- HEIM
- FRÉTTIR
- MYNDIR
- HVERFIÐ OKKAR
- AÐSENT EFNI
- ÍÞRÓTTIR
- UM OKKUR
Nú styttist í hið árlega Sumarskákmót Fjölnis sem haldið verður í 10. sinn á vegum Skákdeildar Fjölnis.
Mótið fer fram í hátíðarsal Rimaskóla og hefst nákvæmlega kl. 17:00. Reikna má að mótinu ljúki kl. 19:15. Tefldar verða 6 umferðir og umhugsunartíminn er 6 mínútur. Verðlaunað verður í þremur flokkum; eldri flokk, f. 1998 – 2002, yngri flokk 2002 – 2007 og í stúlknaflokki. Í skákhléi verður boðið upp á pítsur og drykk frá Ölgerðinni.
Að venju er fjöldi áhugaverðra verðlauna: Pítsur, og bíómiðar í Sambíóin og Laugarásbíó, samtals 15 aðalvinningar. Skráning á staðnum og eru þátttakendur beðnir um að mæta tímanlega til skráningar. Í fyrra mættu 58 krakkar til leiks og baráttan var hörð en skemmtileg.
Skákstjórar verða þeir Helgi Árnason formaður Skákdeildar Fjölnis og Stefán Bergsson frá Skákakademíunni. Heiðursgestur mótsins verður Gylfi Magnússon skákáhugamaður og félagi í Rótarýklúbb Grafarvogs. Rótarýklúbburinn gefur að venju alla verðlaunabikara til mótsins. Þátttökugjald með veitingum er 200 fyrir Fjölniskrakka, 400 fyrir aðra skákkrakka. Foreldrar og aðrir gestir geta keypt sér pítsu fyrir 200 kr og þegið ókeypis kaffi á staðnum. Sumarskákmót Fjölnis er lok vetrarstarfs Skákdeildar Fjölnis sem fagnar 10 ára afmæli nú í maímánuði.
ATH: Fjölniskrakkar greiða 200 kr í þátttökugjald. Innifalin pítsaveisla, skákmót og verðlaun.
Formaður Skákdeildar Fjölnis mun greina frá kjöri stjórnarinnar á :
Afreksmanni Fjölnis 2014. Í fyrra var það Jóhann Arnar Finnsson nýbakaður Íslandsmeistari 2014 með skáksveit Rimaskóla.
Æfingameistara Fjölnis 2014 . Í fyrra var það Mikael Maron Torfason sem er í skáksveit Rimaskóla sem að teflir á NM barnaskólasveita í haust.
Með kveðju
Helgi Árnason
Strákanir í meistaraflokki gerðu góða ferð til Akureyrar í dag og spiluðu gegn Þór í 2. umferð Pepsi deildar.
Fjölnir sigraði 2-1
Mörkin Fjölnis skoruðu Gunnar Már og Þórir Guðjónsson
Mark Þórs skoraði Ármann Pétur
Strákanir í meistaraflokki fara til Akureyrar í dag og spila gegn Þór í 2. umferð Pepsi deildar. Þórsarar töpuðu gegn Keflavík á útivelli í sínum fyrsta leik í sumar 3-1 og má alveg búast við því að þeir muni selja sig dýrt á sínum heimavelli. Við unnum frábæran sigur á Reykjavíkur Víkingum í fyrsta leik 3-0 þar sem Ragnar Leósson, Gunnar Már og Júlíus Orri skoruðu mörkin okkar í þessum sannfærandi sigri. Leikurinn gegn Þór mun byrja stundvísilega kl. 18.00 á Þórsvellinum og verður hægt að sjá atriði úr leiknum í Pepsideildar mörkunum á Stöð 2 Sport í kvöld.
Biskup Íslands auglýsir laust til umsóknar embætti prests í Grafarvogsprestakalli, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra, frá 1. september 2014. Embættinu fylgja sérstakar þjónustuskyldur á samstarfssvæði prestakallsins.
Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008.
Fjölnismenn byrja vel á Íslandsmótinu 2014 með góðum sigri á Víking í Grafarvoginum.
Góð barátta var í Fjölnismönnum og það voru ótal færi sem fóru forgörðum, td vítaspyrna sem fór í þverslánna.
Mikil körfuboltahefð hefur skapast í Grafarvogium sem sét m.a. á því að karlaliðið komst upp í úrvalsdeild í vetur og kvennaliðið féll út í úrslitaleik um sæti í úrvalsdeild.
Einnig hefur Fjölnir alið upp leikmenn sem spila sem atvinnumenn í Evrópu. Margir efnilegir leikmenn eru í félaginu og mikll kraftur hefur verið í yngri flokka starfinu í vetur og ekkert verður gefið eftir í sumar.
Búið er að ráða mjög hæfa þjálfara til að sjá um metnaðarfullt sumarstarf deildarinnar.
Öllum börnum og unglingum sem hafa áhuga á að bæta sig og hafa gaman að körfubolta gefst tækifæri til æfinga í sumar, þar mun metnaður, ánægja og gleði ráða ríkjum.
Sjá auglýsingu hér.
[su_button url=“http://grafarvogsbuar.is/wp-content/uploads/2014/05/Karfa-sumarnámskeið1.pdf“ target=“blank“ style=“3d“ background=“#302def“ radius=“0″]Körfubolti 2014[/su_button]