Seljaskóli og Kelduskóli Vík komust áfram í Skrekk | Reykjavíkurborg
Öðru úrslitakvöldi Skrekks, hæfileikakeppni grunnskólanema í Reykjavík, lauk með sigri Seljaskóla og Kelduskóla Víkur.
Seljaskóli og Kelduskóli Vík komust áfram í Skrekk | Reykjavíkurborg
Undankeppnin fór fram í fyrir troðfullum sal nemenda úr átta grunnskólum sem studdu sín lið. Mikil gleði og keppnisandi ríkti í salnum og héldu kynnarnir Steiney Skúladóttir og Auðunn Lúthersson uppi fjörinu á milli atriða.
Þriðja undanúrslitakvöldið verður í kvöld, en mánudaginn 17. nóvember, fer úrslitakeppnin fram. Alls taka 24 skólar þátt í keppninni.