Nemendur í unglingadeildum grunnskólanna munu á næstu dögum mæta á Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynningu sem haldin verður í Kórnum 6.-8. mars. Nemendur verða sóttir með rútum og fara ásamt kennurum og náms- og starfsráðgjöfum á sýninguna þar sem þeim gefst gott tækifæri til að skoða, upplifa, prufa og smakka á ýmsu góðgæti.
Nemendur munu sjá framhaldsskólanemendur keppa í sinni iðngrein og einnig fá að prófa að snerta á því sem verið er að kynna. Má t.d. nefna að þau geta prófað að búa til marsipablóm, bilagreina bíl, blandað óáfengan kokteil, prófa suðuhermi og handanudd. Einnig geta þau fylgst með smíði trébáts, prófað ökuhermi, flughermi og ótal margt fleira.
Sýningin er opin fyrir almenning og eru foreldrar hvattir til að koma með börnum sínum ekki síst þeim sem standa frammi fyrir þeirri ákvörðun að velja sér nám í vor, jafnvel þó þau séu búin að fara með skólanum. Eins er öllum þeim sem áhuga hafa á að kynna sér nám á framhaldsskólastigi bent á að nýta sér þetta tækifæri.