Körfuknattleiksmaðurinn Arnþór Freyr Guðmundsson, sem hefur leikið með Fjölni til þessa, hefur samið við spænska félagið Albacete um að spila með því á komandi keppnistímabili. Það er Karfan.is greinir frá þessu.
Fyrr í sumar samdi Arnþór reyndar við Hauka um að leika með þeim í vetur en nú verður ekkert af því að hann fari í Hafnarfjörðinn. Fjölnir féll úr úrvalsdeildinni síðasta vetur en Haukar fóru upp í staðinn. Arnþór er 22 ára og hefur spilað með meistaraflokki Fjölnis frá 2007.
Albacete leikur í fjórðu efstu deild á Spáni, svokallaðri EBA-deild, og hafnaði þar í 9. sæti B-riðils á síðasta tímabili.
„Ég fékk boð í sumar um að spila í Eurobasket Summer League í Madríd og í gegnum það verkefni kom þetta boð úr EBA deildinni. Þetta var í samningi mínum við Hauka svo ég mátti fara út og félagið sýndi þessu skilning,“ segir Arnþór í viðtali við Karfan.is.