Stjórn knattspyrnudeildar Fjölnis hefur ráðið Elmar Örn Hjaltalín í fullt starf sem yfirþjálfara yngri flokka deildarinnar frá og með 1 ágúst næstkomandi. Ráðning þessi er mikilvægt skref í því verkefni að halda áfram að efla enn frekar gæðin í starfi yngri flokka deildarinnar. Auk þess að þjálfa 3 flokk drengja og 6 flokk stúlkna mun Elmar vera í fullu starfi sem yfirþjállfari deildarinnar. Hlutverk Elmars mun m.a. felast í að innleiða með markvissari hætti langtímastefnu í starfi yngri flokka deildarinnar auk þess sem aukin áhersla verður lögð á að efla afreksstarf. Á meðfylgjandi mynd má sjá , Guðmund L. Gunnarsson framkvæmdastjóra Fjölnis og Elmar Örn Hjaltalín handsala ráðninguna.
- HEIM
- FRÉTTIR
- MYNDIR
- HVERFIÐ OKKAR
- AÐSENT EFNI
- ÍÞRÓTTIR
- UM OKKUR