Biskup Íslands hefur ákveðið að skipa séra Örnu Ýrr Sigurðardóttur í embætti prests í Grafarvogsprestakalli í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Frestur til að sækja um embættið rann út 5. maí sl. 20 umsækjendur voru um embættið. Embættið veitist frá 1. september nk.
Voru tveir umsækjendur metnir jafnhæfir en biskup fór að ákvæðum jafnréttislaga. Þau kveða skýrt á um að séu tveir umsækjendur jafnir skal velja þann sem er af því kyni er færri er í starfsstéttinni.