðursældin meiri þar en í Reykjavík. Rökrétt er því að áætla að hækkandi fasteignaverð þar sé ekki síst tilkomið vegna mikilla áhrifa íbúanna á sitt nærsamfélag.

Við austurmörk Reykjavíkur er Mosfellsbær sem er um 185 km², að stærð (ekki þó allt í byggð) og telur u.þ.b. 9.500 manns. Þar stjórna 18 bæjarfulltrúar, þar af níu aðalmenn. Allir bæjarfulltrúar og bæjarstjóri búa í bænum og líkt og á Seltjarnarnesi, þá stýra íbúarnir sínum málum sjálfir, þekkjandi sitt nærsamfélag út í hörgul. Við suðurmörk borgarinnar er svo Kópavogur sem þekur í heild 80 km². Þar búa u.þ.b. 34.500 manns. Allir bæjarfulltrúar og bæjarstjóri búa í Kópavogi. Almennt séð var ánægja íbúa í Mosfellsbæ og Kópavogs með þjónustu sveitarfélagsins mikil, eftir því sem sagt er. Sömu sögu er að segja um sveitarfélögin Garðabæ með tæplega 15.000 íbúa og Hafnarfjörð, með um 28.000 íbúa. Íbúarnir þar stjórna sér sjálfir með eigin bæjarstjórnir og bæjarstjóra.

Í Reykjavík víkur öðru við. Þar eru íbúar um 123.000 sem dreifast u.þ.b. með þessum hætti í borgarhverfin pr. 1. janúar 2016; Miðbærinn í póstnr. 101 með um 15.800 manns; Vesturbærinn póstnr. 107, með um 8.600 íbúa; Austurbærinn póstnr. 103, 4, 5 og 8 með alls um 40.000 manns; Breiðholtið póstnr. 109 og 111 með um 21.000 íbúa, Árbærinn, póstnr. 110, með um 12.000 íbúa; Grafarvogur og Grafarholt, póstnr. 112 og 113 með um 23.000 íbúa og svo loks Kjalarnes, póstnr. 116, með tæplega 1000 íbúa.

Í Reykjavík eru 15 borgarfulltrúar. Af þeim búa tíu borgarfulltrúar í póstnr. 101 og 107. Því eiga tæp 70% kjörinna borgarfulltrúa sitt heimili sitt í mið- og vesturbænum, sem telur samtals um 24.000 íbúa. Hinir fimm fulltrúarnir eru búsettir þannig; einn er í 104, tveir eru í 105, einn í 108 og einn í 109. Af níu borgarfulltrúum meirihlutans búa sjö í mið- og vesturbænum en hinir tveir búa aðeins austar en þó vestan við Elliðaár. Er nema von að borgarapparatið sé meira og minna upptekið af vesturhluta borgarinnar. Eins og sjá má eiga fjölmenn borgarhverfi enga fulltrúa í borgarstjórn sem beinlínis búa í hverfinu. Svokölluð hverfisráð eru gagnslaus vettvangur fyrir íbúalýðræði eins og nýleg skýrsla borgarinnar sjálfrar um þau staðfestir. Nýverið mætti svokallaður svæðisstjóri Breiðholts í Kastljós RÚV til þess að ræða þessa afleitu slúðurskýrslu Rauða krossins um fátækt í Reykjavík þó að Breiðholtið væri þar þó aðeins til umfjöllunar, einkum nokkrar götur í Efra-Breiðholti. Þessi ágæti svæðisstjóri Breiðholts býr hins vegar ekki í hverfinu sem hann »stýrir« heldur í miðbænum í póstnr. 101, ekki langt frá borgarstjóranum sjálfum. Það að svæðisstjóri Breiðholts búi í 101 sýnir í hnotskurn grundvallargallana í stjórnsýslukerfi borgarinnar og þá mismunun sem ríkir í íbúalýðræði á höfuðborgarsvæðinu.

Ef rétt er að fylgni sé á milli gæða á þjónustu sveitarfélags og hærra fasteignaverðs og svo áhrifa íbúa á sitt nærsamfélag er ljóst að borgarbúar hafa allir verulega hagsmuni af því hvernig borgarfulltrúar eru valdir. Tæpast er hægt að una við það lengur að fólk búsett í vestasta hluta borgarinnar fari með öll völd og stjórni og stýri eftir sínu höfði hagsmunum allra borgarbúa í þessu fjölmennasta og víðfeðmasta sveitarfélagi landsins, meðan íbúar annarra hverfa borgarinnar eru nánast valdalausir um sitt nærumhverfi.

Fyrir liggur að borgarfulltrúum í Reykjavík mun brátt verða fjölgað úr 15 í 21. Í sama kosningafyrirkomulagi um val á borgarfulltrúum og nú gildir er líklegra en ella að þeir komi að miklum meirihluta úr vesturhluta borgarinnar. Það væri auðvitað óásættanlegt fyrir þá sem byggja hinn miklu fjölmennari austari hluta hennar. Það eru sýnilega tvær augljósar leiðir til að leiðrétta þetta ójafnvægi; Annað hvort að búta Reykjavík í sundur í smærri sveitarfélög þannig að til að mynda Breiðholtið og Grafarvogur og álíka fjölmennir borgarhlutar fengju að stjórna sínu nærsamfélagi sjálfir. Þá byggju íbúar borgarinnar við sama íbúalýðræði og áðurgreind nágrannasveitarfélög. Hinn kosturinn, sem er líklega raunhæfari, að kjördæmavæða Reykjavík og hvert kjördæmi borgarinnar fengi þá hlutfallslegan fjölda fulltrúa í borgarstjórn miðað við íbúafjölda þess. Að frátöldum þessum leiðum, þá er væntanlega aðeins eftir sá kostur að fólk í stærstu hverfum borgarinnar taki sig til og hafni þessum hefðbundnu framboðum í nafni stjórnmálaflokkanna og bjóði fram sína hverfislista. Eins og fyrirkomulagið er núna er augljóst að verulegur lýðræðishalli er í borginni sem þarf að minnka án tafar.

>> Tæpast er hægt að una við það lengur að fólk búsett í vestasta hluta borgarinnar fari með öll völd og stjórni og stýri eftir sínu höfði hagsmunum allra borgarbúa í þessu fjölmennasta og víðfeðmasta sveitarfélagi landsins

 


Email, RSS Follow

Íþróttamaður ársins 2016 – Fjölnir

01 jan 2017
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Fimleikar, Fjölnir, Fjölnir fimleikar, Fjölnir knattspyrna, Grafarvogskirkja, Grafarvogur., Íþróttir, Rimaskóli, Skemmtilegt

Þetta er í 28 skipti sem valið fer fram.   Í fyrra var Kristján Örn Kristjánsson, handboltamaður valinn  íþróttamaður ársins og  Hermann Kristinn Hreinsson valinn, Fjölnismaður ársins.

Þau sem voru valin fyrir árið 2016 eru,

Íþróttamaður ársins var valinn Viðar Ari Jónsson, knattspyrnumaður

Fjölnismaður ársins var valinn Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir, formaður fimleikadeildar


1. Val á íþróttamanni ársins fer þannig fram, að Íþróttamenn deilda eru kjörnir ár hvert af deildum félagsins og skulu deildirnar velja einn íþróttamann karl eða konu sem skarað hefur fram úr öðrum iðkendum og skal fylgja þeirra vali skrá yfir afrek viðkomandi. Afrekaskrá skal vera minnst fimm línur og mest tíu línur.
Fulltrúi aðalstjórnar félagsins afhendir farandbikar sem Íþróttamaður ársins varðveitir í eitt ár.  Íþróttamaður ársins fær einnig afhentan eignarbikar sem gjöf frá aðalstjórn Fjölnis.
2. Val á Fjölnismanni ársins fer þannig fram að , Fjölnismaður ársins er kjörinn ár hvert af aðalstjórn félagsins. Fjölnismaður ársins skal vera íslenskur ríkisborgari og hafa lagt til framúrskarandi framlag til félagsins í formi sjálfboðavinnu, hvatningu og eða annað sem tekið hefur verið eftir og unnið óeigingjarnt starf. Deildir félagsins geta komið með ábendingar um einstakling sem gæti komið til greina.
Fulltrúi aðalstjórnar félagsins afhendir farandbikar sem Fjölnismaður ársins varðveitir í eitt ár. Fjölnismaður ársins fær einnig afhentan eignarbikar sem gjöf frá aðalstjórn Fjölnis.
Valnefndin er skipuð aðalstjórn félagsins og starfsmaður nefndarinnar er Málfríður Sigurhansdóttir íþrótta- og félagsmálafulltrúi Fjölnis.

Við munum byrja á að heiðra afreksmenn hverrar deildar og eru þeir eftirfarandi;

Fimleikadeild ­ Ásta Kristinsdóttir
Frjálsíþróttadeild ­ Helga Þóra Sigurjónsdóttir
Handboltadeild ­ Sveinn Jóhannsson
Karatedeild ­ Viktor Steinn Sighvatsson
Knattspyrnudeild ­ Viðar Ari Jónsson
Körfuboltadeild ­ Róbert Sigurðsson
Skákdeild ­ Dagur Ragnarsson
Sunddeild ­ Jón Margeir Sverrisson
Tennisdeild ­ Hera Björk Brynjarsdóttir 

Tilnefningar til Fjölnismaður ársins voru að þessu sinni:


Guðlaug Karlsdóttir, körfuknattleiksdeild
Guðmundur Búi Guðmundsson – knattspyrnudeild
Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir, fimleikadeild
Sveinn Þorgeirsson – handboltadeild

Við óskum öllum þessum frábæru fulltrúum Fjölnis fyrir frábært ár.

Gleðilegt nýtt ár

 

 

Email, RSS Follow

Gamlársdagur og nýársdagur í Garafarvogskirkju

30 des 2016
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Barnastarf, Bænahald, Bænir, Grafarvogskirkja, Grafarvogur, Guðþjónusta, Helgihald, Kirkjan, Prestar, Safnaðarstarf, Sóknarnefnd

Gamlársdagur 31. desember
Aftansöngur í Grafarvogskirkju kl. 18.00

Prestur: séra Arna Ýrr Sigurðardóttir
Kór Grafarvogskirkju syngur
Einsöngur: Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú)
Organisti: Hákon Leifsson

Nýársdagur 1. janúar
Hátíðarguðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl. 14.00

Prestur: séra Grétar Halldór Gunnarsson
Kór Grafarvogskirkju syngur
Einsöngur: Þóra Einarsdóttir
Organisti: Hákon Leifsson

Email, RSS Follow

Fjölnir – Íþróttamaður ársins 2016

30 des 2016
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Fermingar í Grafarvogi, Fjölnir, Fjölnir handbolti, Fjölnir knattspyrna, Fjölnir körfubolti, Frjálsar íþróttir, Grafarvogur., Íþróttamaður Fjölnir, Skemmtilegt

Föstudaginn 30 desember 2016, daginn fyrir gamlársdag fer fram val á íþróttamanni Fjölnis 2016 í Sportbitanum í Egilshöll og hefst hófið kl. 18:00.  Þetta er í 28 skipti sem valið fer fram og hvetjum við alla Fjölnismenn, iðkendur, þjálfara, foreldra og Grafarvogsbúa almennt að fjölmenna og heiðra íþróttafólkið okkar.  Þetta er orðin árviss hefð og gaman að sjá hversu margir mæta á ári hverju og heiðra íþróttafólkið okkar og fara yfir árið.

Dagskrá

Kynntur er afreksmaður hverrar deildar og þeir heiðraðir sérstaklega

Fjölnismaður ársins valinn

Íþróttamaður Fjölnis valinn

Í fyrra var Kristján Örn Kristjánsson valin íþróttamaður Fjölnis en hann kemur úr handboltadeildinni og Fjölnismaður ársins 2015 var valinn Hermann Kristinn Hreinsson knattspyrnuþjálfari og starfsmaður félagsins.

Hvetjum alla til að koma og heiðra afreksfólkið okkar , Áfram Fjölnir

Hérna er listi yfir þá íþróttamenn sem valdir voru……

Hérna er hægt að skoða myndir frá viðburðinum….


Email, RSS Follow
« First‹ Previous66676869707172Next ›Last »
banner
banner
banner
banner
banner
banner

Gagnlegir tenglar

  • HEILSUGÆSLAN
  • MIÐGARÐUR
  • HVERFIÐ MITT
  • MOJE_S_SIEDZTWO
  • MANO_KAIMYNIST_JE
  • MY NEIGHBOURHOOD

Börnin okkar

  • FRAMHALDSSKÓLAR
  • GUFUNESBÆR
  • LEIK OG GRUNNSKÓLAR
  • SKÁTAFÉLAGIÐ HAMAR
  • TÓNLISTARSKÓLINN

GRAFARVOGSBÚAR Á FLICKR

Allur réttur áskilinn © 2024
www.grafarvogsbuar.is