Laugardaginn 4. janúar opnar World Class nýja og glæsilega 2.400m2 heilsuræktarstöð í Egilshöll. Margvíslegar nýjungar verða kynntar í Egilshöll og má þar meðal nefna Energy+ frá PaviGym.
Tækjasalur og 3 hóptímasalir
Í Egilshöll eru 3 hóptímasalir, einn fjölnota salur og einnig sérstakir salir fyrir Hot Yoga salur og Spinning. Tækjasalur Egilshallarinnar er mjög stór og er fullbúinn með glæsilegum þol- og lyftingartækjum frá LifeFitness. Í stöðinni verður einnig massahorn.
Barnagæsla
Í Egilshöll verður barnagæsla þar sem börn geta stytt sér stundir meðan foreldrar stunda sínar æfingar.
Sérstakir kynningartímar á opnunardag, 4. janúar.
Kynning á nýjungum í tímatöflu sem hefst þann 6. janúar.
Energy + 09.00 (30 mín) Kennari Tinna Arnard.
Foamroll 09.45 (30 mín) Kennari Helga Camilla
Energy + 10.30 (30 mín) Kennari Tinna Arnard.
Foamroll 11.15 (30 mín) Kennari Helga Camilla
Ókeypis verður að æfa í Egilshöll laugardaginn 4. janúar og bjóðum við alla velkomna!