- flokkur karla Fjölnis varð í gær bikarmeistari í knattspyrnu þegar að liðið lagði Keflavík/Njarðvík að velli úrslitaleik sem fram fór á Nettóvellinum í Keflavík. Fjölnir lenti undir fljótlega í leiknum en Djorde Pjanic jafnaði fyrir Fjölni á 37. mínútu. Ægir Karl Jónasson skoraði tvívegis fyrir Fjölni í síðari hálfleik og gulltryggði glæsilegan sigur.
Strákarnir úr Fjölni léku á köflum mjög góða knattspyrnu og unnu sanngjarnan sigur. Á leið sinni í úrslitaleikinn lögðu Fjölnisstrákarnir m.a. Fram að velli í undanúrslitunum.