Rekstrarfélag 10-11 gerði nýlega fínar breytingar á versluninni í Langarimanum. Helstu breytingarnar voru varðandi innganginn í verslunina sem var færður til, þannig að allt aðgengi að versluninni er orðið mun þægilegra fyrir viðskiptavini okkar, við endurskipulögðum alla uppsetningu á hillum, yfirfórum vöruúrvalið í búðinni, stækkuðum nammibarinn o.fl., einnig tókum við hraðbankann inn til okkar og á næstu vikum munum við opna sjálfsafgreiðslu „ísbar“ í samvinnu við Ísgerðina inní búðinni okkar.
Þetta sagði Sigurður Karlsson Rekstrarstjóri 10-11.