Listamenn á Korpúlfsstöðum opna vinnustofur sínar og bjóða gesti, gangandi, skokkandi, hjólandi og akandi velkomna í heimsókn.
Nu er tilvalið að bregða sér í heimsókn í myndarlega býlið við borgarmörkin, heimsækja listamenn á vinnustofur þeirra, skoða húsið, finna fyrir sögunni og tylla sér aðeins niður og njóta góðra veitinga á kaffihúsinu Litli Bóndabærinn.
Líttu við og spjallaðu við listamenn a vinnustofum sínum.
kveðja
Korpart