Frístundaheimilið Kastali er frístundaheimili við Húsaskóla í Grafarvogi.
Síðastliðin þrjú ár höfum við tvískipt heimilinu í eldri og yngri aldurshóp. Börnin í 1. og 2. bekk eru inn í Kastala sem er staðsettur inni í Húsaskóla í stofu 3. Börnin í 3. og 4. bekk eru í Turninum í kennslustofum 11 og 12 og þau samnýta aðra stofuna með félagsmiðstöðinni Nagyn. Síðdegishressingin fer fram í Kastala en hann er í lausri kennslustofu við hlið skólans.
Í vetur eru samtals 74 nemendur hjá okkur, um 49 nemendur í Kastala og 25 nemendur í Turninum.
Björg Blöndal hefur yfirumsjón með frístundarheimilinu og póstfangið hennar er: bjorgb@itr.is http://www.gufunes.is/kastali kastali@reykjavik.is
Síminn í Kastala er: 695-5194 og síminn í Turninum er: 618-5194