• HEIM
  • HAFÐU SAMBAND
facebook
email
Helgihald kyrruviku og páska í Grafarvogskirkju
Fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur 12. mars 2025
Keldnaland – niðurstöður samkeppni
Mjólkurbikar KSÍ 2024
Frábær árangur hjá 4 flokki kvenna í knattspyrnu á Barcelona girls Cup:
  • HEIM
  • FRÉTTIR
  • MYNDIR
    • MYNDIR ÚR HVERFINU
  • HVERFIÐ OKKAR
    • VIÐBURÐIR
    • GALLERÍ KORPÚLFSSTAÐIR
    • ATVNNULÍFIÐ
      • VERSLUNARKJARNAR
        • BREKKUHÚSUM
        • HVERAFOLD
        • KORPUTORG
        • LAUFRIMA 21
        • SPÖNGIN
      • Sorpa
        • HVERFISSKIPULAG REYKJAVÍKUR
        • Hlutverk
        • Pappír er ekki rusl
    • FÉLAGASAMTÖK
      • KORPÚLFAR – FÉLAG ELDRI BORGARA Í GRAFARVOGI
      • SKÁTARNIR
    • GRAFARVOGSKIRKJA
      • Fermingar 2020
      • KIRKJUBYGGINGIN
      • LOGAFOLD SAFNAÐARBLAÐ
    • GÖNGU OG HJÓLALEIÐIR
    • HVERFISRÁÐ
      • HVERFIÐ Í TÖLUM
    • Heilsugæsla í Grafarvogi
    • ÍTR
      • GUFUNESBÆR
    • KORT AF GRAFARVOGI
    • MENNING OG LISTIR
      • KARLAKÓR GRAFARVOGS
      • MENNINGARHÚS SPÖNGINNI
    • SAGA GRAFARVOGS
      • KORPÚLFSSTAÐIR
    • SKÓLARNIR Í GRAFARVOGI
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐVAR
      • FRAMHALDSSKÓLAR
      • FRÍSTUNDAHEIMILI
      • HEIMILI OG SKÓLI – LANDSSAMTÖK FORELDRA
        • FORELDRASÁTTMÁLINN
      • LEIK- OG GRUNNSKÓLAR
      • TÓNLISTARSKÓLINN
      • TÓNSKÓLI HÖRPUNNAR
    • STOLT GRAFARVOGS
    • ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR
      • DAGFORELDRAR
        • DAGFORELDRAR Í HVERFINU
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐ Í SPÖNG
      • ELDRI BORGARAR
      • FERÐAÞJÓNUSTA FATLAÐS FÓLKS
      • FÉLAGSLEG RÁÐGJÖF
      • FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR
      • FJÁRHAGSAÐSTOÐ
      • SÉRFRÆÐIAÐSTOÐ VIÐ GRUNNSKÓLA
      • SKAMMTÍMAVISTUN ÁLFALAND
  • AÐSENT EFNI
    • DALE CARNEGIE
      • NÆSTA KYNSLÓÐ
    • TAPAÐ – FUNDIÐ
    • JÓLIN Í GRAFARVOGINUM
  • ÍÞRÓTTIR
    • FJÖLNIR
      • Sumarnámskeið 2019
      • Sumarnámskeið 2018
      • Sumarnámskeið 2016
    • GOLFKLÚBBUR REYKJAVÍKUR – KORPA
    • ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVERA
    • GRAFARVOGSLAUG
      • ALMENNAR UPPLÝSINGAR
  • UM OKKUR

Aðsent efni

Strákarnir spila við Blika á sunnudag

16 maí 2014
Baldvin
0
Aðsent efni, Fjölnir knattspyrna, Grafarvogur., Grunnskólar Grafarvogs
Einar

Einar Karl

Strákarnir spila gegn Breiðabliki á sunnudaginn kl. 19.15 á Kópavogsvelli. Í seinasta leik þá gerðum við 1-1 jafntefli við Val í hörku leik á Fjölnisvelli. Einar Karl (mynd að ofan) skoraði jöfnunarmarkið undir lok leiksins og fagnaði sem óður maður. Blikarnir hafa ekki farið vel af stað í sumar og verður alveg örugggt að þeir vilja fá öll þrjú stigin gegn nýliðunum. Fjölnisliðið hefur farið vel af stað í sumar og eru taplausir eftir þrjár umferðir með tvo sigra gegn Víking og Þór og svo áður nefnt jafntefli gegn Val. Nokkuð er um smá meiðsli hjá strákunum og eru Árni Kristinn, Atli Þórbergs og Júlíus Orri og er spurning hvort einhver af þeim geti beitt sér gegn Breiðabliki.
Ágúst Örn Arnarson hefur verið lánaður til 1. deildar liðs Selfoss með þeim möguleika á að vera kallaður heim eftir mánuð. Ágúst Örn er við nám í Bandaríkjunum og er því ný kominn til landsins og er þetta hluti af því að koma honum í leikform.
Sjáumst í Kópavoginum á sunnudaginn…

Email, RSS Follow

Annar dagur í afslætti

16 maí 2014
Baldvin
0
Aðsent efni, Félag eldriborgara í Grafarvogi, Fjölnir fimleikar, Fjölnir körfubolti, Gallerí, Gallerí Korpúlfsstaðir, Grafarvogur., Helgihald

Annar dagur í afslætti!
Endilega lítið við, Þórdís verður á vaktinni í dag, föstudaginn 16. maí. Opið frá kl. 14-18. Nú er tækifærið til að kaupa fallegan listmun eða hönnun á góðu verði.
Hjartanlega velkomin!

AÐEINS Í 4 DAGA!
Borgarbúar, nærsveitamenn og landsbyggðarfólk, þið ættuð endilega að gera ykkur smá ferð og líta við í reisulega gamla bóndabænum við borgarmör…kin.
Frá fimmtudegi til sunnudags verður 10% afsláttur af ÖLLUM listaverkum og hönnunarvöru í galleríinu.
Látið ekki einstakt tækifæri fram hjá ykkur fara.
Opið fim-fös kl.14-18 og lau-sun kl.12-16.
Hlökkum til sjá ykkur!

 

Korpúlfsstaðir III Korpúlfsstaðir Korpúlfsstaðir

 

 

 

 

 

 

Email, RSS Follow

Íslenska Gámafélagið býður til veislu

16 maí 2014
Baldvin
0
Aðsent efni, Börn, Dansskóli Reykjavíkur, Fermingar í Grafarvogi, Fjölnir fimleikar, Grafarvogsdagurinn, Prestar

Í tilefni Grafarvogsdagsins býður Íslenska Gámafélagið alla hjartanlega velkomna á opið hús á Grafarvogsdaginn.

17. maí, frá klukkan 13.00-16.00

[su_button url=“http://grafarvogsbuar.is/wp-content/uploads/2014/05/Íslenska-Gámafélagið.pdf“ target=“blank“ style=“3d“ background=“#388f46″ radius=“0″]Skoða dagskrá[/su_button]

 

 

Email, RSS Follow

Fyrsti leikurinn hjá stelpunum

16 maí 2014
Baldvin
0
Aðsent efni, Bænahald, Fjölnir fimleikar, Fjölnir handbolti, Fjölnir knattspyrna, Grafarvogur.
Fjölnis stelpur

Fjölnis stelpur

Meistaraflokkur kvenna hefur leik í kvöld (föstudag) gegn BÍ/Bolungarvík og er leikurinn í Egilshöllinni kl. 20.00. Stelpurnar spila í A-riðli 1. deildar. Helena Jónsdóttir markvörður er aftur komin með leikheimild fyrir Fjölni en hún var á láni hjá Þór Akureyri í vetur. Síðan voru að bætast við tveir mjög góðir leikmenn við hópinn. Helga Franklínsdóttir kemur á láni frá Stjörnunni en Helga spilaði áður fyrr með Fjölni (2004-2008) og verður mikil gleði að fá hana aftur í Grafarvoginn. Esther Rós Arnarsdóttir (17 ára) kom einnig á láni en hun er gríðarlega efnilegur leikmaður úr Breiðabliki. Esther Rós á gríðarlegan fjölda leikja að baki með yngri landsliðinum þar sem hun hefur raðað inn mörkunum svo það er greinilegt að Siggi Víðis er að fá hana til að skora mörkin í sumar.

ALLIR AÐ MÆTA Í EGILSHÖLLINA Í KVÖLD OG HVETJA STELPURNAR, ÁFRAM FJÖLNIR

Mynd: Helga Franklíns þegar hún spilaði með Fjölni árið 2008

Email, RSS Follow

Engin kennsla í grunnskólum

15 maí 2014
Baldvin
0
Aðsent efni, Barnastarf, Skólastarf, Verkfall grunnskólakennara

Það verður eng­in kennsla í grunn­skól­um lands­ins í dag en fundi í kjara­deilu fé­lags grunn­skóla og sveit­ar­fé­lag­anna var að ljúka. Nýr fund­ur hef­ur verið boðaður klukk­an 15, að sögn rík­is­sátta­semj­ara, Magnús­ar Pét­urs­son­ar.

Að sögn Ólafs Lofts­son­ar, for­manns Fé­lags grunn­skóla­kenn­ara, er góður gang­ur í viðræðunum en ákveðið var að slíta fundi nú á sjötta tím­an­um enda ljóst að ekki næðist að semja áður en kennsla ætti að hefjast í grunn­skól­um lands­ins.

Email, RSS Follow

Spennandi sumarskákmót Fjölnis – 44 þátttakendur

14 maí 2014
Baldvin
0
Aðsent efni, Barnastarf, Frístundaheimili Grafarvogi, Skák, Skólastarf

IMG_4586Fjölnisstúlknan og Norðurlandameistarinn Nansý Davíðsdóttir var ein þeirra þriggja þátttakenda í Sumarskákmóti Fjölnis sem unnu glæsilegan verðlaunabikar frá Rótarýklúbb Grafravogs á Sumarskákmóti Fjölnis sem fram fór í Rimaskóla þriðjudaginn 13. maí. Nansý vann stúlknaflokkinn örugglega líkt og í fyrra. Mykhaylo Kravchuk Ölduselsskóla, Guðmundur Agnar Bragason Álfhólsskóla Kópavogi og Björn Hólm Birkisson Smáraskóla í Kópavogi urðu efstir á mótinu.íTefldar voru 6 umferðir og hlutu efstu menn 5 vinninga. Baráttan um vinningana 15, bíómiða og pítsur, var hörð fram í síðustu skák. Flestir vinningshafar komu frá Skákdeild Fjölnis og voru þeir auk Nansýjar þau Jóhann Arnar Finnsson, Jóshua Davíðsson, Róbert Orri Árnason, Kristófer Halldór Kjartansson, Heiðrún Anna Hauksdóttir, Valgerður Jóhannesdóttir og Kjartan Karl Gunnarsson, öll í Rimaskóla.

Rótarýklúbbur Grafarvogs gaf glæsilega verðlaunagripi til mótsins og var það heiðursgestur mótsins Gylfi Magnússon Rótarýfélagi og skákáhugamaður sem afhenti sigurvegurum verðlaunabikarana. Við verðlaunaafhendinguna veitti Helgi Árnason formaður skákdeildar Fjölnis tveimur stórefnilegum skákmönnum deildarinnar viðurkenningu í lok æfingatímabilsins. Joshua Davíðsson var útnenfdur afreksmaður ársins og Hákon Garðarsson hlaut titilinn æfingameistari ársins.

Email, RSS Follow

Hugmyndir um framtíð Gufuness

14 maí 2014
Baldvin
0
Aðsent efni, Barnastarf, Fjölnir fimleikar, Fjölnir körfubolti, Grunnskólar Grafarvogs, Gufunesbær, Verslunarmiðstöðin Spöngin

Vinnuhópur um framtíðarskipulag í Gufunesi ætlar að kynna svæðið og möguleika þess á Grafarvogsdeginum á laugardag.  Fulltrúar hópsins verða í hinni nýju félagsmiðstöð í Spöng kl. 13 – 15. Áhugasamir gestir eru hvattir til að koma með óskir sínar og hugmyndir um nýtingu Geldinganessins,  skipulag svæðisins og innviði.

Innan þess svæðis sem um ræðir falla Gufunesbærinn og lóð Áburðarverksmiðjunnar að Geldinganesi.  Svæðið í heild er um 1,3 ferkílómetrar að stærð.  Nokkur uppbygging hefur átt sér stað en ótal möguleikar eru til aukinnar eða breyttrar nýtingar  í framtíðinni.

Tillaga um opna hugmyndasamkeppni

Inga Rut Gylfadóttir, landslagsarkitekt og verkefnisstjóri vinnuhópsins, segir að mikilvægt sé að fá gott heildarskipulag sem nýtist sem best fyrir sem flesta.  Vinnuhópurinn hefur lagt til að framtíðarskipulag Gufuness fari í opna hugmyndasamkeppni meðal fagfólks.  Inga Rut segir mikilvægt að undirbúa þá samkeppni vel og fá hugmyndir og skýrar forsendur frá sem flestum aðilum, hagsmunaaðilum, íbúum og öðrum áhugasömum svo skipulagið og framtíðarnotkun svæðisins verði sem best.

Samráð um tækifærin í Gufunesi

Borgarstjóri skipaði í byrjun mars hóp til að fjalla um tækifærin í Gufunesi , fjalla um framtíðarsýn þess og útivistarsvæðið í grennd við Gufunesbæ, nýtingarmöguleika á svæði gömlu öskuhauganna og svæði Áburðarverksmiðjunnar.  Í hópnum eiga sæti fulltrúar allra flokka og formaður hans er Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs.
Helstu verkefni hópsins eru samkvæmt skipunarbréfi:
  • að fara yfir fyrirliggjandi hugmyndir og eftir atvikum kalla eftir nýjum um notkun og/eða uppbyggingu í Gufunesi
  • að setja fram framtíðarsýn fyrir svæðið í heild
  • að meta kosti í uppbyggingu útivistarstarfsemi, s.s. ylstrandar, aðstöðu fyrir vatnasport eða golfvallar
  • að kanna möguleika á hótelrekstri og annarri atvinnustarfsemi á svæðinu
  • að leggja drög að uppbyggingu göngu- og hjólastíga
  • að kanna kosti brúarsmíðar yfir í Viðey
  • að skoða hugsanlega uppbyggingu á gömlu öskuhaugunum og hvað varúðarráðstafana þarf að grípa til á því svæði.

Í skipunarbréfinu er gert ráð fyrir nánu samstarfi við íbúasamtök Grafarvogs og Fjölni. Einnig er gert  ráð fyrir samstarfi við hagsmunaaðila á svæðinu.  Gert er ráð fyrir að hópurinn skili vinnu sinni fyrir 1. október 2014.

Email, RSS Follow

Grafarvogsdagurinn 17 maí

12 maí 2014
Baldvin
0
Aðsent efni, Grafarvogsdagurinn, Grafarvogskirkja

Dagskrá Grafarvogsdagsins:
9:00-11:00 Morgunkaffi í pottunum í Grafarvogslaug. Sundlaug Grafarvogs býður gestum að gæða sér á ilmandi morgunkaffi í heitu pottunum. Frítt í sund meðan á morgunkaffi stendur.
11:00-12:00
Karatedeild Fjölnis með sýningu í Dalhúsum. Aðgangseyrir kr. 500,-, frítt fyrir 12 ára og yngri.
11:00-15:00
Bílskúrssala í Hamrahverfi. Allt sem hugurinn girnist. Föt og aðrir fjársjóðir. Heitt kaffi á könnunni. Allir velkomnir í Stakkhamra 14.
13:00-15:00 Hátíðarhöld við Spöngina:
Spöngin býður Grafarvogsbúum og öðrum gestum til hátíðarhalda. Fyrirtæki í Spönginni taka vel á móti gestum, ýmis tilboð og kynningar, grillaðar pylsur og margt fleira. Grunnskólaboðhlaupið, hoppukastalar, veltibíllinn, kassaklifur, leiktæki, bókabíllinn, andlitsmálun og margt fleira.
Dagskrá á sviði við Spöngina:
Helgistund undir berum himni, töframaður, Gói og Kristín, atriði frá félagsmiðstöðvum og frístundaheimilum, afhending Máttarstólpans.
13:00-15:00
Opið hús í nýju félagsmiðstöðinni í Spöng:
Opið verður í nýju félagsmiðstöðinni í Spöng. Aðilar í húsinu kynna starfsemina. Korpúlfar, samtök eldri borgara í Grafarvogi, taka vel á móti fólki í nýju húsakynnum sínum í félagsmiðstöðinni. Hugmyndibanki á staðnum þar sem stýrihópur um framtíðarsýn Gufuness kallar eftir hugmyndum og ábendingum íbúa.
13:00-16:00
Opið hús hjá Íslenska gámafélaginu:
Íslenska gámafélagið býður alla hjartanlega velkomna á opið hús á Grafarvogsdaginn. Boðið verður upp á mótorhjóla- og ruslabílarúnt, hestarúnt, ruslaskrímslin verða á staðnum, akstur á heyvagni, hoppukastalar, kandýfloss, pylsur og fleira. Leiðsögn og kynning á Endurvinnsluþorpinu í Gufunesi. Skoðunarferð í tveggja hæða strætó um Grafarvoginn. Starfsfólk Íslenska gámafélagsins hlakkar til að taka vel á móti nágrönnum sínum í Grafarvogi.
14:00
Leikur í 2. fl. kvenna.
Fjölnir—Valur/ÍR á gervigrasvellinum við Egilshöll. Frítt inn.
15:00-17:00
Opið hús í Egilshöll:
Dagskrá í Egilshöll hefst klukkan 15:00 og er til 17:00.
Diskótek á skautasvellinu í boði K100. Hoppukastalar og andlitsmálning fyrir yngstu kynslóðina. Fjölbreytt íþróttadagskrá í boði ýmissa deilda Fjölnis. Frí keilukennsla og ýmis tilboð í Keiluhöllinni. Opið hús í World Class og spennandi tímar. Skotfélag Reykjavíkur verður með opið hús og býður gestum að prófa. Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna!
Sambíóin í Egilshöll bjóða frítt í bíó á fjórar sýningar kl. 12:30.

Skoða dagskrá [su_button url=“http://grafarvogsbuar.is/wp-content/uploads/2014/05/Grafarvogsdagurinn_2014_plakat_auglýsing1.pdf“ target=“blank“ style=“3d“ background=“#302def“ radius=“0″]Dagskrá[/su_button]

Litir hverfanna [su_button url=“http://grafarvogsbuar.is/wp-content/uploads/2014/05/Grafarvogsdagurinn_2014_plakat_litir_hverfanna.jpg“ target=“blank“ style=“3d“ background=“#302def“ radius=“0″]Litir[/su_button]

IMG_1992 IMG_1996 IMG_1991 IMG_1990 IMG_1989 IMG_1988 IMG_1987 IMG_1986 IMG_1971 IMG_1969 IMG_1954 IMG_1965 IMG_1946 IMG_1958 IMG_1964 IMG_1945 IMG_1944 IMG_1943 IMG_1942 IMG_1947 IMG_1950 IMG_1940 IMG_1939 IMG_1953

Email, RSS Follow

Upplýsingar vegna fyrirhugaðrar vinnustöðvunar kennara

12 maí 2014
Baldvin
0
Aðsent efni, Barnastarf, Dansskóli Reykjavíkur, Fjölnir knattspyrna, Skemmtilegt, Skólastarf

Eins og fram hefur komið í fréttum hefur Félag grunnskólakennara boðað vinnustöðvun þrjá daga, 15. maí, 21. maí og 27. maí.

Þetta þýðir að skólahald fellur niður þessa daga ef ekki tekst að semja fyrir þann tíma.

Starfsemi frístundaheimila verður óbreytt verkfallsdagana.

Komi til vinnustöðvunar munu matarreikningar sem koma til borgunar í byrjun júní lækka hlutfallslega sem því nemur.

Við biðjum ykkur að fylgjast vel með fréttum að kvöldi n.k. miðvikudags og morgni fimmtudags.

Með kveðju

Skólastjórnendur

 

 

 

 

Email, RSS Follow
« First‹ Previous159160161162163164165Next ›Last »
banner
banner
banner
banner
banner
banner

Gagnlegir tenglar

  • HEILSUGÆSLAN
  • MIÐGARÐUR
  • HVERFIÐ MITT
  • MOJE_S_SIEDZTWO
  • MANO_KAIMYNIST_JE
  • MY NEIGHBOURHOOD

Börnin okkar

  • FRAMHALDSSKÓLAR
  • GUFUNESBÆR
  • LEIK OG GRUNNSKÓLAR
  • SKÁTAFÉLAGIÐ HAMAR
  • TÓNLISTARSKÓLINN

GRAFARVOGSBÚAR Á FLICKR

Allur réttur áskilinn © 2024
www.grafarvogsbuar.is