Laugardagur kl. 14:00 – Leiknisvöllur
Lokaleikur sumarsins hjá strákunum í meistaraflokki í knattspyrnu er á laugardaginn kl. 14:00 þegar strákarnir fara í Breiðholtið og mæta Leiknismönnum. Eins og allir vita eru strákarnir efstir í deildinni fyrir þennan síðasta leik en staðan í deildinni er þannig að ekkert nema sigur kemur liðinu upp í Pepsideild. Þetta verður gríðarlega erfiður leikur og algjörlega lífsnauðsynlegt að Fjölnismenn fjölmenni á völlinn á laugardaginn og hvetji strákana.
ALLIR Í BREIÐHOLTIÐ Á LAUGARDAGINN
Ekki gleyma að mæta í búning.
ÁFRAM FJÖLNIR