Redder byggingalausnir komnir í hverfið okkar.

Redder eru staðsettir á Hyrjarhöfða 2

Redder veitir persónulega og faglega þjónustu fyrir metnaðarfulla fagmenn í byggingaiðnaði sem vilja viðhafa vönduð vinnubrögð og uppfylla kröfur um framsæknar og varanlegar lausnir.
Við byggjum á menntun, reynslu og þekkingu á byggingaiðnaði bæði hérlendis og erlendis.

Við bjóðum stoltir gæðavörur frá eftirfarandi framleiðendum:

Arbo sérhæfir sig í þéttiefnum og þanborðum ásamt EPDM borðum. Arbo býr yfir 150 ára reynslu af framleiðslu iðnaðarvara. www.arbo.co.uk

Carlisle Hertalan bjóða EPDM þakdúka í fremsta gæðaflokki sem sannað hafa gildi sitt í yfir 50 ár á markaði. www.hertalan.co.uk



Expandet er með hágæða skrúfur, bolta, rær og skinnur sem hafa reynst vel á íslenskum markaði. Frá móðurfyrirtæki Expandet, Kyocera
Senko Denmark bjóðum við loft- og rafmagnshandverkfæri undir vörumerkinu SENCO. www.expandet.dk

FSI er einn helsti framleiðandi á eldvarnarvörum í Bretlandi. Frá þeim bjóðum við m.a. akríl, ull, kraga, sílikon, bönd, og borða. FSI er þekkt fyrir að gera einna flestar rannsóknir og prófanir á eldvarnarvörum og bjóða upp á framúrskarandi tækniblöð fyrir sína vöru. www.fsiltd.com

KWB er þýskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í verkfærum og smávörum fyrir byggingaiðnað. Frá þeim seljum við m.a. bora, bita, sagarblöð, skrúfbita og hnífa. KWB býður upp á mikið úrval af gæðavörum. www.kwb.eu

Proclima er leiðandi í framleiðslu á öndunardúkum, rakavarnarlögum og límböndum fyrir byggingaiðnaðinn. Þeir leggja mikinn metnað í prófanir og tæknilegar mælingar fyrir viðskiptavini sína um allan heim. www.proclima.com

Rothoblaas er einn fremsti framleiðandi í heimi á festingum, skrúfum og tengdum vörum fyrir timburhús og CLT hús (límtréshús) sem hafa verið að ryðja sér til rúms á Íslandi undanfarin ár. www.rothoblaas.com

Strákarnir frá Redder voru á Bylgjunni í morgun, hægt að hlusta á það hérna.

https://www.visir.is/k/420509bf-2f21-4ce1-815b-234cf0fdc3d9-1583137019970?jwsource=fb&fbclid=IwAR1edKfvDj8XWwAuoHLv6pPzXRHbIJ1YViGgFWh2ZFNpjplLPxDHzhVnAjY

Um höfundinn

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.