Nýjar reglur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks

straetoÞann 1. janúar 2015 taka gildi nýjar reglur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks í Reykjavík, sjá meðfylgjandi reglur.

Helstu breytingarnar á reglunum eru að nú getur hver einstaklingur fengið að hámarki 60 ferðir á mánuði, en þjónustumiðstöðvum velferðarsviðs er heimilt að veita fleiri ferðir til þeirra notenda sem eru, auk annars í mikilli virkni, s.s. íþróttum eða skipulögðu félagsstarfi. Umframferðir geta að hámarki verið 20 og heildarfjöldi ferða því 80 á mánuði. Notandi skal, samkvæmt gjaldskrá, greiða hærra gjald fyrir umframferðir.

Um áramótin breytist einnig gjaldskrá velferðarsviðs um ferðaþjónustu fatlaðs fólks  sjá meðfylgjandi gjaldskrá, þannig að þegar fjöldi ferða fer yfir 60 á mánuði er greiddar kr. 1.100 fyrir hverja ferð.

Vakni spurningar um þjónustuna er hægt að snúa sér til þjónustumiðstöðvar í þínu hverfi eða þjónustuvers Reykjavíkurborgar.

Þjónustumiðstöðvar:

  • Þjónustumiðstöð Vesturbæjar – Vesturgarður, Hjarðarhaga 45-47, s. 411 1700.
  • Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, Skúlagötu 21, s. 411 1600.
  • Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis, Síðumúla 39, s. 411 1500.
  • Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness, Miðgarður, Gylfaflöt 5, s. 411 1400.
  • Þjónustumiðstöð Breiðholts, Álfabakka 12, s. 411 1300.
  • Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts, Hraunbæ 115, s. 411 1200.

Þjónustuver borgarinnar: sími 4 11 11 11.

Bæklingur frá Strætó bs. um tilhögun ferðaþjónustunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.