Íslandsmót barna í skák fer fram í Rimaskóla laugardaginn 11. janúar og hefst klukkan 12. Þátttökurétt hafa börnfædd 2003 og síðar og sigurvegarinn fær sæmdarheitið Íslandsmeistari barna 2014 og keppnisrétt á Norðurlandamótið í skólaskák sem haldið verður í Danmörku um miðjan febrúar, nánar tiltekið í Legolandi!
Alls verða tefldar 9 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma. Eftir 5 umferðir verður keppendum fækkað þannig að þeir sem hafa 3 vinninga eða fleiri halda áfram keppninni um Íslandsmeistaratitilinn en þeir sem hafa færri en 3 vinninga hafa lokið þátttöku.
Peðaskákmót verður haldið samhliða mótinu og hefst klukkan 13:00. Það er ætlað fyrir leikskólabörn og þau allra yngstu í grunnskólum sem eru ekki tilbúin fyrir Íslandsmótið.Skákdeild Fjölnis verður með veitingasölu á meðan mótinu stendur.
Þetta er í 21. sinn sem keppt er um Íslandsmeistaratitil barna. Sigurður Páll Steindórsson sigraði á fyrsta mótinu árið 1994, en meðal annarra meistara má nefna titilhafana Dag Andra Friðgeirsson, Nansý Davíðsdóttur og Hjörvar Stein Grétarsson. Núverandi Íslandsmeistari barna er Vignir Vatnar Stefánsson.
Skáksamband Íslands og Skákakademían annast framkvæmd mótsins. Keppendur eru hvattir til að skrá sig sem fyrst hér á Skák.is. Fram þarf að koma fullt nafn, grunnskóli og fæðingarár. Þátttökugjald er 1.000 kr (1.500 að hámarki á systkini) og greiðist á mótsstað fyrir upphaf umferðar.
Veitt eru sérstök verðlaun fyrir bestan árangur í hverjum árgangi.
Öllum nemendum í 1. – 5. bekk Rimaskóla sem kunna að tefla og hafa gaman af skák er boðið að vera með.
Helgi Árnason
Rimaskóli