Fjölnir og Þróttur áttust við á Reykjavíkurmótinu í handknattleik í gærkvöldi. Viðureignin fór fram í Grafarvoginum og sýndu heimamenn gestunum enga gestrisni. Fjölnir hafði mikla yfirburði í leiknum og eftir 30 mínútna leik var staðan 19-6. Heimamenn fóru svo létt með að klára þetta dagsverkefni og sigruðu með 22 marka mun 37-15.
Markahæstir Fjölnis: Sveinn Þorgeirsson og Breki Dagsson með 6 mörk, Kristján Kristjánsson og Bergur Snorrason 4 hvor.
Markahæstir Þróttara: Matthías Grétarsson 9 og Leifur Óskarsson 4