„Við erum byrjuð í austurhluta borgarinnar að sópa göngu- og hjólreiðastíga,“ segir Guðjóna Björk Sigurðardóttir sem stýrir hreinsun Reykjavíkurborgar. „Farnar verða tvær umferðir yfir alla borgina. Við grófsópum fyrst því það liggur mikið magn af sandi á stígunum eftir veturinn, en í vetur notuðum við óvenjumikinn sand til að tryggja öryggi gangandi vegfarenda“.
Hreinsun í ár hefst fyrr en undanfarin ár einkum vegna umfangs verksins. „Seinni umferð náum við að ljúka í maí, en við sjáum strax mikinn mun eftir fyrri umferð“, segir Guðjóna Björk.
„Á laugardag hefst sópun skólalóða, en meginþungi þeirra vinnu verður þegar skólarnir fara í páskafrí,“ segir Guðjóna Björk. Hreinsun annarra stofnanalóða hefst einnig á næstu dögum.
Þá er hafin vinna við hreinsun umferðargatna og er byrjað á stofnbrautum í samvinnu við Vegagerðina. Á föstudag hefst vinna við hreinsun annarra umferðargatna og verður byrjað í austurhluta borgarinnar.