Í gær var gengið frá ráðningu á tveimur nýjum þjálfurum hjá knattspyrnudeildinni fyrir næstkomandi tímabil.
Dusan Ivkovic var ráðinn sem æfingaþjálfari hjá 4, 3 og 2 flokki karla og eins mun hann koma að séræfingum hjá deildinni. Dusan hefur spilað með liðum í efstu deild í Serbíu og kom svo til Íslands og spilaði með KS, Þrótti R og Njarðvík.
Sveinn Guðmundsson var ráðinn sem þjálfari 2 flokks kvenna. Hann tekur við af Daníel Jóhannnssyni sem lætur nú af störfum. Við þökkum honum fyrir góð störf fyrir félagið.
Sveinn hefur bæði þjálfað meistaraflokk og yngri flokk kvenna en síðast var hann þjálfari hjá Álftanes.
Við bjóðum þá báða velkomna til starfa og væntum mikils af þeim á næsta tímabili.