Fermingin – og hvað svo ?
Samvera með foreldrum fermingarbarna
fimmtudaginn 13. febrúar kl. 17:30 – 19:00í Grafarvogskirkju
Grafarvogskirkja, í samstarfi við Safnaðarfélag Grafarvogskirkju og Grósku í Grafarvogi boðar til samveru með foreldrum fermingarbarna 13. febrúar þar sem fjalla á um mikilvægi foreldra í uppeldi barna sinna og hvað er mikilvægt að hafa í huga þegar börnin komast á unglingsár.
Dagskrá:
Guðrún Halla Jónsdóttir, félagsráðgjafi í Miðgarði, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness, fjallar um mikilvægi umhyggju, aðhalds og eftirlits foreldra, hversu mikilvægt er fyrir foreldra að sleppa ekki tökunum en styðja börnin til að axla meiri ábyrgð.
Brynhildur Jensdóttir, fíkniráðgjafi hjá Foreldrahúsi, ræðir um ýmsar áskoranir sem foreldrar unglinga standa frammi fyrir í nútímasamfélagi og viðhorf unglinga til kannabisreykinga.
Guðrún Dóra Bjarnadóttir, geðlæknir, fjallar um áhrif kannabisefna á andlega og líkamlega heilsu ungs fólks til lengri eða styttri tíma.
Umræður og fyrirspurnir – Eftirmiðdagshressing og kaffisopi – Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfangiðbergtora.vals@gmail.com
Vonumst til að sjá ykkur sem allra flest!
Prestarnir, stjórn Safnaðarfélagsins og Gróska í Grafarvogi