Núna styttist í jólin og eru Grafarvogsbúar duglegir að skreyta hjá sér eins og sést á myndunum í þessari frétt. Snjó hefur kyngt niður og er orðið ansi jólalegt í hverfinu sem og borginni allri. Veðurspár gera ráð fyrir hvítum jólum og bæta mun í snjóinn áður en hátíðin gengur í garð en rúm vika er til jóla.
Verslanir í hverfinu eru komnar í jólabúning og hefur jólaverslunin tekið kipp síðustu daga. Grafarvogsbúar eru hvattir til að versla í hverfinu sínu en úrval verslanna er í öllum verslunarkjörnum.