Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með eldsumbrotunum í Holuhrauni og áhrifum þeirra og gefur út viðvaranir ef þörf er á. Á vefsíðu Heilbrigðiseftirlitsins má sjá kort yfir staðsetningu loftgæðamælistöðva í Reykjavík en þar er hægt að fylgjast með styrk brennisteinsdíoxíðs og annarra efna. Liturinn er grænn ef styrkurinn er undir heilsuverndarmörkum fyrir öll efni en sýndur er hæsti styrkur efna á hverjum tíma.
Til að fá ítarlegri upplýsingar um loftgæði í Reykjavík má velja mælistað á kortinu. Styrk brennisteinsdíoxíðs (SO2) er hægt að skoða í loftgæðafarstöð II, sem nú er staðsett við leikskólann Sjónarhól í Völundarhúsum 1 í Grafarvogi og loftgæðamælistöðinni við Grensásveg.
Styrkur brennisteinsdíoxíðs í loftgæðamælistöð við Norðlingaholt var klukkan 11:10 um 600 míkrógrömm á rúmmetra og er líklegt að gildi geti farið í sambærilegan styrk annarsstaðar í Reykjavík í dag. Heilbrigðiseftirlitið vísar í töflu á heimasíðu Almannavarna http://avd.is/is/?p=835 en þar kemur fram að ef styrkur fer yfir 600 míkrógrömm á rúmmetra er fólki ráðlagt að forðast áreynslu utandyra. Fólki sem er viðkvæmt í lungum er ráðlagt að fylgjast sérstaklega vel með mælingum á loftgæðum á http://reykjavik.is/loftgaedi eða á vef Umhverfisstofnunar http://www.ust.is/einstaklingar/loftgaedi/maelingar/