- HEIM
- FRÉTTIR
- MYNDIR
- HVERFIÐ OKKAR
- AÐSENT EFNI
- ÍÞRÓTTIR
- UM OKKUR
Sunnudagaskóli kl. 11:00
Umsjón hafa Þóra Björg Sigurðardóttir og sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson.
Guðsþjónusta kl. 11:00
Séra Vigfús Þór Árnason prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum.
Þorvaldur Halldórsson spilar og leiðir söng.
Aðventuhátíð kl. 20
Prestar safnaðarins flytja aðventubæn. Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur les kafla úr bókinni „Jólin hans Hallgríms“
Fermingarbörn flytja helgileik.
Kórar kirkjunnar syngja.
Stjórnendur: Hákon Leifsson, Hilmar Örn Agnarsson og Margrét Pálmadóttir.
Fiðlusveit úr Tónlistarskóla Grafarvogs.
Stjórnandi: Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari
Sunnudagaskóli kl. 13:00
Umsjón hefur Ásthildur Guðmundsdóttir. Undirleik annast Stefán Birkisson
Guðsþjónusta kl. 13:00
Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum.
Félagar úr kórum kirkjunnar leiða söng. Hákon Leifsson er organisti.
Velkomin!
Fjölnir og Selfoss skildu jöfn í Íþróttamiðstöðinni í Grafavoginum, 23-23. Selfoss var með þriggja marka forystu í hálfleik,12-9.
Fjölnismenn höfðu yfirhöndina í byrjun leiks í dag. Fjölnir komst í 3-1 forystu sem Selfoss náði svo að jafna, en komst þá Fjölnir aftur yfir. Það var ekki fyrr en um miðbik seinni fyrri hálfleiks sem Selfoss komst yfir, 6-5. Sebastian Alexandersson stóð sterkur á milli stanganna hjá Selfoss og varði hvert skotið á eftir öðru.Fjölnismenn náðu tveimur skotum á mark í sömu sókninni og hefðu getað jafna metin en Sebastian varði bæði skotin. Góður leikur Basta var mikilvægur þar sem heimamenn áttu á tíðum nokkuð auðvelt með að komast í færi.
Selfoss komst í þriggja marka forystu þegar tólf mínútur voru til leiksloka, 8-5. Sóknarleikur Fjölnis var ekki jafn beittur og hann hafði verið fyrri hluta leiks, og hjálpaði ekki sterk markvarsla Sebastians. Selfoss fékk víti þegar tíu mínútur voru til leiksloka, og fékk leikmaður Fjölnis tveggja mínútna brottvísun. Ingvar Kristinn Guðmundsson, markmaður Fjölnis, varði boltann. Hann fór upp í stúku og Selfoss fékk boltann aftur, Selfoss skoraði og komst í 9-5 forystu. Í næstu sókn fékk Ómar Vignir Helgason, leikmaður Selfoss, tveggja mínútna brottvísun. Fjölnismenn nýttu stöðuna einum manni fleirri og skoruðu tvö mörk í röð, staðan orðin 9-7 fyrir Selfossi.
Selfoss tók leikhlé þegar rúmlega tvær mínútur voru til hálfleiks og var þá staðan 12-9 fyrir þeim. Sebastian var ný búinn að verja skot í hraðaupphlaupi, en Fjölnir komst aftur í hraðaupphlaup og maðurinn skoraði þrátt fyrir að varnarmaður Selfoss væri fyrir framan hann. Þegar flautað var til hálfleiks átti Fjölnir átti fríkast sem fór í varnarvegginn og staðan 12-9 fyrir Selfoss í hálfleik.
Sóknarleikur Fjölnis var góður fyrstu mínútur seinni hálfleiks og minnkuðu þeir muninn í 11-13 þegar þrjár mínútur voru búnar af leiknum. Það gekk ekkert hjá Selfyssingum í sókninni og Ingvar Kristinn kominn í góðan ham, á meðan Sebastian var ekki að verja vel. Selfoss tók leikhlé þegar fimm mínútur voru búnar af seinni hálfleiknum og Fjölnismenn búnir að jafna metin, 13-13.
Annað mark Selfoss í seinni hálfleiknum kom eftir fimm og hálfa mínútu en það skoraði Andri Már Sveinsson úr víti, en boltinn fór í markmann og inn. Ingvar Kristinn varði flottann bolta á áttundu mínútu síðari hálfleiks og fékk Fjölnir tækifæri til að komast yfir, en Sebastian varði skot Fjölnismanna. Selfoss náði aftur forystunni þegar að um tíu mínútur voru búnar af seinni hálfleiknum. Sebatian var aftur kominn í gang og varði hvern boltann á eftir öðrum. Fjölnir fékk víti en Sebastian varði boltann, sem flaug yfir völlinn og aftur til Fjölnismanna, þeir nýttu þó seinna tækifærið ekki og fór boltinn framhjá.
Selfoss fékk víti stuttu seinna og skoraði Andri Már Sveinsson aftur. Fjölnismenn skiptu um markmann um miðbik seinni hálfleiks, en Bjarki Snær Jónsson kom inná og varði tvö skot í sömu sókninni. Fjölnir tók leikhlé í stöðunni 17-15 fyrir Selfoss. Það var löng bið eftir fyrsta markinu eftir leikhléið en þegar tæpar tíu mínútur voru til leiksloka skoraði Breki Dagsson, leikmaður Fjölnis, tvö mörk í röð og jafnaði metin, 17-17. Þrátt fyrir ítrekuð tækifæri til að komast yfir gekk það ekki hjá Fjölni.
Þegar sjö mínútur voru til leiksloka reyndi Sebastian að verja bolta sem fór framhjá markinu, í leiðinni meiddi hann sig í bakinu og þurfti að stöðva leikin tímabundið. Hann lét það þó ekki stöðva sig og hélt áfram. Fjölnir komst yfir í fyrsta sinn þegar sex mínútur voru eftir af leiknum, með marki frá Unnari Arnarssyni, en Selfyssingar jöfnuðu strax. Strax eftir það skipti Selfoss um markmann og Helgi Hlynsson kom inná í stað Sebastians. Hann varði fyrsta skotið sem hann fékk á sig en þó var dæmt víti sem Fjölnismenn skoruðu úr. Staðan var 21-20 fyrir Fjölni þegar rúmlega fjórar mínútur voru til leiksloka. Andri Már hjá Selfoss skoraði jöfnunarmark þegar fjórar mínútur voru eftir og í sömu sókn var dæmt tveggja mínútna brottvísun á bekk Fjölnis.
Fjölnismenn létu mannekluna ekki á sig fá og skoraði Breki Dagsson og kom liðinu yfir. Brynjar Loftsson, leikmaður Fjölnis, skoraði og kom liðinu í 23-21 forystu. Þetta var í fyrsta sipti síðan í fyrri hálfleik sem Fjölnir var tveimur mörkum yfir. Loka mínúturnar voru æsispennandi en þegar rúmlega mínúta var til leiksloka varði Helgi Hlynsson mikilvægt skot og Selfoss hélt í sókn. Ómar Vignir hjá Selfoss fékk boltann í hendurnar á línunni en var dæmdur ruðningur. Þegar rétt um hálf mínúta var til leiksloka tók Fjölnir leikhlé með eins marks forystu. Helgi Hlynsson varði mjög mikilvægt skot þegar stutt var til leiksloka. Í loka sókn Selfoss skoraði Guðjón Ágústsson jöfnunnarmark og aðeins átta sekúndur til leiksloka. Í síðustu sókninni náðu Fjölnir ekki skoti en liðið fékk fríkast þegar flautað var til leiksloka en náðu ekki að skora. Lokatölur því 23-23 og Fjölnir og Selfoss deila stigunum eftir gríðarlega spennandi leik.
Sýningaropnun í Borgarbókasafni í Spöng, 6. desember kl. 14
Frystikista í fjörunni
Washed Up
Laugardaginn 6. desember kl. 14 verður sýningin Frystikista í fjörunni með verkum eftir Gunnhildi Þórðardóttur opnuð í nýju útibúi Borgarbókasafnsins sem verður í Spöng í Grafarvogi.
Verkin eru tví- og þrívíð, unnin á árunum 2013-2014 og er efniviður þeirra af ýmsu tagi. Gunnhildur notar ýmislegt sem verður á vegi hennar, til dæmis muni sem hefur verið hent og skolað á land upp í fjöru, eða efni sem til fellur, til dæmis timbur, bárujárn og textíl. Þannig fá hlutir framhaldslíf eða nýtt hlutverk þegar þeir eru settir í annað samhengi í verkum Gunnhildar. Sjálfbærni er listamanninum hugleikin og vísar titill sýningarinnar í samnefnt ljóð Gunnhildar þar sem kemur fram gagnrýni á neyslusamfélagið. Sum verkanna voru áður til sýnis á sýningunni Áframhald í Listasafni Reykjanesbæjar árið 2013.
Gunnhildur Þórðardóttir lauk BA (Honours) í listasögu og fagurlistum frá Anglia Ruskin University í Cambridge árið 2003 og MA í liststjórnun frá sama skóla árið 2006. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar meðal annars Regnbogapönk í Slunkaríki á Ísafirði (2014), Áframhald í Listasafni Reykjanesbæjar (2013), Minningar í kössum í Flóru á Akureyri (2013) auk þess sem Gunnhildur hefur tekið þátt í samsýningum í Listasafni Íslands og í Hafnarborg. Þá hefur hún einnig tekið þátt í myndbandsgjörningi í Tate Britain-safninu í London sem stjórnað var af Tracey Moberly myndlistarmanni.
Sýningin Frystikista í fjörunni stendur til 12. apríl 2015 og er opin á afgreiðslutíma safnsins. Borgarbókasafn í Spöng er opið virka daga kl. 10-19, nema föstudaga er opið frá 11-19. Á laugardögum er opið frá kl. 12-16.
Nánari upplýsingar veita:
Gunnhildur Þórðardóttir, gunnhildurthordar@gmail.com, s. 898 3419
Margrét Valdimarsdóttir, margret.valdimarsdottir@reykjavik.is, s. 848 0683
Gallerí Korpúlfsstaðir var stofnað 27. maí 2011. Galleríið er rekið af 15 listamönnum sem flestir eru með vinnustofur á Korpúlfsstöðum. Þeir skipta með sér vöktum og álagning því í lágmarki.
Fjölbreytt úrval verka er í galleríinu, málverk, grafík, vatnslitir, teikningar, gler, leir, tré, skart, textíll og barnaföt.
Listamennirnir eru: Ásdís Þórarinsdóttir, Bryndís G. Björgvinsdóttir, Dóra Kristín Halldórsdóttir, Edda Þórey Kristfinnsdóttir, Elísabet Stefánsdóttir, Guðfinna Anna Hjálmarsdóttir, Katrín V. Karlsdóttir, María Valsdóttir, Marilyn Herdís Mellk, Sigurður Valur Sigurðsson, Sæunn Þorsteinsdóttir, Valgerður Björnsdóttir, Þórdís Elín Jóelsdóttir, Þóra Björk Schram og Þuríður Ósk Smáradóttir.
Leikur KR og Fjölnis fór fram í gærkvöld og eins og margir reiknuðu með varð þetta hörkuleikur sem hefði getað dottið hvorn vegin sem var í leikslok. KR ingar voru engu að síður með frumkvæðið í þessum leik og með góðum varnarleik náðu þeir að halda Fjölnis mönnum 1-2 mörkum frá sér lungað úr leiknum. Fjölnismenn náðu þó oftar en ekki að jafna en komust í raun bara tvisvar sinnum yfir í þessum leik.
Staðan eftir afar skemmtilegan fyrri hálfleik 15-14 fyrir heimamenn. Það gekk svo illa hjá báðum liðum að bæta við eftir leikhléið og bæði lið að gera sóknarmmistök á fyrstu mínútum eftir hlé. Það var jafnt á öllum tölum áfram eins og í fyrri hálfleik, en Fjölnismenn lentu svo í áfalli þegar þeir misstu Svein Þorgeirsson gamla reynsluboltan útaf vegna meiðsla á 40 mínútu og kom hann ekkert meira inná.
Þar fór mikilvægur hlekkur úr varnarleiknum hjá Fjölni, en KR var ekkert að ná að stinga af þrátt fyrir að halda forystunni áfram í 1-2 mörkum. Fjölnismenn jöfnuðu jafn harðan og náðu einu sinni í seinni hálfleiknum að komast yfir, en það var þegar 5 mínútur voru til leiksloka og staðan 23-24. KR var þó sterkari á lokamínútunum og sigruðu með einu marki 26-25.
Myndir: Þorgils
Hátt í 200 börn settust til tafls í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur í dag er teflt var í yngri flokki Jólaskákmóts TR og Skóla og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Óhætt er að segja að vel hafi tekist til, bæði við framkvæmd mótsins en ekki síður á taflborðunum sjálfum þar sem hart var tekist á í drengilegri keppni. Mótið var tvískipt og hóf Suður riðill keppni kl.10:30 en Norður riðill hófst klukkan 14:00.
Í Suður riðli -opnum flokki- vann Ölduselsskóli með miklum yfirburðum enda einkar vel skipuð skáksveit með reynslumikla skákmeistara á hverju borði. Sveitin hlaut hvorki fleiri né færri en 23 vinninga í 24 skákum! Keppnin um annað sætið og þar með sæti í úrslitum var æsispennandi. Fyrir síðustu umferð hafði Háteigsskóli 1,5 vinnings forskot á Norðlingaskóla en sveitirnar mættust einmitt í síðustu umferðinni. Að loknum þremur skákum leiddi Norðlingaskóli 2-1 og þurfti því sigur í síðustu skákinni til að tryggja sér annað sætið. Eftir mikinn barning fór þó svo að skákin endaði með jafntefli og þar með tryggði Háteigsskóli sér annað sætið þrátt fyrir að tapa viðureigninni 1,5-2,5. Háteigsskóli hlaut 16 vinninga en Norðlingaskóli varð í þriðja sæti með 15,5 vinning.
Í Norður riðli -opnum flokki- vann Rimaskóli með sömu yfirburðum og Ölduselsskóli fyrr um daginn. Hin feykisterka skáksveit Rimaskóla hlaut 23 vinninga í 24 skákum! Fossvogsskóli endaði í öðru sæti með 19 vinninga. Það má með sanni segja að þessar tvær sveitir hafi verið í nokkrum sérflokki. Ingunnarskóli endaði í 3.sæti með 16,5 vinning.
Nánar verður sagt frá mótinu eftir að því líkur á morgun mánudag.
Taflfélag Reykjavíkur vill þakka öllum þeim fjölda barna sem tóku þátt, og einnig liðsstjórum og foreldrum sem hjálpuðu til að láta þetta stærsta barna og unglingamót ársins heppnast jafnvel og raun bar vitni í dag. Kærar þakkir!
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Séra Guðrún Karls Helgudóttir þjónar.
Umsjón hefur Ásthildur Guðmundsdóttir.
Nemendur úr Tónlistarskóla Grafarvogs.
Aðventuhátíð kl. 20
Prestar safnaðarins flytja aðventubæn. Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur les kafla úr bókinni „Jólin hans Hallgríms“
Kórar kirkjunnar syngja.
Stjórnendur: Hákon Leifsson, Hilmar Örn Agnarsson og Margrét Pálmadóttir.
Fiðlusveit úr Tónlistarskóla Grafarvogs.
Stjórnandi: Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari
Aðventuguðsþjónusta kl. 13.
Séra Vigfús Þór Árnason prédikar og þjónar fyrir altari.
Vox Populi syngur.
Organisti: Hilmar Örn Agnarsson.
Nemendur úr Tónskóla Hörpunnar spila.