• HEIM
  • HAFÐU SAMBAND
facebook
email
Helgihald kyrruviku og páska í Grafarvogskirkju
Fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur 12. mars 2025
Keldnaland – niðurstöður samkeppni
Mjólkurbikar KSÍ 2024
Frábær árangur hjá 4 flokki kvenna í knattspyrnu á Barcelona girls Cup:
  • HEIM
  • FRÉTTIR
  • MYNDIR
    • MYNDIR ÚR HVERFINU
  • HVERFIÐ OKKAR
    • VIÐBURÐIR
    • GALLERÍ KORPÚLFSSTAÐIR
    • ATVNNULÍFIÐ
      • VERSLUNARKJARNAR
        • BREKKUHÚSUM
        • HVERAFOLD
        • KORPUTORG
        • LAUFRIMA 21
        • SPÖNGIN
      • Sorpa
        • HVERFISSKIPULAG REYKJAVÍKUR
        • Hlutverk
        • Pappír er ekki rusl
    • FÉLAGASAMTÖK
      • KORPÚLFAR – FÉLAG ELDRI BORGARA Í GRAFARVOGI
      • SKÁTARNIR
    • GRAFARVOGSKIRKJA
      • Fermingar 2020
      • KIRKJUBYGGINGIN
      • LOGAFOLD SAFNAÐARBLAÐ
    • GÖNGU OG HJÓLALEIÐIR
    • HVERFISRÁÐ
      • HVERFIÐ Í TÖLUM
    • Heilsugæsla í Grafarvogi
    • ÍTR
      • GUFUNESBÆR
    • KORT AF GRAFARVOGI
    • MENNING OG LISTIR
      • KARLAKÓR GRAFARVOGS
      • MENNINGARHÚS SPÖNGINNI
    • SAGA GRAFARVOGS
      • KORPÚLFSSTAÐIR
    • SKÓLARNIR Í GRAFARVOGI
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐVAR
      • FRAMHALDSSKÓLAR
      • FRÍSTUNDAHEIMILI
      • HEIMILI OG SKÓLI – LANDSSAMTÖK FORELDRA
        • FORELDRASÁTTMÁLINN
      • LEIK- OG GRUNNSKÓLAR
      • TÓNLISTARSKÓLINN
      • TÓNSKÓLI HÖRPUNNAR
    • STOLT GRAFARVOGS
    • ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR
      • DAGFORELDRAR
        • DAGFORELDRAR Í HVERFINU
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐ Í SPÖNG
      • ELDRI BORGARAR
      • FERÐAÞJÓNUSTA FATLAÐS FÓLKS
      • FÉLAGSLEG RÁÐGJÖF
      • FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR
      • FJÁRHAGSAÐSTOÐ
      • SÉRFRÆÐIAÐSTOÐ VIÐ GRUNNSKÓLA
      • SKAMMTÍMAVISTUN ÁLFALAND
  • AÐSENT EFNI
    • DALE CARNEGIE
      • NÆSTA KYNSLÓÐ
    • TAPAÐ – FUNDIÐ
    • JÓLIN Í GRAFARVOGINUM
  • ÍÞRÓTTIR
    • FJÖLNIR
      • Sumarnámskeið 2019
      • Sumarnámskeið 2018
      • Sumarnámskeið 2016
    • GOLFKLÚBBUR REYKJAVÍKUR – KORPA
    • ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVERA
    • GRAFARVOGSLAUG
      • ALMENNAR UPPLÝSINGAR
  • UM OKKUR

Aðsent efni

Frábær árangur hjá Degi

09 feb 2015
Kristjan Sigurdsson
0

Dagur - skákHinn 17 ára Fjölnismaður Dagur Ragnarsson hefur farið mikinn nú eftir áramótin með þátttöku sinni á tveimur sterkum skákmótum, Skákþingi Reykjavíkur 2015 og Nóa – Síríus mótinu sem er boðsmót. Dagur varð í 6. sæti á Skákþinginu og er nú sem stendur í 3. sæti á boðsmótinu.

Það sem vekur þó mesta athygli við frammistöðu Dags er að hann er að vinna eða gera jafntefli við stórmeistara og alþjóðlega meistara og búinn að hækka sig um tæplega 200 ELÓ skákstig á þessum stutta tíma.

Dagur er með 2059 skákstig og í vikunni vann hann skákmeistarann Karl Þorsteins sem er með 2456 stig. Auk Dags eru félagar hans úr Rimaskóla og nú MH, þeir Jón Trausti Harðarson og Oliver Aron Jóhannesson á svipuðum nótum og hækka sig stöðugt á skákstigum og að verða ótrúlega sterkir skákmenn.

Þetta eru góð tíðindi fyrir Skákdeild Fjölnis sem treysta á þessa þrjá ungu skákmenn til að halda A – sveit Fjölnis í öruggu sæti 1. deildar. Það er því óhætt að segja að framtíðin sé björt.

Email, RSS Follow

Fjölnismenn fóru tómhentir frá Gróttumönnum

08 feb 2015
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Dansskóli Reykjavíkur, Félag eldriborgara í Grafarvogi, Fjölnir fimleikar, Fjölnir handbolti, Fjölnir knattspyrna, Fjölnir körfubolti, Grunnskólar Grafarvogs

DSC_2755Grótta hélt uppteknum hætti í 1. deildinni í kvöld og sigruðu þá lið Fjölnis sem kom í heimsókn á nesið. Hörkuleikur og sem sýndi að lið fjölnis er sýnt veiði en ekki gefins. Gróttumenn höfðu þó frumkvæðið lengst af og voru með 4 marka forsytu í hálfleik 14-10 og höfðu að lokum 6 marka sgur 27-21.

Grótta var búin að endurheimta markahæsta leikmann sinn Viggó Kristjánsson sem lék ekki í síðasta leik vegna leyfis erlendis og þá var einnig Þórir Jökull Finnbogason komin aftur inn í liðið eftir meiðsli.

Grótta heldur þar með toppsæti sínu í deildinni með 33 stig eftir 17 leiki og hafa nú 3 stiga forskot á Víkinga sem eru í 2. sætinu. Fjölnismenn eru engu að síður í ágætis málum í 4. sætinu með 19 stig og eru ennþá í góð’um málum að koma sér í úrslitakeppnina.

Mörk Gróttu: Þráinn Orri Jónsson 7, Viggó Kristjánsson 6, Árni Benedikt Árnason 3, Aron Valur Jóhannsson 3, Styrmir Sigurðarson 2, Aron Dagur Pálsson 2, Þorgeir Bjarki Davíðsson 1, Þórir Jökull Finnbogason 1, Hjalti Már Hjaltason 1 og Kristján Þór Karlsson 1.
Mörk Fjölnis: Sveinn Þorgeirsson 4, Brynjar Loftsson 4, Bjarki Lárusson 3, Björgvin Páll Rúnarsson 2, Arnar Ingi Guðmundsson 2, Bergur Snorrason 2 og Kristján Örn Kristjánsson 2.

Myndir: Þorgils

 

DSC_2846 DSC_2843 DSC_2835DSC_2832DSC_2815DSC_2801DSC_2783DSC_2774DSC_2771

 

 

 

 

Email, RSS Follow

Gallerí Korpúlfsstaðir Opið fim.-fös.14-18 Lau.-sun 12-16 Þar sem einstöku gjafirnar fást!

07 feb 2015
Baldvin
0
Aðsent efni, Gallerí Korpúlfsstaðir, Grafarvogur.

Gallerí feb 2015 II Gallerí feb 2015 III Gallerí feb 2015

Email, RSS Follow

Körfubolti karla Fjöln­ir – Skalla­grím­ur 88:78

07 feb 2015
Baldvin
0
Aðsent efni, Dalhús, Fjölnir körfubolti, Grafarvogur., Grunnskólar Grafarvogs

Fjöln­is­menn tóku á móti Skalla­grím í Dom­in­os-deild karla í körfuknatt­leik í kvöld. Leik­ur­inn hafði gríðarlega þýðingu fyr­ir bæði lið, sem voru með 6 stig fyr­ir um­ferðina. Að henni lok­inni eru það Fjöln­is­menn sem fagna því átt­unda því gerðu sér lítið fyr­ir og unnu sann­fær­andi sig­ur á Skall­grím 88:78 eft­ir að hafa nán­ast rotað meðvit­und­ar­litla Skalla­gríms­menn í seinni hálfleik.

Fyrri hálfleik­ur­inn var fjör­ug­ur; leik­menn beggja liða sýndu að þeir voru til­bún­ir í þenn­an mik­il­væga leik, sem og vildu sigra. Bar­átt­an var mik­il, á kostnað gæðanna en það skipti eng­um tog­um; leik­ur­inn var skemmti­leg­ur og ef merkja mátti mun voru það gest­irn­ir sem voru betri í fyrri hálfleikn­um ef eitt­hvað var.

Leik­ur­inn hin mesta skemmt­un því all­ir leik­menn sem koma inná sýna það að þeir gera sér full­vel grein fyr­ir mik­il­vægi leiks­ins. Þetta skap­ar raf­magnaða spennu og bar­átt­an al­veg skín­andi hjá flest­um. Mun­ur­inn á liðinum er nán­ast eng­inn; Skall­arn­ir hafa að vísu sýnt meiri stöðug­leika í sókn­inni en al­veg ljóst að Fjöln­is­menn munu ekki missa þá of langt frá sér í þess­um leik nema eitt­hvað stór­kost­legt ger­ist! VArn­ar­leik­ur beggja liða hef­ur verið viðun­andi en ástæða lágs stiga­skors reikn­ast alls ekki á varn­ar­leik­inn held­ur hann í bland við klaufa­leg­ar sókn­ir liggja þar að baki. Þetta skipt­ir hins­veg­ar engu máli; stig­in eft­ir hann er það eina sem skipt­ir máli og ljóst að fag­ur­fræði er ekki und­ir­liggj­andi mó­tíf hjá leik­mönn­um og þjálf­ur­um liðanna.

Liðin sem ná upp góðri stemn­ingu og liðsanda; sjálfs­trausti og áræðni, munu halda sér uppi en mér finnst eins og öll þrjú liðin séu á ná­kvæm­lega á þess­um stað? Góð liðsstemn­ing, áræðni, þor og geta, prýða öll liðin þessa dag­ana, þó svo að sigr­um rigni ekki inn þá sést það bara á holn­ing­unni. En burt­séð frá þess­um vanga­velt­um þá fer að hefjast hér mik­il­væg­asti leik­ur leiktíðar­inn­ar, á því er eng­inn vafi!

Liðin eru með 6 stig á botni deild­ar­inn­ar, ásamt ÍR-ing­um, og allt stefn­ir í harðan slag þess­ara þriggja liða um hvert þeirra held­ur sæti sínu. Ljóst er að sig­urliðið í kvöld slepp­ur úr fallsæti, alla­vega bili, en ÍR verður í öðru tveggja neðstu sæt­anna eft­ir að hafa tapað fyr­ir Tinda­stóli í gær­kvöld.

Inn­byrðis úr­slit þess­ara þriggja liða geta skipt gíf­ur­lega miklu máli og ráða úr­slit­um ef þau verða jöfn að stig­um í lok­in. Fjöln­ir vann Skalla­grím 113:110 í fyrri leik liðanna í Borg­ar­nesi og því þarf Skalla­grím­ur fjög­urra stiga sig­ur í kvöld til að vera með betri inn­byrðis stöðu.

Email, RSS Follow

Sunnudagurinn 8. febrúar

06 feb 2015
Baldvin Berndsen
0
Barnastarf, Börn, Félag eldriborgara í Grafarvogi, Fermingar í Grafarvogi, Grafarvogskirkja, Grafarvogur., Prestar, Sóknarnefnd

GrafarvogskirkjaFerming

Biblíumessa kl. 11.00, þemamessa í tilefni Biblíudagsins.
Séra Guðrún Karls Helgudóttir þjónar fyrir altari.
Kór kirkjunnar syngur.
Organisti: Hákon Leifsson.

Sunnudagaskóli kl. 11.00
Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir
Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir
Undirleikari: Stefán Birkisson.

Kirkjusel

Selfie messa kl. 13.00
Sr. Arna Ýrr leiðir stundina, KK sér um tónlistina og segir frá, auk innleggs frá Fritz Má Jörgenssyni og Díönu Ósk Óskarsdóttur. Fermingarbörn og foreldrar þeirra eru sérstaklega hvött til að koma.

Að messu lokinni verður fræðslusamvera með foreldrum fermingarbarna. Þar verður fjallað um mikilvægi þess að foreldrar veiti börnum sínum umhyggju, aðhald og eftirlit, Brynhildur fíkniráðgjafi talar um nýjar áskoranir sem foreldrar unglinga standa frammi fyrir og Guðrún Dóra geðlæknir greinir frá áhrifum kannabisefna á andlega og líkamlega heilsu til lengri og styttri tíma.

Sunnudagaskóli á sama tíma.
Umsjón hefur Ásthildur Guðmundsdóttir.
Undirleikari: Stefán Birkisson.

Email, RSS Follow

89% íbúa ánægðir með hverfið sitt

06 feb 2015
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Barnastarf, Féagsmiðstöðin Spönginni, Félag eldriborgara í Grafarvogi, Grafarvogskirkja, Grafarvogur., Grunnskólar Grafarvogs, Íþróttir, Sóknarnefnd

Ánægja íbúa Reykjavíkur með þjónustu borgarinnar og umhverfi var könnuð undir lok síðasta árs og liggja niðurstöður nú fyrir.  Annars vegar var gerð viðhorfskönnun á þjónustu sveitarfélagsins í heild og hins vegar þjónustu í hverfum borgarinnar.

  • Íbúar benda helst á samgöngumál og umhverfismál þegar spurt er um hvað helst þurfi að bæta í þeirra hverfi.
    Íbúar benda helst á samgöngumál og umhverfismál þegar spurt er um hvað helst þurfi að bæta í þeirra hverfi. (Þjónusta í hverfum Reykjavíkur, síða 47).
  • Íbúar voru spurðir um umhverfi og þjónustu (Þjónusta sveitarfélaga, síða 3).
    Íbúar voru spurðir um umhverfi og þjónustu (Þjónusta sveitarfélaga, síða 3).
  • Einkunn íbúa Reykjavíkur milli ára stendur að mestu í stað eða er innan vikmarka. Aðeins í tveimur spurningum lækkar einkunn milli ára, annars vegar þegar spurt er um sveitarfélagið sem stað til að búa á og hins vegar gagnvart þjónustu við fatlaða.  Þegar spurt er um stuðning við barnafjölskyldur er lítilsháttar aukning.
    Einkunn íbúa Reykjavíkur milli ára stendur að mestu í stað eða er innan vikmarka. Aðeins í tveimur spurningum lækkar einkunn milli ára, annars vegar þegar spurt er um sveitarfélagið sem stað til að búa á og hins vegar gagnvart þjónustu við fatlaða. Þegar spurt er um stuðning við barnafjölskyldur er lítilsháttar aukning. (Þjónusta sveitarfélaga, síða 4).
  • Ánægja Reykvíkinga er minni en ánægja íbúa annarra sveitarfélaga í öllum málaflokkum þegar spurt er um sveitarfélagið sem heild.
    Ánægja Reykvíkinga er minni en ánægja íbúa annarra sveitarfélaga í öllum málaflokkum þegar spurt er um sveitarfélagið sem heild. (Þjónusta sveitarfélaga, síða 5).
  • 79% Reykvíkinga telur Reykjavík góðan stað til að búa á.
    79% Reykvíkinga telur Reykjavík góðan stað til að búa á (Þjónusta sveitarfélaga, síða 6).
  • 57% Reykvíkinga eru ánægðir með þjónustu borgarinnar á heildina litið og hefur hlutfall ánægðra hækkað um 10 prósentustig frá árinu 2010.
    57% Reykvíkinga eru ánægðir með þjónustu borgarinnar á heildina litið og hefur hlutfall ánægðra hækkað um 10 prósentustig frá árinu 2010. (Þjónusta sveitarfélaga, síða 17).
  • Þegar spurt er hvaða þjónustu sveitarfélagið þurfi að bæta nefna flestir samgöngumál, endurvinnslu-/sorphirðumál og umhverfismál. Fleiri nefna þessa þætti en undanfarin ár.
    Þegar spurt er hvaða þjónustu sveitarfélagið þurfi að bæta nefna flestir samgöngumál, endurvinnslu-/sorphirðumál og umhverfismál. Fleiri nefna þessa þætti en undanfarin ár. (Þjónusta sveitarfélaga, síða 21).
  • Ánægja Reykvíkinga er meiri þegar spurt er um þjónustu í hverfum en þegar spurt er um þjónustu í borginni í heild.
    Ánægja Reykvíkinga er meiri þegar spurt er um þjónustu í hverfum en þegar spurt er um þjónustu í borginni í heild. (Þjónusta í hverfum Reykjavíkur, síða 4).
  • Reykvíkingar eru ánægðir með hverfið sitt sem stað til að búa á. Þegar íbúar eru spurðir um sitt hverfi sem stað til að búa á eru tæp 90% ánægð.
    Reykvíkingar eru ánægðir með hverfið sitt sem stað til að búa á. Þegar íbúar eru spurðir um sitt hverfi sem stað til að búa á eru tæp 90% ánægð. (Þjónusta í hverfum Reykjavíkur, síða 3).
  • Íbúar í Laugardal og Vesturbæ eru ánægðastir með sín hverfi.
    Íbúar í Laugardal og Vesturbæ eru ánægðastir með sín hverfi. (Þjónusta í hverfum Reykjavíkur, síða 5).
  • Íbúar benda helst á samgöngumál og umhverfismál þegar spurt er um hvað helst þurfi að bæta í þeirra hverfi.
    Íbúar benda helst á samgöngumál og umhverfismál þegar spurt er um hvað helst þurfi að bæta í þeirra hverfi. (Þjónusta í hverfum Reykjavíkur, síða 47).
  • Íbúar voru spurðir um umhverfi og þjónustu (Þjónusta sveitarfélaga, síða 3).
    Íbúar voru spurðir um umhverfi og þjónustu (Þjónusta sveitarfélaga, síða 3).

Með skiptingu könnunarinnar eftir hverfum verður hægara um vik að bæta þjónustuna. Almennt séð voru svarendur ánægðari með þjónustu í sínu hverfi en Reykjavík í heild.  Íbúar í Vesturbæ og Laugardal eru á pari við ánægju íbúa þeirra sveitarfélaga sem skoruðu hæst í heildarkönnun.

79% íbúa telja Reykjavík góðan stað til að búa á og þegar spurt er um hverfið þá telja 89% hverfið sitt góðan stað til að búa á. 57% Reykvíkinga eru ánægðir með þjónustu borgarinnar á heildina litið og hefur hlutfall ánægðra hækkað um 10 prósentustig frá árinu 2010.

Capacent sá um framkvæmd kannana og svöruðu 984 Reykvíkingar 18 ára og eldri í heildarkönnun og 1031 Reykvíkingur 18 ára og eldri í könnun um þjónustu í hverfunum. Sömu spurningar voru lagðar fyrir nema að því leyti að spurt var um Reykjavík sem heild í sveitarfélagakönnuninni en spurt um afstöðu til hverfa í seinni könnuninni. Kannanirnar voru framkvæmdar í október – desember.

Niðurstöður kannana Capacent Gallup:

  • Þjónusta sveitarfélaga 2014: Reykjavík. Niðurstöður í síma- og netkönnun með 18 ára og eldri, handahófsvalinna einstaklinga úr Viðhorfahópi Capacent Gallup og Þjóðskrá. Útgefið 16. janúar 2015.
  • Þjónusta í hverfum Reykjavíkur 2014. Reykjavík í heild. Niðurstöður netkönnunar á viðhorfum borgarbúa til þjónustu í mismunandi hverfum 15. – 28. desember 2014. Handahófsval
Email, RSS Follow

Stórleikur í Egilshöllinni í kvöld

05 feb 2015
Kristjan Sigurdsson
0

IMG_9882Stórleikur er hjá Fjölnismönnum í knattspyrnunni í kvöld þegar liðið mætir Valsmönnum í undanúrslitum á Reykjavíkurmótinu. Fjölnismenn hafa leikið á köflum ágætlega til þessa á mótinu og er ljóst að um jafna og spennandi viðureign verður um ræða gegn Hlíðarendapiltum í Egilshöllinni. Leikur liðanna hefst klukkan 18.45.

Athygli skal vakin á því að ekkert kostar á leikinn og verður hann einnig á beinni útsendingu á Sporttv.is. Grafarvogsbúar er hvattir til að fjölmenna og hvetja sína menn til dáða.

Email, RSS Follow

Rafrænar íbúakosningar í fjórða sinn

03 feb 2015
Baldvin
0
Aðsent efni, Beri Hverfi, Betri Hverfi Grafarvogur, Grafarvogur., Reykjavík
Gerum borgina blómlega og töku þátt í að forgangsraða verkefnum í hverfunum í rafænum íbúakosningum dagana 17. - 24. febrúar nk.

Gerum borgina blómlega og töku þátt í að forgangsraða verkefnum í hverfunum í rafænum íbúakosningum dagana 17. – 24. febrúar nk.

Rafrænar íbúakosningar undir merkinu Betri hverfi 2015 verða haldnar í Reykjavík dagana 17. – 24. febrúar nk. Þetta er í fjórða sinn sem slíkar kosningar eru haldnar um verkefni í hverfum borgarinnar en hugmyndirnar að verkefnunum eiga íbúarnir sjálfir.

Allir sem eiga lögheimili í Reykjavík og eru orðnir 16 ára geta tekið þátt í kosningunum. Til að komast inn á kosningavefinn verða íbúar að eiga Íslykil eða rafræn skilríki til auðkenningar og er nauðsynlegt að hafa slík auðkenni tiltæk áður en haldið er á „kjörstað“ í tölvunni sinni eða spjaldtölvu.

Kosið er á milli allt að 20 hugmynda í tíu hverfum borgarinnar.

Hugmyndum að verkefnum í hverfum borgarinnar var safnað í október á síðasta ári og bárust 690 hugmyndir frá íbúum inn á vefinn Betri hverfi 2015 sem var metfjöldi í hugmyndasöfnun fyrir hverfin.

Alls hafa verið verðmerktar hugmyndir að verkefnum fyrir rúmlega 820 milljónir króna en fjárheimild hverfanna er um 300 milljónir á þessu ári.

Í kosningunum forgangsraða íbúar verkefnum í sínum hverfum. Niðurstöður kosninganna eru bindandi fyrir Reykjavíkurborg sem skuldbindur sig til að framkvæma þau verkefni sem kosin eru.

Þegar hafa verið framkvæmd verkefni fyrir 900 milljónir króna sem kosin hafa verið af íbúum í Reykjavík sl. þrjú ár. Með kosningunum núna hefur Reykjavíkurborg alls lagt 1.200 milljónir króna í að framkvæma hugmyndir íbúa í hverfum borgarinnar.

Hvað vilt þú í þínu hverfi?

 

Email, RSS Follow

Vinátta barna og unglinga

02 feb 2015
Baldvin
0
Aðsent efni, Barnastarf, Börn, Grafarvogur., Grunnskólar Grafarvogs, Hlaðan, Menntamál, SAMGRAF, Vanda

Þér er boðið á frábæran fyrirlestur um vináttu barna og unglinga.

Fyrirlesari: Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor við Háskóla Íslands

Tími: Miðvikudagurinn 11. febrúar kl. 20:00
Staður: Hlaðan í Gufunesbæ
Fjallað verður um mikilvægi vináttu fyrir börn og unglinga. Megináhersla verður lögð á leiðir fyrir foreldra til að geta aðstoðað
börn sín við að eignast vini og halda þeim.

Léttar veitingar í boði.
Við vonumst til að foreldrar fjölmenni á fyrirlesturinn. Miklu máli skiptir að börnum okkar líði vel og það eru leiðir til þess að bæta líðan þeirra. Það er einnig mikilvægt að við foreldrarnir fáum tækifæri til að hittast og efla samstöðu okkar.
Hlökkum til að eiga góða kvöldstund með ykkur, fyrirlesturinn er sameiginlegur öllum foreldrafélögum í Grafarvogi og Kjalarnesi
Umsjón í ár er í höndum Foreldrafélags Foldaskóla
Vinátta barna og unglingaÞér er boðið á frábæran fyrirlestur um vináttu barna og unglinga
Fyrirlesari: Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor við Háskóla Íslands

Fyrirlestur_vinatta_augl

Email, RSS Follow
« First‹ Previous129130131132133134135Next ›Last »
banner
banner
banner
banner
banner
banner

Gagnlegir tenglar

  • HEILSUGÆSLAN
  • MIÐGARÐUR
  • HVERFIÐ MITT
  • MOJE_S_SIEDZTWO
  • MANO_KAIMYNIST_JE
  • MY NEIGHBOURHOOD

Börnin okkar

  • FRAMHALDSSKÓLAR
  • GUFUNESBÆR
  • LEIK OG GRUNNSKÓLAR
  • SKÁTAFÉLAGIÐ HAMAR
  • TÓNLISTARSKÓLINN

GRAFARVOGSBÚAR Á FLICKR

Allur réttur áskilinn © 2024
www.grafarvogsbuar.is