Það er óhætt að segja að mikil sigurgleði sé í Grafarvoginum í dag eftir að Fjölnir tryggði sér sæti í Pepsídeildinni í knattspyrnu á næsta tímabili. Fjölnir mætti Leikni í Breiðholtinu í lokaumferðinni og vann glæstan sigur, 1-3. Leiknir náði forystunni í fyrri hálfleik og ekki blés byrlega fyrir Fjölnismönnum þegar Þórir Guðjónsson fékk að líta rauða spjaldið snemma í síðari hálfleik. Fjölnismenn létu ekki slá sig út af laginu, efldust til muna, og sóknir þeirra urðu æ þyngri.
Ragnar Leósson jafnaði metin á 76. mínútu með góðu skallamarki og aðeins fjórum mínútum siðar kom Matt Ratajczak Fjölni yfir með marki úr vítateignum eftir þunga sókn. Fjölnir bakkaði mikið eftir þetta en þessi staða þýddi að liðið var komið upp í efsta deild. Guðmundur Karl Guðmundsson gulltryggði síðan glæsilega sigur eftir skyndisókn. Mikill sigurgleði braust út í leikslok á meðal leikmanna og stuðningsmanna sem fjölmenntu og studdu vel við bakið á sínum mönnum allan leikinn.
Þetta er einn stærsti sigur Fjölnismanna í sögunni og liðið leikur á næsta ári á meðal þeirra bestu. Að leik loknum afhenti Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, Fjölni bikarinn fyrir sigurinn í deildinni en Víkingur fylgir Fjölni upp í Pepsídeildina.
,,Það er ótrúlegur karakter í þessu liði og stuðningurinn sem liðið fékk í þessum leik var ómetanlegur. Það má segja að allur Grafarvogurinn hafi vaknað undir lokin en þá sýndum við styrk okkar og kláruðum leikinn með ótrúlegum hætti. Við ákváðum að fara í þennan leik með þolinmæðina að vopni og héldum henni út í gegn. Leiknismenn vildu sigur á heimavelli en við vorum bara beittari og höfðum meira að keppa og áttum frábæran lokakafla sem verðum lengi í minnum hafður. Við fögnum þessu í kvöld og það eru skemmtilegir tímar fram undan. Eftir uppskeruhátíðina eftir viku tökum við hlé og tökum síðan þráðinn upp að nýju í nóvember og hefjum undirbúning fyrir næsta tímabil,“ sagði Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis, eftir leikinn.
Aðspurður hvort hann væri með lið í höndunum sem ætti heima í efstu deild sagði Ágúst það alveg klárlega. Hann sagði að liðið hefði sýnt að það sé til alls líklegt. Grunnurinn væri sterkur og í hópnum væru frábærir ungir leikmenn sem hefðu mikinn metnað.
,,Grafarvogsbúar geta verið stoltir af sínu liði. Miðið við frammistöðu liðsins og stuðningsmanna í dag þá lítur næsta ár ótrúlega vel út. Ég er farinn að hlakka strax til,“ sagði Ágúst Gylfason sem verður að öllum líkindum áfram með liðið á næsta tímabili enda búinn að skila sínu og vel það.
Myndir frá leiknum...