Christopher P. Tsonis hefur skrifað undir samning við Fjölni til loka tímabilsins 2014. Chris spilaði með Tindastól í 1. deildinni í fyrrasumar við góðan orðstýr og skoraði 6 mörk í 20 leikjum ásamt því að skora 3 mörk í 3 leikjum í Borgunarbikarnum.
Chris flýgur heim til Bandaríkjanna í dag og er svo væntanlegur um miðjan mars mánuð til Íslands og ætti því að verða í toppstandi fyrir Pepsi deildina í sumar.
Á mynd hér að neðan eru Kristján Einarsson formaður knattspyrnudeildar Fjölnis og Chris Tsonis að handsala samninginn. Til að fyrirbyggja misskilning þá er Chris Tsonis í fagurgula Fjölnisbúningnum.