Yfir bænum heima í Grafarvogskirkju á laugardaginn
Stórtónleikar Ragga Bjarna með Karlakórum Grafarvogs og Rangæinga
Ragnar Bjarnason syngur á stórtónleikum með Karlakór Grafarvogs og Karlakór Rangæinga í Grafarvogskirkju laugardaginn 30. nóvember nk. Tónleikarnir bera yfirskriftina „Yfir bænum heima“ sem er skírskotun til eins þeirra skemmtilegu laga sem flutt verður á tónleikunum. Það má búast við mikilli stemningu í Grafarvogskirkju þegar kórarnir tveir leggja saman krafta sína með hinum eina sanna Ragnari Bjarnasyni sem enn er í fullu fjöri – kominn fast að áttræðu.
Þetta er þriðja starfsár Karlakórs Grafarvogs, en í kórnum eru yfir 30 söngmenn á öllum aldri. Karlakór Rangæinga er forfrægur og hefur gert garðinn frægan víða um land í meira en tvo áratugi. Ragnar Bjarnason er óþarft að kynna, en hann hefur átt greiðan aðgang að hjörtum tónelskra Íslendinga í tæp 60 ár.
Það er hinn ungi Karlakór Grafarvogs sem hefur veg og vanda að undirbúningi þessara tónleika. Íris Erlingsdóttir er stjórnandi Karlakórs Grafarvogs en hún stofnaði kórinn árið 2011. Karlakór Grafarvogs er sérstakur að því leyti að hann er fyrsti karlakórinn á Íslandi sem stofnaður er af konu, en Íris tók sig til haustið 2011 og fékk til liðs við sig hóp vaskra pilta á öllum aldri sem hafa sungið undir hennar stjórn síðan. Íris þekkir einnig vel til Karlakórs Rangæinga, en hún stjórnaði kórnum sl. vetur í forföllum kórstjóra hans. Segir hún sína menn hlakka mjög til tónleikanna og þá ekki síst að taka lagið með hinum sívinsæla Ragnari Bjarnasyni sem orðinn er goðsögn í lifanda lífi, en Ragnar mun syngja nokkur af sínum vinsælustu lögum við þetta tækifæri. Íris segist vonast til þess að tónleikarnir verði vel sóttir, enda eigi Karlakór Grafarvogs tryggan hóp aðdáenda, ekki síður en Karlakór Rangæinga sem árlega heldur fjölsótta tónleika í Reykjavík sem og í sinni heimabyggð. Og síðast en ekki síst sé Ragnar Bjarnason elskaður og dáður um land allt.
Á efnisskránni verða lög úr ýmsum áttum, bæði innlend og erlend og verður léttleikinn hafður í fyrirrúmi. Píanóleik með Karlakór Grafarvogs annast Kjartan Valdemarsson, en útvarpsmaðurinn góðkunni, Þorgeir Ástvaldsson, leikur með Ragnari Bjarnasyni. Stjórnandi Karlakórs Rangæinga er Guðjón Halldór Óskarsson, en píanóleikari kórsins er Glódís Margrét Guðmundsdóttir.
Tónleikarnir hefjast kl. 17 og verða aðgöngumiðar seldir við innganginn.
Allar nánari upplýsingar gefur Íris Erlingsdóttir kórstjóri, GSM: 698 4760.