Í dag föstudaginn 9. febrúar ætlum við að halda upp á afmæli félagsins í Egilshöll, við eigum afmæli 😊 „Ungmennafélagið Fjölnir verður 30 ára 11. febrúar“.
DJ startar fjörinu klukkan 17:45. Eurovision þátttakendurnir Aron Hannes og Áttan ætla svo að taka boltann og keyra stuðið áfram.
Shake and Pizza og Egilshallarbíó ætla að taka þátt í afmælishátíðinni með okkur.
Shake and Pizza bjóða upp á frían Ís, Fjölnispizza og pizzu sneiðar verða á sérstöku tilboðsverði.
Egilshallarbíó verður með fjórar myndir í boði, þær fyrstu byrja klukkan 17:00 og seinustu 17:50.
Sýningarnar verða á sérstöku Fjölnisverði, 500 krónur miðinn, ath, ekki selt á netinu bara á staðnum.