Grafarvogskirkja – Helgihald á aðventu, jólum 2017

Að venju er mikil dagskrá í Grafarvogssöfnuði yfir hátíðarnar og allir ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi. Smelltu á dagana hér fyrir neðan til þess að sjá dagskrá hvers dags.

Starfsfólk Grafarvogskirkju óskar þér og þínum gleðilegra jóla og Guðs blessunar á komandi ári.

Aðfangadagur

Jólastund barnanna í Grafarvogskirkju kl. 15.00

Stundin fer fram á neðri hæð kirkjunnar.

Syngjum saman jólalög, hlustum á sögu og höfum það huggulegt. Umsjón með stundinni hefur Þóra Björg Sigurðardóttir

Aftansöngur í Grafarvogskirkju kl. 18.00

Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar. Einsöngvari er Egill Ólafsson. Auður Hafsteinsdóttir leikur á fiðlu og Sophie Marie Schoonjans leikur á hörpu. Kór og Barnakór Grafarvogskirkju syngur. Organisti er Hákon Leifsson og stjórnandi barnakórsins er Sigríður Soffía Hafliðadóttir.

Aftansöngnum verður sjónvarpað beint á Stöð 2 og visir.is

Aftansöngur í Kirkjuselinu í Spöng kl. 18.00

Séra Guðrún Karls Helgudóttir prédikar. Einsöngvari er Margrét Eir. Björg Brjánsdóttir leikur á þverflautu. Vox Populi leiðir söng og organisti er Hilmar Örn Agnarsson.

Miðnæturguðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl. 23.30

Séra Sigurður Grétar Helgason prédikar. Kammerkór Grafarvogskirkju syngur og organisti er Hákon Leifsson.

Jóladagur

Hátíðarguðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl. 14.00

Séra Grétar Halldór Gunnarsson prédikar og þjónar. Einsöngvari er Dísella Lárusdóttir. Kór Grafarvogskirkju syngur og organisti er Hákon Leifsson.

Hátíðarguðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Eir kl. 15:30

Séra Grétar Halldór Gunnarsson prédikar og þjónar. Einsöngvari er Dísella Lárusdóttir. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng og organisti er Hákon Leifsson.

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.