Fjölnir og Breiðablik gerðu 1:1 jafntefli í 15. umferð Pepsi deildarinnar í Grafarvoginum í kvöld. Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu hér á mbl.is.
Eftir hræðilega slakan fyrri hálfleik þar sem hvorugu liðinu tókst að skapa sér færi kom Árni Vilhjálmsson Blikum yfir á 52. mínútu en Mark Charles Magee jafnaði á 76. mínútu fyrir Fjölni en þetta var fyrsti leikur hans fyrir félagið.
Liðin þurftu sárlega á þremur stigum að halda í kvöld til að losa siga aðeins frá fallsætunum, en það tókst ekki.
Myndir: Baldvin Örn Berndsen