– Garðeigendur klippi gróður sem hindrar vegfarendur
Eftir góða tíð í sumar hefur trjágróður víða vaxið inn á stíga og götur. Starfsmenn Reykjavíkurborgar fara nú skipulega um borgina og skoða hvar líklegt er að gróður hindri för snjóruðningstækja og sorphirðu.
Reykjavíkurborg hvetur garðeigendur til að klippa þann trjágróður sem vex út fyrir lóðarmörk og hindrar vegfarendur, hylur umferðarskilti eða götulýsingu. Þar sem ekki er brugðist við geta starfsmenn borgarinnar klippt á kostnað garðeigenda.
Eftirfarandi atriði verða garðeigendur að hafa í huga allan ársins hring:
- Umferðarmerki séu sýnileg.
- Gróður byrgi ekki götulýsingu.
- Gangandi og hjólandi eigi greiða leið um gangstíga.
- Þar sem vélsópar og snjóruðningstæki fara um má lágmarkshæð gróðurs yfir stígum ekki vera lægri en 2,8 metrar.
- Yfir akbrautum má gróður ekki slúta niður fyrir 4,2 metra og gildir þessi hæðarregla einnig þar sem sorphirðubílar, slökkvilið og sjúkrabílar þurfa að komast eftir stétt eða stíg.
Gróður sem tilheyrir borginni verður klipptur og eigendur garða þar sem trjágróður vex út fyrir lóðarmörk eru hvattir til að huga að sínum gróðri. Þeir sem vilja fá nánari upplýsingar eða koma ábendingum um trjágróður á framfæri geta hringt í síma 411 11 11, sett þær á vef reykjavik.is/abendingar eða sent skeyti á upplysingar@reykjavik.is
Trjágróðri sé haldið innan lóðarmarka
Byggingarreglugerð setur garðeigendum þá skyldu á herðar að halda gróðri innan lóðarmarka. Í reglugerðinni nr. 112/2012 segir í grein 7.2.2: „Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa eða runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götu, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun“.
Á vefsíðunni >>>> http://reykjavik.is/trjagrodur eru upplýsingar um hæðarmörk trjágróðurs, m.a. skýringarmynd sem fjölmiðlum er að sjálfsögðu heimilt að nota.